Morgunblaðið - 12.12.2000, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Selur lúðuseiði
fyrir um 400
milljónir króna
FISKELDI Eyjafjarðar hf. hefur
gert samning við Hydro Seafood í
Rogalandi um að selja norska fyr-
irtækinu 1,5 milljónir lúðuseiða á
næstu fimm árum. Söluverðmætið er
rúmlega 400.000 milljónir króna, að
sögn Ólafs Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra Fiskeldis Eyjafjarð-
ar.
Ólafur segir að viðræður hafi stað-
ið yfir að undanfömu og samningur
gerður til fimm ára. í ár fara 200.000
seiði og fjölgar þeim um 50.000 á ári
en síðasta ár samningsins fá Norð-
mennimir þvx 400.000 seiði. Hann
segir að verðið sé ekki sett í sjálfan
samninginn en verðmætið sé rúm-
lega 400.000 milljónir króna.
Að sögn Ólafs er stefnt að því að
auka framleiðsluna í eldisstöðinni á
Hjalteyri nokkuð hratt á komandi
árum og gangi allt samkvæmt áætl-
un verður umsamið sölumagn aðeins
hluti framleiðslunnar. Ennfremur
stendur til að auka framleiðsluna í
eldisstöðinni í Þorlákshöfn.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Bænastund
við Kúagerði
BYRGIÐ, kristilegt líknarfélag, stóð
á laugardag fyrir bænastund við
Kúagerði á Reykjanesbrautþar sem
beðið var um vemd yfir ölhun þeim
bifreiðum sem fara um Reykjanes-
braut.
Sr. Gunnþór Ingason, sóknar-
prestur í Hafnarfirði, flutti bæn-
arorð, en bænastundin var haldin í
samvinnu við Umferðarráð, Hafn-
arQarðarkirkju, Friðarboðann, Lög-
regluna í Reykjanesbæ og Krossinn.
Morgunblaðið/Sverrir
Útifundur felagsins Ísland-Palestína á laugardag
Stuðnmgur og samstaða
með Palestínumönnum
UM tvöhundruð manns sóttu útifund
félagsins Ísland-Palestína á Austur-
velli á laugardag, í tilefni intifada-
dagsins 8. desember og mannrétt-
indadagsins 10. desember.
Ávörp fluttu Steingrímur Her-
mannsson, fyrrverandi forsætisráð-
herra, Þórunn Sveinbjamardóttir og
Steingrímur J. Sigfússon alþingis-
menn, sr. Þorbjörn Hlynur Árnason,
formaður alþjóða- og mannréttinda-
nefndar Lútherska heimsambands-
ins, og fundarstjóri var Sveinn Rún-
ar Hauksson, formaður félagsins
Ísland-Palestína. „Það er mjög mik-
ilvægt á þessum tíma að sýna stuðn-
ing og samstöðu með Palestínu-
mönnum og mér þótti vænt um hvað
þessi fundur var vel sóttur," segir
Sveinn Rúnar. „Þarna var fyrst og
fremst verið að minnast fjölda bama,
unglinga og fullorðinna sem fallið
hafa fyrir byssukúlum og sprengjum
ísraelshers undanfarnar tíu vikur.
Og við voram að taka undir þær
kröfur sem Palestínumenn leggja
fram og era allar á grandvelli álykt-
ana Sameinuðu þjóðanna. Kröfur um
að hemáminu verði aflétt, um rétt
flóttamanna til að snúa heim aftur og
um rétt Palestínumanna til að stofna
sjálfstætt fullvalda ríki.“
Sveinn Rúnar segir að félagið Is-
land-Palestína standi nú fyrir söfnun
til að sýna Palestínumönnum stuðn-
ing í verki, enda sé þörf á hjálp og
neyðaraðstoð mikil.
Þegar er búið að afhenda fyrsta
framlagið frá söfnuninni til tveggja
sjúkrahúsa í Gazaborg og Jerúsalem
og samtaka sem sjá um heilsugæslu,
meðal annars í flóttamannabúðum.
Ver doktorsritgerð
sína við læknadeild HI
STEINUNN Thorlac-
ius ver doktorsritgerð
sína við læknadeild
Háskóla íslands í há-
tíðarsal HÍ laugardag-
inn 16. desember. And-
mælendur eru dr.
Mary-Claire King, pró-
fessor við University
of Washington í
Seattle, og dr. Jón Jó-
hannes Jónsson, dós-
ent við læknadeild HÍ.
Deildarforseti lækna-
deildar stýrir athöfn-
inni.
Ritgerðin ber heitið
„The involvement of
BRCA2 in breast cancer in Ice-
land“ eða „Hlutur BRCA2 gensins
í brjóstakrabbameinum á íslandi".
Doktorsverkefnið var unnið á
Rannsóknastofu í sameinda- og
frumulíffræði hjá Krabbameins-
félagi íslands undir leiðsögn dr.
Jórannar Erlu Eyfjörð dósents í
erfðafræði. Ritgerðin byggist á
fimm greinum sem hafa birst í við-
urkenndum tímaritum á sviði
erfðafræði og læknisfræði.
I fréttatilkynningu segir:
„Brjóstakrabbamein er algengasta
krabbamein í íslenskum konum og
árlega greinast um 140 konur með
þennan sjúkdóm. Þekktir eru
nokkrir þættir sem auka áhættu á
sjúkdómnum, s.s. aldur, fjölskyldu-
saga um brjóstakrabbamein og
aldur við fæðingu fyrsta barns.
Áætlað hefur verið að um tíunda
hluta brjóstakrabbameina megi
rekja til ættlægra breytinga í
brj óstakrabbameins-
genum. Fundist hafa
tvö gen sem tengjast
ættlægum brjósta-
krabbameinum,
BRCAl og BRCA2.
Enn er margt á
huldu um eðlilega
starfsemi þessara
gena en að öllum lík-
indum koma þau að
viðgerð á erfðaefninu
og stjómun á frumu-
hring.
Tilgangur rann-
sóknarinnar var að
athuga hvort gallar í
BRCA2-geninu
tengdust ættlægum brjósta-
krabbameinum á íslandi. Áður
hafði verið sýnt fram á að breyt-
ingar í BRCAl-geninu væru sjald-
gæfar í íslenskum brjóstakrabba-
meinsfjölskyldum. Rannsóknirnar
sýndu að meginþorri íslenskra fjöl-
skyldna með háa tíðni af brjósta-
krabbameini hafði sameiginlega
setröð umhverfis BRCA2-genið
sem benti til að þessir einstakling-
ar hefðu allir erft stökkbreytingu
frá sameiginlegum forföður. Með
því að skoða endurröðun á setröð-
inni tókst að þrengja að því svæði
sem innihélt BRCA2-genið.
Árið 1995 tókst stórum hópi vís-
indamanna víða að úr Evrópu og
Bandaríkjunum að klóna BRCA2-
genið. Þá var hafist handa við að
leita að stökkbreytingu í geninu í
íslenskum sjúklingum. Fljótlega
fannst úrfelling á fimm basapörum
framarlega í geninu sem veldur því
að önnur samsæta gensins myndar
ekki starfhæft prótein. Breytingin
er svokölluð landnemastökkbreyt-
ing, þ.e. allir arfberar hafa erft
hana frá sameiginlegum forföður.
í verkefninu var einnig gerð
rannsókn á krabbameinsáhættu
aríbera íslensku stökkbreytingar-
innar. Áhættan reyndist vera um
40% við sjötugt, sem var lægra en
erlendar rannsóknir höfðu sýnt
fram á. Frekari rannsóknir fara nú
fram hjá Krabbameinsfélaginu á
áhrifum þessarar stökkbreytingar
á krabbameinsfrumur auk þess
sem stór styrkur hefur fengist til
að rannsaka frekar áhrif ýmissa
áhættuþátta bæði í arfberum
BRCA2-stökkbreytingar og í
miklu stærri hópi þeirra brjósta-
krabbameinssjúklinga sem ekki
hafa neina stökkbreytingu í þessu
geni.“
Námsferill
Steinunn er fædd í Reykjavík
árið 1966. Hún lauk stúdentsprófi
úr náttúrafræðideild Menntaskól-
ans í Reykjavík árið 1986, B.Sc-
prófi í líffræði frá Háskóla fslands
árið 1990 og 30 eininga verkefni í
erfðafræði frá líffræðiskor HÍ árið
1991. Hún starfaði við rannsóknir
á brjóstakrabbameinum hjá
Krabbameinsfélagi íslands frá
1989 til 1999 en starfar nú við
krabbameinsrannsóknir hjá líf-
tæknifyrirtækinu Urði Verðandi
Skuld.
Sambýiismaður hennar er Guð-
jón Ingi Eggertsson, í meistara-
námi í umhverfisfræði við HÍ.
Steinunn Thorlacius
Sandfok gæti
reynst ferjunni
skeinuhætt
SANDFOK á Bakkafjöra gæti
reynst erfitt viðureignar við ferju-
siglingar á milli lands og Vestmanna-
eyja verði farin sú leið að notast við
loftpúðaskip. Að sögn Áma Erlends-
sonar, hreppstjóra Austur-Land-
eyja, er sandurinn í fjöranni laus í
sér og fljótur að rjúka upp þegar
vind hreyfir, enda hafi sandfok áður
eyðilagt vélar loftpúðaskips sem
gerð var tilraun með fyrir nokkram
áram.
Alþingi samþykkti í síðustu viku
ályktun um að samgönguráðherra
yrði falið að hlutast til um við Sigl-
ingastofnun íslands, að hún hefji
sem fyrst rannsóknir á ferjustöðu við
Bakkafjöru í tengslum við ferjuleið
frá Vestmannaeyjum, en frá Bakka-
fjöra til Eyja era um 11 kílómetrar.
Ámi Erlendsson segir að sér lítist
vel á að þessi mál verði skoðuð, en
þetta sé ennþá á framstigi og því lítið
hægt að segja til um hugsanlega
möguleika á ferjustað á Bakkafjöru,
þar sem að loftpúðaskip gæti lagst að
landi.
„Ég held að þetta sé allt í lagi í
góðu veðri, en ég held að ekki verði
hægt að treysta á þetta í hvernig
veðri sem er. Hann er svo laus sand-
urinn þarna, hann rýkur alveg um
leið og hreyfir vind. Það er það sem
maður er hræddur við.“
Að sögn Árna væri líklega öragg-
ast að sigla upp Álana, þar sem að
Markarfljót rennur til sjávar, en þar
væri hugsanlegt að fá frið fyrir sand-
fokinu. „Fyrir nokkrum árum var
gerð tilraun með loftpúðaskip þarna
á milli, en sandurinn smaug inn í
skipið og eyðlagði vélarnar, því vélin
dró sandinn inn á sig. Ég er því
hræddur um að þarna þurfi að vera
gott veður.“
Ofan við Bakkafjöru er flugvöllur
og segir Árni að talsverðar samgöng-
ur séu við Vestmannaeyjar frá þeim
velli. „Það era óhemju samgöngur
þar á millli, þetta er einn af fjölmenn-
ari flugvöllum landsins varðandi um-
ferð. Þetta er svo stutt, ekki nema
5-7 mínútur sem tekur að fljúga
þama á milli.“