Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, BALDUR SIGURÐSSON, Álfatúni 17, Kópavogi, lést á Landspítalanum Fossvogi aðfaranótt 10. desember sl. Unnur Þóra Þorgilsdóttir, Þorgils Baldursson, Inga Jónsdóttir, Sigurbjörg Baldursdóttir, Ásgeir Beinteinsson, Hallur A. Baldursson, Kristín S. Sigtryggsdóttir, Sigurður Baldursson, Borghildur Sigurbergsdóttir og barnabörn. t Faðir okkar, KRISTJÁN GUÐBJARTSSON fyrrv. bóndi og hreppstjóri á Hólakoti, Staðarsveit, lést á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, sunnu- daginn 10. desember. Elsa Kristjánsdóttir, Kristlaug Karlsdóttir, Heiðbjört Kristjánsdóttir. t Faðir minn, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir, frændi og vinur, ENGILBJARTUR GUÐMUNDSSON, lést á Hrafnistu I Hafnarfirði sunnudaginn 10. desember. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni I Hafnarfirði föstudaginn 15. desember kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Páll Þór Engilbjartsson, Ólafía Guðrún Halldórsdóttir, Hreiðar Sigurjónsson, Fríða Ragnarsdóttir og fjölskyldur. t Bróðir minn, ELÍAS ÞÓRÐARSON frá Fit, lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar mánudaginn 11. desember. Marta Þórðardóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og systir, BERGLJÓT RAFNAR, Efstaleiti 12, Reykjavík, lést á Landspítala Hringbraut mánudaginn 11. desember. Bjarni Rafnar, Björg Rafnar, Össur Kristinsson, Haraldur Rafnar, Rósa Þorsteinsdóttir, Kristín Rafnar, Gunnar Stefánsson, Þórunn Rafnar, Karl Ólafsson, Jónas H. Haralz. t Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður minnar og ömmu, ELÍNAR SKÚLADÓTTUR ELLEFSEN, Kirkjuvegi 17, Keflavlk. Guðrún Vilhelmsdóttir Benner og böm. + Hólmfríður Þor- steinsdóttir fæddist 21. maí 1937. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 19. nóvember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Seltjarnaraes- kirkju 24. nóvember. Jarðsett var á Þor- valdsstöðum í Breið- dal. „Ég er betri í dag en í gær“ eru orð sem ég mun ávallt tengja minn- ingu Hólmfríðar Þorsteinsdóttur eða Fíu eins og hún var oftast kölluð. Nú er hún farin, laus við allar þær miklu þjáningar sem yfir hana gengu frá því hún var komung kona. Þá veiktist hún af liðagigt, sem jafnt og þétt hel- tók líkama hennar. Hugur minn reikar aftur til ársins 1960 þegar ég flutti, rúmlega tvítug, ásamt fjölskyldu minni í nýju byggð- ina sem þá var að rísa vestast á Sel- tjarnarnesinu. Fyrir mig sem var uppalin í miðri Reykjavík, var það nánast eins og að flytja upp í sveit. Ég man hvað það gladdi mig þá að hitta einhvem sem ég þekkti, þegar ég rakst á Fíu úti á götu með yngsta soninn af þremur í fanginu, hann Guðjón litla eða Jónka, eins og ég kallaði hann á þessum ámm. Fía bauð mér inn í tíu dropa, sem áttu eftir að verða fleiri næstu ára- tugina. Við höfðum kynnst þegar við unnum í saltfiski hjá BÚR, þá á ferm- ingaraldri. Á þeim tíma höfðum við báðar misst feður okkar og þá þótti sjálfsagt að við legðum mæðmm okk- ar lið í lífsbaráttunni. Og þó ég flytti mig um set á Nesinu var aÚtaf þráður á milli okkar. Við skutumst stundum yfir Valhúsahæð- ina, hvor til annarrar eða áttum löng samtöl í gegnum síma. Það var ekki að spyrja að því, að segði hún mér fréttir af sér og sínum þá vom þær allar á einn veg, góðar. Nú þegar ég minnist Fíu minnar, sé ég að sjálfsmynd hennar var ekki bara hún sjálf, heldur hún og fjölskyld- an, svo samofin vom þau. Jákvæðni, bjart- sýni, ástúð, þrautseigja og trygglyndi em þeir persónueiginleikar sem ég tel að lýsi Fíu allra best. Þeir sem þekktu hana muna glettnis- glampa augna hennar, jafnvel á þeim stundum sem hún var þjáð. Frá Melabrautarámnum rifjast ýmislegt upp. Þegar litla skottið hennar, hann Steini, var til í að kyssa hana „Nandísi" (undirritaða) ef hann fengi „túkall“ að launum. Eða þegar hann Binni fæddist, þá varð einhverj- um að orði að Fía og Óskar væm að safna í fótboltalið. Eða þegar bam númer fimm fæddist og stórfréttin barst um eins og eldur í sinu, allir stukku út til Fíu að berja undrið aug- um, það var fædd stúlka á Melabraut 57. Ög ekki má gleyma fmmburðin- um, Guðna Má, fjörmiklum hnokka, sem eins og flest Nesbörnin á þessum tíma, sást varla inni í húsi, því æv- intýrin vom við hvert fótmál, frá holti til fjöra. Éleiri minningar hrannast upp. Fía hafði sérstakt næmi fyrir bömum enda hændust þau að henni. Minn- ingar elstu dóttur minnar staðfesta það. Með því skemmtilegasta sem henni þótti þegar hún var lítil var að kíkja með mér til Fíu, sem hún gerði ósjaldan, þar mátti hún leika sér með alvöra dót. Fía dró fram hælaskóna sína, slæðumar, hanskana og fleira sem sú stutta gat leikið með, enda var það í þá daga þegar ekkert stelpudót var þar til á þeim bænum. Og einu gleymi ég aldrei, þegar Fía leit út um eldhúsgluggann sinn og sá sér til skelfingar hvar sonur minn fjögurra ára, stóð úti á götu, beint fyrir framan kyrrstæðan strætó, sem staldrað hafði við á bið- stöðinni. Hún sagði ekki orð, en ég sá undir iljamar á henni, þar sem hún hentist ofan af annarri hæð og út á götu til að bjarga stráksa. Þegar ég kom að, sá ég að þar hafði hurð skoll- ið nærri hælum. Ég fylgdist með hvernig Fía, þessi hugprúða og látlausa kona, sigldi í gegnum lífið. Hún átti sér fjársjóð eins og áður sagði, sem var henni sá dýrmætasti, en það var fjölskyldan, eiginmaður hennar Óskar, sem stóð eins og klettur við hlið hennar gegn- um súrt og sætt, synimir fjórir, þeir Guðni Már, Þorsteinn, Guðjón og Brynjólfur, og dóttirin, Hlíf. Seinna jókst svo innstæðan með tengda- og bamabörnunum. Stoltið skein úr andliti hennar er hún svo mikið sem nefndi þau á nafn. Ef einhver manneskja tileinkaði sér gleðileikinn hennar Pollýönnu þá var það hún Fía. Og ef einhver mann- eskja hefði síst átt að geta tileinkað sér hann, þá var það Fía. Heilsa hennar skilaði henni ekki dýrum sjóðum og ekki átti hún auðæfi í ver- aldlegum skilningi þess orðs. En einn af hennar sterkustu eiginleikum var um leið fjársjóður sem hún gaf sam- ferðamönnum sínum af, hún sá alltaf björtu hliðamar. Elsku Óskar, Guðni, Steini, Gaui, Binni og Hlíbba ásamt fjölskyldum ykkar. Þið hafið misst mikið. Ég og fjölskylda mín vottum ykkur dýpstu samúð. Megi góður guð styrkja ykk- ur og vernda í sorginni. Megi minn- ingin um góða stúlku, sem elskaði ykkur falslaust, vaka, alltaf. Megi minningin um stúlku sem sagði: „Ég er betri í dag en í gær“, lifa. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsinsdegi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi. Og gæfa var það öllum, er fengu að kynnastþér. (Ingibjörg Sig.) Valdís Samúelsdóttir. HOLMFRIÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR Formáli minning- argreina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- LILJA ELISABET A UÐ UNSDÓTTIR TORP + Lilja Elísabet Auðunsdóttir Torp fæddist í Stein- nesi á Akranesi 24. júlf 1933. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 16. nóvember síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Fella- og Hólakirkju 27. nóvember. í G. ^XliLÓM ~ ^ A.RÐH EIMyð ABÚÐ • STÉKKJARBA SÍMI 540 3320 Margs er að minnast margterhéraðþakka Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margseraðminnast margseraðsakna, Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Einarsson útfararstjóri, sími 896 8242 Sverrir Olsen útfararstjóri. Baldur Frederiksen útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is Það er þetta sem við skólasystur Elísabetar (eins og við kölluðum hana) segjum þegar við hittumst og tölum um þann tíma sem við átt- um saman í Kvenna- skólanum á Hvera- bökkum. Við minnumst Elísabetar sem elsku- legrar stúlku sem gam- an var að vera með. Því miður tvístraðist hóp- urinn út um landið svo samverustundirnar urðu færri en við hefð- um viljað, en þegar við hittumst tók hún alltaf á móti okkur með sínu fallega brosi, sem hún átti nóg af. Hennar var sárt saknað sl. vor þegar við héldum upp á 50 ára af- mælið en þá var hún þegar orðin svo veik. Hún er sú þriðja af okkur sem út- skrifuðumst úr skólanum sem fellur frá og biðjum við Guð að blessa minningu þeirra. Við viljum þakka Elísabetu fyrir yndislegar samvemstundir sem við áttum og biðja algóðan Guð að styrkja og styðja eiginmann hennar og börn og aðra vandamenn. Blessuð sé minning hennar. Skólasystur 1949-1950. Biómabúðin öaúðskom v/ Possvo^skiVkjw^a^ð Símii 554 0500
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.