Morgunblaðið - 12.12.2000, Síða 62
f?2 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
KRABBAMEINSFELAGIÐ
MORGUNBLAÐlD
Lýðheilsa og starfsemi
Krabbameinsfélagsins
Með hliðsjón af því
að Krabbameinsfélagið
verður 50 ára á árinu
•2001 er vel við hæfi að
'upplýsa á hvern hátt
starfsemi félagsins
tengist almennri lýð-
heilsu, útskýra grund-
vallaratriði krabba-
meinsleitar, hvers
vegna leit hefúr aðal-
lega beinst að konum
en ekki körlum og
hvaða nýjunga megi
vænta hvað leitarstarf-
ið varðar. Þessi grein
er hin íýrsta í röð fimm
greina og fjallar um
það hvernig starfsemi
félagsins tengist lýðheilsu.
Fjölgun krabbameina
Á Norðurlöndunum greindist á
tímabilinu 1983-87 um fjórði hver
einstaklingur undir 75 ára aldri með
krabbamein eða samtals um 91.000
manns. Á sama tímabili dóu um
52.000 manns af völdum krabba-
meina og svarar það til um 22% allra
dauðsfalla á tímabilinu. Fram til árs-
ins 2010 er talið að nýgengi krabba-
meina muni aukast um 37% og dán-
artíðni um 32% og er þessi hækkun
talin verða nokkru meiri meðal
kvenna en karla. Þessar tölur eru
uggvekjandi og leiða hugann að því
hvort samfélag okkar sé í stakk búið
að taka við öllum þessum nýju til-
fellum sem mörg hver krefjast
þungrar og kostnaðarsamrar með-
ferðar.
Heilbrigðisútgjöld
Heilbrigðisyfirvöld kveinka sér
við þeim kostnaði sem fylgir nútíma-
heilbrigðisþj ónustu
(um 8% vergrar þjóð-
arframleiðslu) og hafa
beitt vissri en oft
óljósri forgangsröðun
við úthlutun fjármagns
til heilbrigðisverkefna.
í slíkri forgangsröðun
er ekki óeðlilegt að þau
verkefni fái forgang
sem snerta meðferð
sjúkra og fara ríflega
80% heilbrigðisút-
gjalda til sjúkrahús-
þjónustu, heilsugæslu
og lyfja. Þótt hluti fjár-
veitinga til heilsugæslu
fari í fyrirbyggjandi
starfsemi er ljóst að að-
eins lítill hluti allra heilbrigðisút-
gjalda rennur til slíkrar þjónustu.
Aukning á nýgengi krabbameina er
því umhugsunarverð þegar haft er í
huga að fullyrt hefur verið að unnt sé
að fækka verulega slíkum tilfellum
og dauðsföllum af þeirra völdum með
aukinni heilsueflingu og forvörnum.
Sjúkrahúsþjónusta
Bætt sjúkrahúsþjónusta hefur
vissulega leitt til betri lifunar hjá
þeim sem gi-einst hafa með krabba-
mein á Norðurlöndum. Þó að þessi
bati komi fram í öllum aldurshópum
er hann aðallega bundinn einstak-
lingum undir 50 ára aldri og tengist
þar að mestu betri meðferð tiltek-
inna sjúkdóma, svo sem hvítblæðis,
eitlakrabbameins og krabbameins í
eistum. Á Norðurlöndunum er talið
að jafnari og bætt sjúkrahúsþjón-
usta geti leitt til um 5-6% frekari
lækkunar á dánartíðni krabbameina.
Með tilkomu nýrra líftæknilyrir-
tækja hefur mikið verið rætt og ritað
um aukna möguleika til að greina
genaafbrigði sem tengjast myndun
krabbameina. Þrátt fyrir betri
greiningu slíki-a gena er þó enn
óljóst á hvern hátt þær uppgötvanir
geti leitt til þess að krabbameinum
fækki. Talið er að rekja megi um 10-
15% krabbameina til ættgengra af-
brigðilegra gena. Sameindalíffræði
er annað rannsóknarsvið sem m.a.
byggir á rannsóknum á próteinum
æxlisfruma, svonefndum sameinda-
æxlisvísum. Þessar rannóknir vekja
vonir um að finna megi sameindir
sem auðveldlega megi greina í blóði
eða þvagi og leitt geti til bættrar
greiningar krabbameina.
Heilsuefling og forvarnir
Heilsuefling (health promotion) og
forvarnir (health prevention) eru tal-
in geta leitt til 70-75% lækkunar á
nýgengi krabbameina auk lækkunar
á dánartíðni hjá þeim sem fá sjúk-
dóminn. Skil milli heilsueflingar og
forvarna eru oft óljós og markmiðin
samtvinnuð. Heilsuefling er skil-
greind sem aðgerð er beinist að ein-
staklingnum og miðar að því að auka
þekkingu hans og skapa þær aðstæð-
ur í samfélaginu er auðvelda honum
að taka sjálfstæðar ákvarðanir um
aðgerðir til að bæta heilsu sína.
Heilsuefling beinist m.a. að því að
fræða einstaklinginn um mikilvægi
hæfilegra líkamsæfinga, reglulegrar
þátttöku í krabbameinsleit og hollr-
ar fæðu og sýna honum fram á skað-
semi reykinga, óhóflegrar sólargeisl-
unar og ofneyslu áfengra drykkja.
Forvarnir eru aðgerðir sem beinast
að öllu samfélaginu eða hópi einstak-
linga með það fyrir augum að draga
úr líkum á því að menn verði fyrir
áreiti er leiði til krabbameina eða
annarra sjúkdóma og bæta og
styrkja heilsu þeirra eftir hefð-
bundna meðferð.
Forvömum má skipta í fjóra
flokka eftir markhópi aðgerðar og
Sjúkdómar
Erfðagjafir og fjár-
framlög almennings,
segir Kristján Sigurðs-
son, tryggja sem stend-
ur allan annan rekstur
og þróunarstarf.
með tilliti til þess hvar aðgerðin
kemur inn í sjúkdómsferli. Fyrstu
tveir flokkarnir eru taldir leggja
mest af mörkum til að bæta og efla
heilsu í samfélaginu í heild en seinni
tveir flokkamir beinast að því að efla
og bæta heilsuna hjá hópum einstak-
linga.
Fmmstig forvarna (primordial
prevention) beinist að því að koma í
veg fyrir aðstæður í samfélaginu
sem stuðlað geta að myndun krabba-
meina eða annarra sjúkdóma (und-
erlying conditions leading to caus-
ation). Hér er t.d. átt við lög og
reglugerðir hins opinbera er tak-
marka eða banna viss efni í vatni,
andrúmslofti eða fæðutegundum
sem hafa eða geta haft bein skaðleg
áhrif á þá sem verða fyrir áreiti
slíkra efna.
Fyrsta stig forvama (primary
prevention) beinist að ákveðnum or-
sakaþáttum er valda krabbameini
eða öðmm sjúkdómum (speeific
causal factors). Hér er t.d. átt við
bólusetningar, aðgerðir til að draga
úr reykingum og aðgerðir til að
draga úr hættu á eyðnismiti eða lifr-
arbólgu.
Annað stig forvarna (secondary
prevention) beinist að því að greina
ákveðna sjúkdóma á forstigi eða á
hulinstigi, það er að segja áður en
sjúkdómurinn er farinn að gefa sig
til kynna með einkennum. Dæmi um
slíka aðgerð er leit að legháls- og
brjóstakrabbameinum.
Þriðja stig forvarna (tertiary pre-
vention) beinist að því að efla and-
legt og líkamlegt atgervi einstak-
linga eftir að þeir hafa gengið í
gegnum erfiða hefðbundna meðferð
gegn krabbameinum eða öðrum
sjúkdómum. Markmiðið er að koma í
veg fyrir eða minnka fylgikvilla með-
ferðar og draga úr líkum á eða
seinka mögulegri endurkomu sjúk-
dómsins. Oft er erfitt að greina hve-
nær slík forvörn tekur við af hefð-
bundinni meðferð.
Áhrifamáttur einstakra ofan-
greindra þátta til lækkunar á ný-
gengi krabbameina er mismikill en
sem dæmi má nefna að reiknað hefur
verið út að takist að uppræta reyk-
KRABBAMEINSFÉLAG íslands verður 50 ára á næsta ári. í því tilefni birt-
ir Morgunblaðið fimm greinar ritaðar af Kristjáni Sigurðssyni, yfirlækni
Leitarstöðvar. Þeim er ætlað að upplýsa lesendm- um félagið og starf þess í
þágu almennrar lýðheilsu. Fyrsta greinin fer hér á eftir:
Kristján
Sigurðsson
Skipurit Krabbameinsfélags íslands
Útgáfudeild
Kynning
Bókasafn
Heimahlynning
Krabbameinsráðgjöfin
Félagsstarf
Leitarstöð
Frumurannsóknastofa
Röntgendeild
Tölvudeild
Fjármálastjómun
Starfsmannahald
Skrifstofa
Afgreiðsla
Mötuneyti
Fasteign
Krabbameinsskrá
Rannsóknastofa
í sameinda- og
frumulíffræði
Tölvinnustofa
Pútín, Tsjetsjenar og
Hveragerði á Kamtsjatka
Á FERÐ sinni í Moskvu fyrir skömmu átti Árni Bergmann viðtal við Júrí
Reshetov, fyrrum sendiherra Rússlands á íslandi, og ræðir hann um ástand
mála í heimalandi sínu.
Júrí Reshetov og Nína, kona hans. Morgunbiaðið/RAX
Hvers vegna varð ekki úr því að
íslendingar tækju þátt í því að reisa
stórt og mikið Hveragerði á Kamtsj-
atkaskaga? Hvert stefnh- í Tsjetsj-
enalandi? Og við hverju má búast af
Pútín á forsetastóli í Rússlandi?
Um þetta er spurt meðal annars
þegar Júrí Reshetpv, fyrrum sendi-
herra Rússlands á íslandi, er tekinn
tali í Moskvu fyrir nokkru. En fyrst
er frá því að segja, að Reshetov er nú
prófessor við Háskóla alþjóðasam-
skipta, IMO, og var nýlega endur-
kjörinn sem sérfræðingur Samein-
uðu þjóðanna um mál er varða út-
rýmingu kynþáttamisréttis - og það
var mér gleðiefni, segir hann, að
Norðurlönd voru í hópi þeirra 114
ríkja sem studdu framboð mitt. Ég
mun á næstunni hafa framsögu um
skýrslu sem Bandaríkjamenn hafa
lagt inn um kynþáttamál hjá sér, en
eftir henni hefur lengi verið beðið.
Ég hefi farið víða til fyrirlestrahalds
um alþjóðarétt, nú síðast til Indlands
og Kína. Þegar tækifæri gefst reyni
ég að leggja íslandsmálum lið - nú
síðast útgáfu stórrar bókar um jarð-
fræði Islands og skipulagningu
heimsóknar íslenskra lögfræðinga á
næsta ári.
Nýr forseti Rússlands
Þegar spurt er hvar við Rússar er-
um á vegi staddir nú má ekki gleyma
því, að þegar á dögum Gorbatsjovs
voru sett þau lög sem greiddu götu
lýðræði og mannréttindum: lög um
ferðafrelsi, fjölmiðla, samviskufrelsi
og almenn félagasamtök - og ekki
síst þau síðastnefndu tryggðu, ásamt
afnámi ritskoðunar, að Kommúnista-
flokkurinn afsalaði sér þeirri valda-
einokun sem hann hafði haft.
Eftir að frelsi var fengið hófust svo
tilraunir í efnahagsmálum sem í
reynd voru til trafala fyrir þróun lýð-
ræðis. Ég á við prikhvatizatsija
(orðaleikur - í stað privatisatsija sem
þýðir einkavæðing er búið til orð sem
hljómar næstum eins, en er dregið af
sögn sem þýðir að grípa, hrifsa til
sín). Ég á við „gripdeildir" sem sköp-
uðu það sem við köllum kapítalismi
með grimmdarsvip - eða heldur þú
að nokkur starfsmaður í fyrirtæki
nýríkra Rússa þori að minnast á það
að tíl séu samþykktir Alþjóðavinnu-
málastofnunarinnar um réttindi
launafólks? Og ekki bætti það raun-
verulega réttarstöðu almennings að
mikill fjöldi manna stóð slyppur og
snauður eftir þessi umskipti. Allt
þetta létu valdhafar viðgangast - og
á ég þá við mikil áhrif og ítök „fjöl-
skyldunnar" (þ.e.a.s. fjölskyldu og
nánustu samstarfsmanna Jeltsins).
Ég tel að meirihluti Rússa bindi
nú vonir við valdatöku Pútíns. Skoð-
anakannanir sýna, að almenningur
trúir ekki þeim fjölmiðlum sem telja
að forsetinn sæki gegn lýðræðis-
legum réttindum fólks. Eins og fram
kom í síðustu kosningum var engu
líkara en nokkrar sjónvarpsstöðvar í
eigu oligarkha hefðu slegið eign
sinni á málfrelsið í Rússlandi (olig-
arkhar eru nefndir þeir stórríku
menn sem mest hrifsuðu til sín á
valdadögum Jeltsins). Nú hafa yfir-
völd verið að þjarma dálítið að
nokkrum oligörkhum. (M.a. hefur
Gúsinskij, eiganda sjónvarpstöðvar-
innar NTV, verið stefnt fyrir rétt út
af skattamálum o.fl.) En almenning-
ur telur sýnilega ekki að þar með sé
verið að fremja tilræði við málfrelsi
sem er honum dýrmætt og hann
mun aldrei fallast á að afsala sér.
Tökum dæmi af oligarkhanum
Potanin, sem náði undir sig nikkel-
framleiðslunni í Norílsk og þar með
20% af heimsframleiðslu á þessum
málmi fyrir aðeins 200 milljónir doll-
ara. Meira að segja bandarískir sér-
fræðingar telja ekki nema eðlilegt að
slíkur maður greiði drjúgan hluta
þess fjár sem augljóslega var van-
goldið til samfélagsins - og er þá ekki
verið að tala um endurþjóðnýtingu.
Því þegar fjöldinn allur stóð uppi
slyppur og snauður þá er það vita-
skuld tengt því að peningamir lentu í
örfárra manna vösum.
Nýr forseti sýnist ætla að taka á
ýmsum félagslegum nauðsynjamál-
um, það er verið að hækka laun og
eftirlaun, greiða upp vangoldin laun
og gera annað það sem fær jákvæðar
undirtektir.
Mér finnst það væri skynsamlegt í
þágu þeirra umbóta sem við þurfum
að gera að við hefðum sem _mest í
huga reynslu ríkja eins og Islands
þar sem lýðræði er vel virkt og
vandamál vinnumarkaðarins t.d. ein-
att leyst með þríhliða viðræðum sem
rfldð blandar sér í.
íslendingar og Kamtsjatka
ísland - já og þá kemur Kamtsj-
atka upp í hugann sem dæmi um það
hve afleita stefnu svonefndar efna-
hagsumbætur tóku á sínum tíma. Við
heyrum það einatt í fjölmiðlum að
Kamtsjatka sé á veturna neyðar-
svæði vegna kulda og skorts á elds-
neyti. Islendingar vildu á sínum tíma
vera með í því að breyta þessu ríka
héraði í einskonar Hveragerði - með
nýtingu varmaorku til upphitunar,
ylræktar og raforkuframleiðslu. En
yfirvöld á staðnum brugðu fyrir þá
fæti - leynt og Ijóst - og því varð ekk-
ert af því að Kamtsjatkamenn leystu
sín orkuvandamál og gætu jafnvel
orðið aflögufærir með orku til borga
á austurströndinni þar sem öðru
hvoru er verið að taka rafmagnið af
fólki - og þá af skólum og sjúkra-
húsum.
Hvers vegna fengu Islendingar
ekki að breyta Kamtsjatka í Hvera-
gerði? Alltaf þegar Kamtsjatkamenn
eru að krókna úr kulda má lesa í
blöðum að svo og svo margir dagar
séu til stefnu þangað til olíuskip kem-
ur þangað með svartolíu. Kannski
það séu einmitt þau öfl sem hafa hag
af því að Kamtsjatkamenn borgi sem
mest fyrir svartolíu - sem reyndar er
flutt inn erlendis frá - sem koma í
veg fyrir að þar verði blómaskeið
með ódýrri varmaorku?