Morgunblaðið - 12.12.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 31
ERLENT
Þrettán mönnum af-
hent N óbelsverðlaun
NÓBELSVERÐLAUNIN voru af-
hent við hátíðlegar athafnir í
Stokkhólmi og Osló á sunnudag.
Karl Gústaf Svíakonungur afhenti
tólf mönnum Nóbelsverðlaunin
fyrir vísindi, hagfræði og bók-
menntir í Stokkhólmi og Haraldur
Noregskonungur afhenti Kim
Dae-jung, forseta Suður-Kóreu,
friðarverðlaunin í Ósló.
Kim, sem er 75 ára, fékk verð-
launin fyrir störf í þágu lýðræðis
og mannréttinda í Asíu, einkum
fyrir að stuðla að nánari tengslum
lands síns við Norður-Kóreu.
Kim fór lofsamlegum orðum um
kommúnistastjórnina í Norður-
Kóreu fyrir að draga úr spennu í
samskiptum ríkjanna. Hann lofaði
að helga líf sitt baráttunni fyrir
friði og mannréttindum í heim-
inum og fyrir sáttum milli kóresku
rikjanna. Haraldur konungur
óskar hér Kim til hamingju við
verðlaunaafhendinguna í Ósló.
Kínverski sendiherrann í Stokk-
hólmi afþakkaði boð um að vera
viðstaddur verðlaunahátíðina
vegna óánægju með að kínverski
rithöfundurinn Gao Xingjian
skyldi fá bókmenntaverðlaunin í
ár. Er þetta í fyrsta sinn sem rit-
höfundur fæddur í Kína fær bók-
menntaverðlaun Nóbels. Gao fór
frá heimalandi sínu eftir fjölda-
morð kínverska hersins á mótmæl-
endum á Torgi hins himneska frið-
ar í Peking 1989 og verk hans hafa
verið bönnuð í Kína frá 1986. Gao
lýsti erfiðleikum si'num sem rithöf-
undar í Kína og síðar sem útlaga
og sagði að það væri ævintýri Ifk-
ast að hann skyldi hafa fengið virt-
ustu bókmenntaverðlaun hcims.
Pakistan
Sharif
sendur
í útlegð
íslamabad. AP, AFP.
VTRTUR lögíræðingur í Pakistan,
M.D. Tahir, höfðaði í gær mál gegn
herforingjastjóm landsins vegna
óvæntrar ákvörðunar hennar um að
leysa Nawaz Sharif, fyrrverandi for-
sætisráðherra, úr haldi og senda hann
í útlegð til Sádi-Arabíu.
„Stjómin hefur sleppt dæmdum
glæpamanni með ólöglegum hætti,“
sagði lögfræðingurinn.
Sharif var steypt af stóli í valdaráni
hersins, undir forystu Pervez Mush-
arrafs hershöfðingja, fyrir fjórtán
mánuðum og var dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir mannrán og spillingu.
Fangelsisdómurinn var mildaður á
sunnudag og Sharif var sendur með
flugvél til Sádi-Arabíu. Honum var
hins vegar gert að greiða andvirði 700
milljóna króna í sekt, auk þess sem
hann má ekki gegna opinberu emb-
ætti í 21 ár. Stjómin gerði eignir hans
í Pakistan upptækar.
„Ef hægt er að láta Sharif lausan
hvers vegna ættu þá aðrir glæpa-
menn að veslast upp í fangelsum,
einkum þeir sem hafa verið dæmdir
fyrir minniháttar glæpi,“ sagði Tah-
ir.
Margir pakistanskir fjölmiðlar
tóku í sama streng og sögðu ákvörð-
unina sýna að Musharraf hershöfð-
ingi stæði ekki við loforð sín um að
skera upp herör gegn spillingu. Þeg-
ar hershöfðinginn rændi völdunum
lofaði hann að saksækja spillta emb-
ættismenn áður en lýðræði yrði kom-
ið á að nýju og sakaði Sharif um að
hafa gerst sekur um mikla spillingu,
eyðilagt stofnanir landsins og grafið
undan stjórnarskránni.
Stjórnmálamenn, sem hafa stutt
herferð Musharrafs gegn spillingu,
sögðust hafa orðið fyrir miklum von-
brigðum. „Stjómin þarf að útskýra
hvemig þessi ákvörðun þjónar hags-
munum Pakistans," sagði einn þeirra,
Imran Khan, leiðtogi Réttlætishreyf-
ingarinnar. „Þetta dregur úr trúverð-
ugleika stjómarinnar og hún ætti að
boða til kosninga strax.“
Modet 6228DWE
14.4 v Rafhlöðuborvél Aukarafhlaða / taska
JÓLATILBOÐSVERÐ
15.900,-
ÞÓR HF
Rcyfcjav* Armula 11 - S»ml66S-l&00
AkuwyfL- lónthmUm » jjMgWWj
Komdu í reynsluakstur
Grand Vitara er þekktur sem aflmikill, sterkbyggður jeppi, byggður
á grind og með hátt og lágt drif. I nýjum Grand Vitara eru m.a.
ABS-hemlar með EBD-hemlajöfnun, aukið farþegarými, umhverfiS'
vænni vél og fleiri spennandi nýjungar. Líttu við og reynsluaktu
liprum og spameytnum alvöru jeppa.
3-dyra: frá 1.840.000,-
5-dyra: frá 2.190.000,-
5-dyra: 23.510,- á mánuði
Dæmi um meðalafborgun miðað við 1.100.000 kr.
útborgun (t.d. bíll tekinn upp í), I 60 mánuði.
$ SUZUKI
■X**........
SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sfmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. SUZUKI BILAR HF
Hafnarfjörður: GuðvarðurElfasson, Grænukinn 20,sfmi 555 15 50. Hvammstangi: Blla- og búvélasalan, Melavegi 17,sfmi 451 2Z30. gk£Mfunni yj Sími 568 51 00
Isafjörður: Bílagaröur ehf., Grænagaröi, slmi 456 30 95. Keflavik: BG bllakrlnglan, Grófinni 8, simi 421 12 00. www SUZtlkibilar ÍS