Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 47
ELDUR í ÍSFÉLAGINU
Þingmenn
Suðurlandskjördæmis
Gífurlegt
áfall
„ÞAÐ er gífurlegt áfall að fá svona
skell í eitt öflugasta fiskvinnslufyr-
irtæki landsins, fyrii’tæki sem er
annar burðarásinn í atvinnulífmu í
Eyjum. Þetta raskar auðvitað mörgu
en mestar eru áhyggjurnar í byrjun
af vinnu fólksins," sagði Arni John-
sen, fyrsti þingmaður Suðuriands, í
samtali við Morgunblaðið um brun-
ann hjá ísfélagi Vestmannaeyja.
Arni fór á vettvang aðfaranótt
sunnudagsins og fylgdist með bar-
áttu slökkviliðs við eldinn og kynnti
sér ástandið.
„Þetta fyrirtæki er þekkt að því að
standa vel að sínu svo maður vonar
að það verði færi á því að byggja það
hratt upp. Fyrirtækið hefur líka haft
mjög gott starfsfólk í öllum stöðum
og það er von mín að stjómendur
þess sjái færi á þvf að koma hluta af
því af stað strax.
Það má segja að það hafi verið lán
í óláni að tækin sem vinna síld og
loðnu stóðu uppi þó svo að frystikerf-
ið færi svo einhverju má koma fljótt í
gang. Þá eru líka önnur færi sem fyr-
irtækið hefur í sambandi við fryst-
inguna sjálfa. Það er mín trú að það
sé hægt að gera mikla hluti þarna á
ótrúlega skömmum tíma ef allir end-
ar hnýtast upp,“ sagði Árni einnig.
Verða að takast á við áfallið
Lúðvík Bergvinsson, þingmaður
Samfylkingarinnar á Suðurlandi,
skoðaði hús Isfélagsins á sunnudag
en Lúðvík er einnig frá Vestmanna-
eyjum. Hann sagði að íbúai’ Vest-
mannaeyja yrðu að takast á við það
áfall sem eldsvoðinn væri en sem
betur fer hefði ekki orðið manntjón
og fyrir það bæri að þakka. Þá vh-tist
sem minni skemmdir hefðu orðið á
uppsjávarvinnslulínunni en á horfði í
fyrstu en loðnu- og síldarvinnsla
væru næstar í tíma.
Lúðvík sagðist eiga von á að þessir
atburðir yrðu til þess að stóru fisk-
vinnslufyrirtækin í Vestmannaeyj-
um skoðuðu hvaða möguleikai’ væru
á að auka samvinnu þeirra. Tvívegis
hefur verið áformað að sameina Is-
félagið og Vinnslustöðina en í bæði
skiptin hafa þær tilraunir farið út um
þúfur.
„Eyjamenn hafa gengið saman
gegnum súrt og sætt og þeir verða
að þjappa sér saman þegar svona at-
burðir verða,“ sagði Lúðvík.
----------------
Einn af elstu starfs-
*
mönnum Isfélagsins
Jóhann Pétur Andersen, framkvæmdastjóri fsfélags Vestmannaeyja
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Horft til austurs og er húsnæði Isfélagsins fremst á myndinni. Austan við það eru hús Vinnslustöðvarinnar og Fiskimjölsverksmiðjan.
Strandvegur er til hægri á myndinni, sunnan við hús ísfélagsins.
Allt hús-
næðið er
í raun ónýtt
AÐ SÖGN Jóhanns Péturs Ander-
sen, íramkvæmdastjóra ísfélags
Vestmannaeyja, er tjónið af völdum
stórbrunans nær einum milljarði
króna en tveimur, en eftir á að meta
það nákvæmlega. Bolfisklínan og
frystiklefar eru ónýtir, sem og kara-
geymsla. Það sem er heillegt og nýt-
anlegt sem bráðabirgðahúsnæði er
suðvesturhluti byggingarinnar. Þai’
eru vélar til pökkunar á síld og loðnu.
Móttökuhús er einnig heillegt, að
sögn Jóhanns, og vonir bundnai’ við
að koma því í lag. Þá er töfluherbergi
heillegt.
Jóhann Pétur segir að þetta veki
vonir um að stuttan tíma taki að koma
upp viðunandi aðstöðu áður en loðnu-
vertíðin hefst í febrúar á næsta ári,
þannig að hægt verði að frysta loðnu
og loðnuhrogn næsta vor.
„Við höíúm ekki langan tíma til að
komast að niðurstöðu og gera þetta
klárt. Ljóst er að innan þess tíma
þurfum við að ná okkur í frystiskápa
og koma þeim upp. Annað vonumst
við til að ná að þrífa, stilla og leggja
rafmagn í. Ailar raflagnir að þessum
tækjum eru að sjálfsögðu ónýtar,“
segir Jóhann Pétur í samtali við
Morgunblaðið.
Hann telur að i raun sé allt húsið
ónýtt, þótt reynt verði að koma upp
bráðabirgðaaðstöðu fyrir næstu ver-
tíð. Um lausnir til framtíðar segh’
hann ákvarðanir ekki liggja fyrir. Jó-
hann Pétur vonast til að fyrirtækið
geti leyst sín mál sjálft, ekki þurfi að
koma til þess t.d. að fyrirtækið fái inni
með aðstöðu hjá Vinnslustöðinni í
Eyjum. Hann segir Eyjamenn ekki
þekkta fyrir að gefast upp, samtaka-
máttur fólks sé mikill. En til að móta
framtíðarstefnu þurfi menn nokkra
daga.
Hann segir brunann koma upp á
slæmum tíma, þeim næstversta, en
verst hefði verið ef svona lagað hefði
komið upp í lok janúar. Loðnuvinnsla
hafi borið uppi rekstur félagsins til
þessa. Isfélagið gerir nú út sex skip,
þar af fjögur nótaskip. Eitt nótaskip-
anna kom til Eyja í fyrrinótt með síld-
arafla og tveir togarar eru á bolfisk-
veiðum. Hjá fyrirtækinu starfa um
115 manns og þegar hann er spurðm-
um atvinnuhorfur segist Jóhann Pét-
ur vonast til þess að einhverjir fái
vinnu við hreinsunarstörf á næstu
dögum. Ljóst sé að bruninn komi
harðai’ niður á sumum fjölskyldum
þai’ sem kannski tveir til þrír ættliðfr
starfi hjá ísfélaginu. Fyrstu dagamir
fari í það að loka því húsnæði sem
hægt er að nýta undir loðnufryst-
inguna. Um leið og leyfi fáist verði
farið í að hreinsa aðra hluta bygging-
arinnar.
Finnum fyrir samtakamætti
Jóhann segist hafa fengið hring-
ingu vegna brunans um tíuleytið og
verið sagt að kviknað væri í vinnslu-
stöð fyrirtækisins. „Ég leit út um
gluggann heima hjá mér og sá að eld-
tungur stigu upp úr þakinu. Ég dreif
mig á staðinn og var þar meira og
minna fram undir morgun. Þetta er
óskemmtileg reynsla. Manni finnst
maður svo vanmáttugur þegar svona
lagað á sér stað,“ segir Jóhann Pétur
en ásamt eigendum félagsins og öðr-
um stjómendum fylgdist hann með
slökkvistarfi á vettvangi fram eftir
nóttu aðfaranótt sunnudags.
Jóhann Pétur vill koma þakklæti á
framfæri við þá fjölmörgu aðila sem
hafi sýnt ísfélaginu velvilja og stuðn-
ing. Nefnir hann einkum Vestmanna-
eyjabæ, Eimskip, Vinnslustöðina,
Tryggingamiðstöðina og verkalýðs-
félögin í Eyjum en að auk þess hafi
fjölmargir aðrir boðið fram aðstoð við
þessar erfiðu aðstæður.
„Við finnum fyrfr miklum stuðningi
og samtakamætti. Vestmannaeyingar
hafa ávallt komið sterkir út úr álollum
sem þessum,“ segir Jóhann Pétur.
Enn eitt
áfallið sem
dynur yfír
HALLDÓR Haraldsson hefm’ verið
starfsmaður ísfélagsins í rúm 20 ár
og er meðal þeirra elstu í dag. Byrjaði
fyrst hjá Hraðfrystistöðinni, sem síð-
ar sameinaðist Isfélaginu sem kunn-
ugt er. Hann hefur verið starfsmaður
í landi á lyfturum og vörubílum. I
samtali við Morgunblaðið segh’ hann
það ömurlegt að hafa horft upp á
byggingu fyrfrtækisins brenna. Hann
var staddur í afrnælisboði þegar
fregnir bárust af brunanum.
„Þegar við vorum búin að fá þetta
staðfest fór maður strax heim að hafa
fataskipti en maðm- gat ekkert gert,
annað en að horfa á þessi ósköp. Þetta
var alveg voðalegt. Það hefur verið
gott að starfa hjá eigendum félagsins.
Þetta er enn eitt áfallið sem dynur yf-
ir og var ekki til að bæta ástandið. Én
mér heyrist að allir séu sammála um
að drífa í hlutunum og byggja upp að
nýju,“ segir Halldór, en hann mun fá
vinnu við hreinsunarstarfið á næstu
dögum. Sonur hans vinnur einnig hjá
Isfélaginu, við hausunarvél, og segir
Halldór óvíst með atvinnuhorfur
hans.
Gefðu
Petil HÖFU0UÖS
fyrir jeppamenn
og göngugarpa
Verð frá 1.010 kr
Lofoten fóðraðir KULDAGALLAR í 3 Litum
Pilot loðfóðraðir MITTISJAKKAR með vasa fyrir GSM síma
GÖNGUSKÓR, vaxborið leður og öndunarfilma
VASAUÓS, níðsterk og vatnsþétt
allt fyrir öryggið
SKEIFAN 3 REYKJAVÍK S(MI 588 5080 FAX 568 0470
Peltor
HEYRNARHLÍFAR
með innbyggðu FM útvarpi
fyrir tónelska
Verð 9.649 kr.
nytsama gjöf