Morgunblaðið - 12.12.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIO.TTTDAGTTR 12. DERRMBER 2000 53
MENNTUN
Associated Press
Islenskir friðarbekkir geta nú sameinast á vef hjá Skólatorg.is og haft samstarf við friðarbekki víða um heim.
Skólavefur handa
friðarbekkium
Skólatorgið hefur opnað sérstakan vef
handa friðarbekkjum. Þar geta þeir sam-
einað krafta sína og sinnt verkefnum í
heimabyggð. Friðarbekkir víða um land
hvetja til dags friðar 1. janúar 2001
FRIÐARVEFUR fyrir bekki í
grunnskólum landsins var opnaður
um helgina á Skólatorginu á Netinu,
www.skolatorg.is. Markmið er að
þar geti íslenskir friðarbekkir haft
bækistöðvar sínar, en í nóvember
síðastliðnum hvatti friðarbekkurinn
í Melaskóla, 6.E, bekki í hverju
byggðalagi til að til að taka saman
höndum og mynda friðarbandalag.
Einnig hafa börn í 5. bekk grunn-
skólans, sem fóru á friðarsýninguna
Rómeó og Júlía og Amor eftir
Hörpu Arnardóttur í Borgarleikhús-
inu, verið hvött til að gerast frið-
arbekkir.
Friðarbekkir geta einnig skráð
sig á Netinu í alþjóðleg samtök frið-
arbekkja og gengið í alþjóðleg sam-
tök sem eru vettvangur fyrir börn til
að láta rödd sína heyrast og hafa það
á stefnuskrá sinni að gera fyrsta dag
hvers árs að degi friðar.
Tilefni friðarbekkjavefjar Skóla-
torgsins er starf í grunnskólum
vegna alþjóðaárs Sameinuðu þjóð-
anna um friðarmenningu og afnám
ofbeldis, og að áratugurinn 2001-
2010 er helgaður friðarmenningu
börnum til handa og afnám ofbeldis.
Árið 2000 hafa börn staðið fyrir
svokallaðri „friðarmínútu" sem flutt
var í ýmsum grunnskólum 19. sept-
ember í tilefni af friðardegi SÞ.
Einnig hefúr íslenska UNESCO-
nefndin hvatt foreldra, kennara og
nemendur í grunnskólum til að
kynna sér og skrifa undir Manifesto
2000 eða yfirlýsingu SÞ á Netinu um
friðarmenningu (www.unesco.org/
manifesto2000). Börn hafa vakið at-
hygli almennings á yfirlýsingunni og
nú hafa 513 íslendingar skrifað und-
ir. Samið var friðarljóð og borgar-
stjórinn í Reykjavík var hvattur til
að lýsa 1. janúar 2000 sem Dag frið-
ar.
Friðarbekkjavefurinn á Skóla-
torginu er til að styðja starf frið-
arbekkja og festa það í sessi í skól-
um. Starfið á bæði að geta verið
skemmtilegt og gefandi. Það felst í
því að standa fyrir einhverju sem
hefur góð áhrif á umhverfið eða leið-
ir til betri heims fyrir börn. Núna
stendur yfir það verkefni friðar-
bekkja að hvetja sveitarfélög hvar-
vetna á landinu til að lýsa 1. janúar
2001 sem dag friðar, og að brýna
íbúana til að fagna nýju ári með frið
Hvers vegna að skrá bekkinn?
• Vegna þess að friðarvefurinn á
Skólatorgi er vettvangur fyrir
börn til að láta rödd sína heyrast,
en Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst
því yfir að skoðanir barna séu
jafngildar og fullorðinna og að það
eigi að hlusta á þær ef finna eigi
góðar lausnir á stríði.
• Einn dag á ári, þriðja þriðjudag í
september, er lögð sérstök
áhersla á sjónarmið barna með því
að halda „Hlustið á börnin-dag-
inn“ (Hear the Children Day).
Annan dag, 1. janúar, er dagur
friðar haldinn hátíðlegur fyrir til-
stuðlan barna.
• Vegna þess að börn geta tekið þátt
í því að breyta heiminum til betri
vegar.
• Vegna þess að börn í of mörgum
löndum þjást vegna matarskorts
og stríðsástands.
• Vegna þess að þá geta bekkir tek-
ið þátt í skemmtilegum uppákom-
um.
• Vegna þess að þá geta böm skipst
á hugmyndum og látið gott af sér
leiða í sínu hverfi eða byggðarlagi.
í hjarta. Áætlað er svo að í mars
2001 verði haldin hátíð friðarbekkja
á landinu í Borgarleikhúsinu, og ef
til vill víðar.
Alþjóðlegu grasrótarfriðarsam-
tökin One Day in Peace, sem frið-
arbekkir geta tengst, gengu á árinu
til liðs við samtökin Millennium
Meal (www.millenniummeal.org)
hafa þau tekið saman höndum um að
festa 1. janúar í sessi sem dag allra
þjóða heims til brjóta saman brauð
til matai’ með frið í huga, að deila
gæðum til annarra með sátt í huga.
Dagur friðar nýtur samþykkis SÞ
og var haldinn 1. janúar 2000 í
a.m.k. 135 löndum. Núna er búist við
að hann verði haldinn í enn fleiri
löndum og borgum. Á þessu ári var
hann í Reykjavík, en ef til vill í fleiri
bæjum og sveitum 01.01.01.
Hugmyndin um friðarbekki lýtur
einnig að innra skólastarfi. Hægt er
að vinna með hugtök eins og um-
burðarlyndi, mannorð, ofbeldi, hug-
rekki og einelti í heimspekilegum
samræðutímum. Þá má vinna með
orð eins og frið í íslensku og sagn-
fræði. í ensku gefst svo tækifæri til
að skrifast á við friðarbekki í ensku-
mælandi löndum. Og vegna þess að
samskiptin fara fram á Netinu gefst
tölvufræðikennurum kostur á að
nota hugmyndina. Þá er hugmyndin
talist nýtast vel í samstarfi foreldra
og kennara.
Vefur friðarbekkja var opnaður
um helgina og er þar form til að skrá
bekki. Búist er við að bekkir byrji
fljótlega að skrá sig.
Lýðskólinn
á Sjálandi
LÝÐSKÓLINN hefur hafið
samstarf við Vallekilde Höj-
skole á Sjálandi í Danmörku.
Skólinn hefst 4. janúar nk.
Oddur Albertsson, skólastjóri
Lýðskólans, segir skólann í
Danmörku mjög spennandi,
með smiðjum og verkstæðum
ýmiskonar en þar er t.d. fjöl-
raiðlalfna. Heimasfða skólans
er www.vallekildeh.dk. Nem-
cndur fá aðstöðu, kennslu,
hcrbergi og fullt fæði gegn
7.900 kr. greiðslu á viku. Þeir
fá hins vegar ferðastyrki.
Oddur veitir upplýsingar í
síina 891-9057 og á netfanginu
oddura@itn.is.