Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐID
FBA spáir 5,5%
verðbólgu
FBA spáir því að verðbólgan í ár
verði 5,1% en 5,5% á næsta ári.
Frá upphafi til loka þessa árs ger-
ir FBA ráð fyrir því að verðbólgan
verði 4,5% og einnig yfir næsta ár.
Spáin gerir því ráð fyrir að á
næsta misseri komi verðbóga til
með að aukast en um og eftir mið-
bik næsta árs fari hún að hjaðna
að/iýju.
I spánni felst óveruleg breyting
frá þeirri spá sem bankinn gaf út
um miðbik októbermánaðar. Þá
spáði bankinn því að verðbólgan í
ár yrði 5,2% en 5,5% á næsta ári.
Einnig gerði sú spá ráð fyrir að
verðbólgan yfir árið í ár yrði 4,2%
en 5,4% yfir næsta ár. Megin mun-
urinn á spánum felst í því að sam-
kvæmt hinni nýju spá koma þau
gengisáhrif sem spáð var í október
fyrr inn í verðlagið. Gengisvísitala
krónunnar var 116 þegar spáin var
gerð í október og byggðist spáin á
því að vísitalan yrði komin upp í
120 í lok næsta árs. Gengisvísitala
krónunnar er nú tæplega 120 og
gengur hin nýja spá út frá því að
gildið verði hið sama í lok næsta
árs.
í spá FBA er gert ráð fyrir
lægri kjarasamningsbundnum
hækkunum á næsta ári en á þessu
ári í takt við umsamdar hækkanir
á almennum vinnumarkaði. Einn-
ig er gengið út frá því að það
dragi úr launaskriði samhliða því
að það slaknar á spennu á vinnu-
markaði. Gert er ráð fyrir því að
heldur dragi úr verðbólgu í við-
skiptalöndum íslands og þar með
úr hækkunum innflutningsverðs í
erlendri mynt. Þá er gert ráð fyr-
ir því að framleiðni á vinnustund
vaxi hægt í sögulegum og alþjóð-
legum samanburði bæði í ár og á
næsta ári.
„Rætist þessi spá mun verð-
bólgan í upphafi árs verða mjög
viðlíka því sem hún var í upphafi
þessa árs. Tvísýnt er því um
hvort forsendur þeirra kjara-
samninga sem gerðir hafa verið á
almennum vinnumarkaði haldi.
Samningarnir byggjast m.a. á
forsendu um stöðugt verðlag og
að verðbólgan fari minnkandi. I
febrúar á næsta ári mun nefnd
skipuð fulltrúum Alþýðusam-
bands íslands og Samtaka at-
vinnulífsins skoða hvort þessi for-
senda heldur og ef það reynist
ekki vera má segja launalið samn-
ingsins upp með þriggja mánaða
fyrirvara. Nokkur óvissa ríkir því
um launaforsendu spárinnar.
Leiði endurskoðun nefndarinnar
til frekari hækkunar launa mun
það merkja að verðbólgan verði
meiri en hér er spáð,“ að því er
fram kemur í nýju markaðsyfirliti
FBA.
Axapta
og Navis-
ion áfram
í boði
NAVISION Damgaard a/s,
sameinað fyrirtæki Navision
Software a/s og Damgaard
a/s, mun halda áfram mark-
aðssetningu á núverandi við-
skiptakerfum fyrirtækjanna
tveggja. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá Concorde Ax-
apta íslandi, sem er dreifing-
araðili fyrir Navision Dam-
gaard á Islandi.
Ákveðið hefur verið að við-
skiptakerfið Axapta verði
boðið sem lausn fyrir með-
alstór og stærri fyrirtæki, þar
sem tækni og virkni séu ráð-
andi þættir. Navision Sol-
utions og Damgaard XAL
verði hins vegar áfram boðin
sem lausnir til meðalstórra og
minni fyrirtækja.
Navision Solutions er hann-
að með 5-300 samtímanotend-
ur að leiðarljósi en Damgaard
Axapta 5-1.000 notendur.
Tilkynnt var í síðasta mán-
uði að stjórnir Navision
Software a/s og Damgaard
a/s hafi lagt til að fyrirtækin
sameinist undir nafninu Navi-
sion Damgaard a/s. Tillaga
um sameininguna verður tek-
in fyrir á hluthafafundi
beggja fyrirtækjanna 21. des-
ember næstkomandi.
í tilkynningu Concorde Ax-
apta Island ehf. kemur fram
að fyrrgreind sameining sé
mjög jákvæð fyrir viðskipta-
vini Navision Damgaard a/s
þar sem þróun, þekking og
þjónusta við viðskiptavini og
samstarfsaðila eflist til muna.
Þá segir að meirihluti ís-
lenskra fyrirtækja noti við-
skiptahugbúnað frá Navision
Damgaard a/s, sbr. Damga-
ard Axapta, Navision Fin-
ancials, Damgaard XAL og
Fjölni.
Síminn semur
við Tölvu-
miðstöð spari-
sjóðanna
SÍMINN og sparisjóðirnir hafa
gert þriggja ára þjónustusamning
um talsímaþjónustu, gagnaflutn-
inga og fjarvinnslulausnir fyrir öll
útibú sparisjóðanna og dótturfyr-
irtæki þeirra. Um er að ræða víð-
tækt samstarf í talsíma- og gagna-
flutningum. Samningurinn er
gerður við Tölvumiðstöð sparisjóð-
anna, í umboði allra sparisjóða í
landinu. Fyrirtækin munu einnig
vinna saman að þróun nýrra
lausna.
í tilkynningu frá Símanum segir
að sparisjóðirnir séu um þessar
mundir að uppfæra gagnaflutn-
ingskerfi sín með það að markmiði
að auka hraða þeirra og öryggi.
Með þessu geti sparisjóðirnir bætt
þjónustu sína við viðskiptavini og
samstarfsfyrirtæki. Samningurinn
við Símann tryggi að sparisjóðirnir
verði ávallt með bestu fáanlegu
lausnir á þessu sviði og traust og
öruggt samband gegnum fjar-
skiptakerfi Símans. Þá segir að
sparisjóðirnir vænti jafnframt mik-
ils af þróunarsamstarfi við Símann.
í tilkynningunni segir að þessi
samningur við Tölvumiðstöð spari-
sjóðanna sé afar mikilvægur fyrir
Símann. Tölvumiðstöðin hafi um
árabil verið í fremstu röð á sviði
upplýsingatækni fyrir fjármálafyr-
irtæki og saman hafi fyrirtækin
unnið að mörgum verkefnum. Þar
megi nefna GSM-bankann, sem sé
útbreiddasta fjármálaþjónustan
fyrir farsíma á íslandi í dag. Það
verkefni hafi verið eitt af þeim
fyrstu sinnar tegundar í heiminum.
Gagnagrunnur Microsoft eða Orade
Markaðsmái Epiphany eða Orade
Sala Síebei eða Orade
Netverslun IBM eða Orade
Innkaup Commerce one eða Orade
Framleiðsia SAP eða Oracle
Dreifing i2 eða Orade
Fjármái SAP eða Orade
Starfsmannastjórnun PeopieSoft eða Orade
Stuðningur Cíarify eða Oracle
www.teymi.is
Oracle T-businesssuite
Fáðu þér heildar-
lausn frá Oracle
Eða reyndu að púsla saman
10 ölíkum kerfum
(engar ieiðbelningar
innifaldar) /T
Þitt er valið - -
TEYMI
HUGBÚNAÐUR KNÝR INTERNETIÐ ™
S í m i 5 5 0 2 5 0 0
w w w. t e y m i. i s