Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Tekjuöfl- un verði endur- skoðuð Morgunblaðið/Ásdís Ferðamenn sem ætluðu með hdpferðabil að Flugstöð Leifs Eiríkssonar urðu að ganga með farangur sinn milli vegatálma þar sem annar bíll beið. Umferð um Reykjanesbraut stöðvuð í 3 ¥2 tíma til að knýja á um tvöföldun Hundruð manna kom- ust ekki leiðar sinnar HÓPUR fólks lokaði í gær Reykja- nesbraut í 3'/2 klukkustund með því að stöðva og leggja bifreiðum sínum fyr- ir veginn. Á tímabili voru vel á þriðja hundrað bifreiða í bílalestum við Grindavíkurafleggjara. Þórir Mar- onsson, yfirlögregluþjónn í Keflavík, segir lögregluna Hta málið alvarleg- um augum og ljóst að gerist slíkt aft- ur verði viðbrögð lögreglu mun harð- ari. Hann telur að um hundrað manns hafi tekið þátt í mótmælunum. KreQast tvöföldunar strax Þórir segir mótmælendur hafa lok- að veginum um kl. 14:30. Fólkið lagði bflum sínum á veginn beggja vegna Grindavíkurvegar og lokaði þannig umferð. „Þjóðbraut dauðans hefur verið lokað (tímabundið frá 15:00 til 18:00). Við sem notum Reykjanesbrautina krefjumst tvöföldunar strax,“ stóð á ljósrituðu bréfi sem mótmælendur dreifðu til vegfarenda. Enginn gaf sig fram sem forsvarsmaður mótmæl- anna. Þau svör fengust að „hópur fólks af Suðumesjum“ hefði á sunnu- daginn ákveðið aðgerðimar. Nokkrii’ þeirra sem Morgunblaðið ræddi við sögðu að bflvelta, sem varð á gatnamótum Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar á sunnudags- morgni, hefði orðið til að hreyfa við fólki. SMS-skilaboð um fyrirhuguð mótmæli gengu manna á milli þá um kvöldið og í gær. Bjami Daníelsson, íbúi í Keflavík, var einn mótmælenda. Hann sagði til- gang mótmælanna vera að flýta fyrir tvöfóldun Reykjanesbrautar. „Við þurfum að sýna samstöðu, t.d. eins og Frakkamir. Þeir gefast ekki upp heldur standa saman þangað til lausn finnst," sagði Bjami. Ljóst væri að möguleikinn væri fyrir hendi. Verk- takar hefðu lýst því yfir að þeir gætu leyst verkefnið á mun skemmri tíma en gert væri ráð fyrir í vegaáætlun. Okumenn tóku mótmælunum mis- jafnlega, margir voru ósáttir og létu gremju sína í ljós. Vegfarendur spurðu mótmælendur hvaða rétt þeir teldu sig hafa tii þess að loka veginum og lýstu efasemdum um að þessi að- ferð myndi skila árangri. Vegfarandi, sem Morgunblaðið ræddi við, sagðist hafa orðið var við talsverðan hraðakstur skömmu fyrir mótmælin. Bflstjórar hefðu aukið hraðann til þess að ná á áfangastað áður en brautinni var lokað. Til rysk- inga kom þegar bflstjóri hópferðabfls reyndi að komast framhjá vegatálm- anum með því að aka út fyrir veginn. Valdbeiting ekki skynsamleg Þórir Maronsson yfirlögregluþjónn segir það hafa komið lögreglunni á óvart hve stór hópur tók þátt í mót- Til harðra orðaskipta kom og lá við handalögmálum þegar bíl- stjóri hópferðabfls reyndi að aka fram hjá vegatálmunum. mælunum. Um hundrað manns á tug- um bfla lokuðu Reykjanesbraut. Hann segir Ijóst að lögreglan hefði þurft að hafa mikinn viðbúnað ef ákveðið hefði verið að ryðja Reykja- nesbraut. „Við mátum það svo að valdbeiting væri ekki skynsamleg og hún myndi ekki bera tilætlaðan árangur,“ sagði Þórir. Hann telur að hefði lögreglan ákveðið að beita valdi til að stöðva mótmælin hefði verið hætta á harka- legum átökum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þá væri Ijóst að lögregl- an í Keflavík hefði þurft mikinn liðs- auka og tækjabúnað til þess að ryðja veginn. Þórir segir alveg ljóst að verði aftur reynt að loka Reykjanesbrautinni muni lögreglan grípa til harðari að- gerða. Bílar sem stöðvi umferð verði dregnir á braut eða þeim rutt af veg- inum eftir viðvörun. Lögreglan skrif- aði niður skráningarnúmer fjölda bif- reiða en ekkert hefur verið ákveðið um hvort eigendur þeirra verði kærð- ir. Nokkrir ökumenn brugðu á það ráð að aka gömul Reykjanesbrautina um Stapann. Þórir segir lögregluna hafa ákveðið að beina umferðinni ekki um þá leið þar sem hætta hefði verið á að ökumenn skemmdu bfla sína en veg- urinn væri illfær nema stærri bílum. Slíkt hefði aðeins aukið á öngþveitið. Kristján Pálsson, alþingismaður Reyknesinga, kom að vegartálmun- um í gær. Hann sagði í viðtali við Morgunblaðið að hann væri fylgjandi því að vekja athygli á öiyggismálum á Reykjanesbraut og að flýta fram- kvæmdum við tvöfoldun hennar. Hann gæti hinsvegar ekki stutt ólög- legar aðgerðir; þær hjálpuðu ekki málstaðnum. „Eg get hinsvegar skilið tilfinningar þessa fólks. Suðuraesja- menn eru almennt mjög slegnir yfir því hversu alvarleg þessi slys [á Reykjanesbraut] hafa verið og mörg dauðaslys á þessu ári,“ sagði Kristján. STJÓRNARNEFND Landspítala - háskólasjúkrahúss hvetur til þess, í bókun sem gerð var á fundi nefnd- arinnar í síðustu viku, að tekjuöflun spítalans verði tekin til heildarend- urskoðunar og jafnframt að leitað verði allra leiða til að selja eða leigja eignir spítalans og verja sölu- andvirðinu til uppbyggingar á stofnuninni. Að sögn Guðnýjar Sverrisdóttur, formanns stjómar- nefndar, er þar fyrst og fremst vís- að til landeigna stofnunarinnar í Kópavogi. I bókuninni segir m.a.: „Stjóm- amefndin hvetur til þess að tekju- öflun spítalans verði tekin til heild- arendurskoðunar, þar á meðal gjaldtaka, og tillögur að breyting- um verði sem fyrst lagðar fyrir stjómamefnd og ráðuneyti. I þeim verði Ieitast við að gæta hagsmuna hinna efnaminni." Ennfremur segir að stjómamefndin hvetji til þess að leitað verði allra leiða til að selja eða leigja eignir spítalans og verja andvirði sölunnar til uppbyggingar á stofnuninni. Spurð um sölu eða leigu eigna spítalans sagði Guðný að þar væri fyrst og fremst vísað til lands í eigu spítalans í Kópavogi, í grennd við Kópavogshælið. Ekki væri búið að meta verðmæti þess. Hún sagðist t.d. gjaman vilja að því fé sem þannig aflaðist yrði fyrst og fremst varið til að bæta bágborinn húsa- kost slysadeildar spítalans. Um það hvort stjórnamefndin væri að mælast til þess að aukin þjónustugjöld yrðu lögð á með vís- an til endurskoðunar á tekjuöflun sem hafi hagsmuni hinna efnaminni að leiðarljósi, sagði Guðný að breyt- ingar á gjaldtöku væru ekki ein- göngu mál stjómamefndarinnar heldur pólitísk spuming og margir fletir á málinu. „En eins og þetta kemur mér fyrir sjónir er ekki sam- ræmi í gjaldtökunni," sagði hún en sagðist vænta þess að það yrði skoðað hvort breytinga væri þörf. Að sögn Guðnýjar liggur fyrir, eftir afgreiðslu fjárlaga á Alþingi í gær, að stofnunina vantar 4-500 m.kr., eða um 2%, til að endar náist saman í óbreyttum rekstri hennar á næsta ári. -------*-*-*------- Gallup-könnun á fylgi flokkanna Vinstri- grænir með 20% fylgi FYLGI Sjálfstæðisflokksins er nú 45% samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups sem fram fór 8. til 29. nóv- ember. Vinstrihreyfingin - grænt framboð nýtur stuðnings 20% kjós- enda. Spurt var hvaða flokk eða lista fólk myndi kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokkur yrði Hklegast fyrir vaHnu og hvort Hklegra væri að Sjálf- stæðisflokkurinn yrði kosinn eða ein- hver hinna flokkanna. Samfylkingin nýtur stuðnings 19% kjósenda og Framsóknarflokkurinn fengi 13% fylgi. í Þjóðarpúlsi Gallups kemur firam að fylgi Sjálfstæðisflokksins hafi verið nokkuð stöðugt í síðustu mæl- ingum en fylgi Framsóknarflokksins sveiflist nokkuð og hefði lækkað nokkuð frá síðustu könnun. Þá kemur fram að Samfylkingin og Vinstri- hreyfingin - grænt framboð hefðu haft áHka fylgi í síðustu mælingum. Rúmlega 23% vora ekki viss um hvað þau myndu kjósa eða neituðu að gefa það upp og tæplega 5% sögðust myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosningar færa fram nú. Jólasveinar ganga um gatt Leikþættir og lög við kvæði Jóhannesar úr Kötlum. Ástsælustu leikarar þjóðarinnar bregða sér í gervi gömlu íslensku jólasveinanna á þessum bráðskemmtiLega diski. Mál og menning Laugavegl 18 • Slmi 515 2500 • Slðumúla 7 • Sfml 510 2500 Andlát SIMON PÁLSSON SÍMON Pálsson, for- stöðumaður markaðs- og sölusviðs Flugleiða á íslandi, lést á Land- spítalanum sl. sunnu- dag, 52 ára að aldri. Hann fæddist í Reykjavík 30. apríl 1948, sonur hjónanna Jóhönnu Símonardótt- ur og Páls Þorsteins- sonar. Símon lauk stúd- entsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri og hóf störf hjá Flug- félagi íslands árið 1969 og vann þar og síðar hjá Flug- leiðum alla sína starfsævi. Símon gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Flugleiðir innanlands og erlendis, var m.a. svæðisstjóri í Washing- ton frá 1985-1987, svæðisstjóri á Norður- löndum frá 1987-1992 og svæðisstjóri á Bret- landseyjum frá 1992- 1994. Frá 1994 og til dauðadags var hann forstöðumaður mark- aðs- og sölusviðs Flug- leiða á íslandi. Símon starfaði að ýmsum félagsmálum og átti m.a. sæti í stjóm bresk-íslenska verslun- arráðsins við fráfall sitt. Eftirlifandi eiginkona Símonar er Þuríður Vilhjálmsdóttir. Þau eignuð- ust tvo syni en einnig lætur Símon eftir sig dóttur af fyrra hjónabandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.