Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 6#?
|
Betri byggð - hvað er það?
EKKI veit ég hvað
samtökin Betri byggð
hafa að leiðarijósi eða
hvað felst í hugtakinu
betri byggð í þeirra
huga, sem þátt taka í
þeim félagsskap. Hitt
veit ég að í viðtali við
formann samtakanna,
Jóhann J. Ólafsson, í
Morgunblaðinu hinn 6.
desember sl. leggur
hann fram hugmyndir
um skipulag á höfuð-
borgarsvæðinu, sem eru
hvílík ógn við mín við-
horf til þess hvað betri
byggð er, að ég get ekki
orða bundist. I mörg ár
hef ég bæði á pólitískum vettvangi og
annars staðar barist fyrir betri byggð
og mun halda því áfram m.a. með því
að berjast gegn slíkum viðhoríum
sem birtast í umræddu viðtali.
Hvað er betri byggð?
Betri byggð er byggð, sem hlúir að
íbúum sínum jafnt sem öllu umhveríi.
Hún er því í góðum tengslum við nátt-
úruna sem og hið manneskjulega í
okkur. Þar er tekið tillit til þarfa
mannsins, en einnig til náttúru, dýra-
lífs, gróðurs og umhverfis. Betri
byggð er fólgin í skipulagi sem gerir
ráð fyrir góðri þjónustu við alla
íbúana, en einnig góðum samskiptum
þeirra við náttúruna og
umhverfið. Þar er hægt
að slaka á og njóta þess
sem byggðin og um-
hverfið hefur upp á að
bjóða. Betri byggð er
fólgin í því að maðurinn
þurfi ekki að ferðast í
bíl til þess að geta kom-
ist í snertingu við sjálf-
an sig, náttúruna og
uppruna sinn. Betri
byggð er fólgin í því að
minnka mengun af öllu
tagi. Betri byggð veitir
góða þjónustu bömum
sínum, unglingum, full-
orðnum og eldra fólki,
fötluðum jafnt sem
ófotluðum. Betri byggð er byggð, þar
sem manninum líður vel og fær að
njóta sín. Betri byggð er valkostur.
Bessastaðahreppur
Bessastaðahreppur er, þrátt fyrir
mjög vaxandi byggð að undanfömu,
eina sveitarfélagið á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem stærstur hluti um-
hverfisins er ennþá tiltölulega óspillt-
ur, fuglalíf er einstakt, tjamir, móar,
hraun og mýrar em enn stór hluti
umhverfisins og fjömrnar aðgengi-
legar göngumönnum. Frá flestum
heimilum í hreppnum þarf ekki að
fara í langar gönguferðir til að geta
virt fyrir sér himinhvolfið, stjömur
Bessastadahreppur
Samtökin Betri byggð
mega reyna að hafa
áhrif á skipulagsmál í
Reykjavík, segir
Sigtryggur Jónsson, en
ekki að reyna að leysa
vanda borgarinnar á
kostnað annarra sveit-
arfélaga.
þess og norðurljós, sem flestir höfuð-
borgarbúar hafa gleymt hvemig líta
út.
A undanfómum árum hafa hrepps-
yfirvöld unnið að mjög aukinni þjón-
ustu, sem þó má enn bæta. í skipu-
lagsmálum hefur í mjög auknum mæli
verið tekið tillit til náttúm, fuglalífs
og umhverfis m.a. með því að gera
umhverfisathuganir á undan deili-
skipulagi. Unnið hefur verið að því að
verja landið, til góða fyrir bæði íbúa
og umhverfi. Hvatningin til þessarar
vinnu er hin ómetanlega náttúra og sú
fullvissa okkar, sem að málefnum
hreppsins vinna, að langflestir íbú-
Sigtryggur
Jónsson
Upp úr skúffunum
Átaksverkefnið Upp
úr skúffunum er nú á
þriðja ári sínu og er
samstarfsverkefni
Rannsóknaþjónustu
Háskóla Islands og
Nýsköpunarsjóðs at-
vinnulífsins. Verkefnið
snýr að nýtingu rann-
sóknaniðurstaðna við
Háskóla íslands og er
ætlað að hvetja vís-
indamenn og rann-
sóknastofnanir til að
hagnýta niðurstöður
rannsókna sinna, hvort
sem er fyrir samfélag-
ið eða atvinnulífið. Með
þessu greinarkorni
langar mig að vekja athygli á átak-
inu og samkeppni í tengslum við það
sem nýlega er afstaðin.
Verkefnið felst annars vegar í
hvatastarfi og námskeiðahaldi og
hins vegar í samkeppni um hug-
myndir að nýsköpun og nýtingu
rannsóknaniðurstaðna. Jafnframt
hefur verið farin sú leið að heim-
sækja deildir og rannsóknastofnanir
í tengslum við Háskóla íslands og
leita þannig eftir góðum hugmynd-
um að hagnýtingu rannsóknaniður-
staðna. Að þessu sinni bárust 11 um-
sóknir í samkeppnina og þrjár
þeirra munu hljóta verðlaun samtals
að upphæð 1 miljón króna. Páll
Skúlason, rektor Háskóla íslands,
mun afhenda verðlaunin í dag kl.
16:00 í Tæknigarði, Dunhaga 5.
Er framtíð í fræðunum?
Við höfum í vinnu okkar leitast
við að ná til þeirra sem stunda rann-
sóknir og velta upp ólíkum leiðum til
hagnýtingar rannsókna en það var í
þessum anda sem átakinu var ýtt úr
vör nú í ár með málþingi þar sem
spurningunni „Er framtíð í fræðun-
um?“ var varpað fram auk þess sem
kynnt voru námskeið um ólíkar leið-
ir til fjármögnunar sem staðið var
fyrir í október og nóvember. Á
kynningarfundinn komu fulltrúar
frá ólíkum hópum þátttakenda,
nemenda við Háskóla íslands, sjálf-
stætt starfandi fræðimanna hjá
ReykjavíkurAkademíunni og vís:
indamanna við Háskóla Islands. I
umræðum var rætt um mikilvægi
þess að nemendum gæfist kostur á
að taka þátt í rannsóknastarfi,
gagnsemi eða -leysi hinnar enda-
lausu umræðu um
þekkingarsamfélagið
og mikilvægi þess að
auka möguleika til
dæmis hugvísinda við
fjármögnun rann-
sókna. Þá varpaði Páll
Skúlason, rektor Há-
skóla íslands, fram
þeirri áskorun til fund-
argesta og Rannsókna-
þjónustunnar að
hleypt yrði af stað um-
ræðu bæði í samfélag-
inu og innan háskólans
um merkingu orðanna
rannsókn - þekking og
vil ég hvetja aðila úr ís-
lensku rannsóknasam-
félagi, fjölmiðla og þátttakendur í
umræddu málþingi að koma fram í
sviðsljósið með slíka umræðu og
Átaksverkefni
Verkefnið felst annars
vegar í hvatastarfi og
námskeiðahaldi, segir
Stefania G. Krist-
insdóttir, og hins vegar
í samkeppni um hug-
myndir að nýsköpun og
nýtingu rannsóknanið-
urstaðna.
skoðanaskipti. Nánari upplýsingar
um málþingið, námskeiðin og aðrar
uppákomur í tengslum við átakið má
finna á heimasíðu verkefnisins,
www.uppurskuffunum.hi.is.
Nýting rannsóknaniðurstaðna
og nýsköpun;
í heimsóknum okkar hjá Rann-
sóknaþjónustunni í stofnanir og
deildir Háskólans, samstarfi við
ReykjavíkurAkademíuna og við-
ræðum við stúdenta höfum við öðl-
ast mikilvæga reynslu varðandi
helstu þarfir þessara aðila á þjón-
ustu og upplýsingum.
Það sem helst skortir á í rann-
sóknastarfi er fjármagn til hagnýt-
ingar eða miðlunar, heildstæð fram-
setning á þeim fjármögnunarleiðum
sem færar eru hérlendis og erlendis
auk þess sem aðgengi að rannsókna-
niðurstöðum mætti betrumbæta.
Nýsköpunarferlið er félagslegt
ferli þar sem, ef vel á að fara, sér-
fræðingar á ólíkum sviðum vinna
saman að hagnýtingu og aðlögun
hugmynda að samfélaginu. Það get-
ur reynst erfitt uppfinninga- eða
vísindamanni að finna upp tækni,
fjármagna hana og koma henni á
markað á eigin spýtur. Með þvi að
byggja upp tengsl við atvinnulífið og
þá þekkingu sem þar býr vonumst
við hjá Rannsóknaþjónustunni til að
geta ráðlagt fræðimönnum heilt og
bent þeim á ábyrga leiðbeinendur á
sviðum fjárfestingar og einkaleyfa
auk þess að miðla þeirri reynslu sem
þegar er orðin til í tengslum við
slíka tækni- og þekkingaryfirfærslu
innan háskólasamfélagsins. Enn
fremur er verið er að vinna að hug-
myndum um markvissari upplýs-
ingaveitur um styrki við rannsókna-
starf og má þar nefna að
Rannsóknaþjónustan í samstarfi við
Rannís og Iðntæknistofnun er að
byggja upp upplýsingavef um
fimmtu rammaáætlunina, www.evr-
opusamvinna.is.
Er framtíð án fræðanna?
Þátttakendur í málþingi um fram-
tíð fræðanna voru sammála um að
það væri engin framtíð án þeirra,
bæði hvað varðar sérstakar menn-
ingarlegar aðstæður íslendinga svo
og margvísleg viðfangsefni tengd
náttúru landsins. Svo ég víki að
framtíðarsýn minni á verkefnið er
mikilvægt að enn fleiri rannsókna-
og fræðastofnanir komi að verkefn-
inu og þá um leið að okkur takist að
fá til liðs við okkur fleiri stuðnings-
aðila hvort sem er einstaklinga eða
fyrirtæki. Stuðningur við rannsókn-
ir getur verið í formi fjárframlaga
og/eða sérfræðiráðgjafar, til dæmis
í tengslum við einkaleyfi, kynningar
eða áhættufjármögnun. Slíkan
stuðning væri hægt að nýta til að
styðja hagnýt rannsóknarverkefni
og til að byggja upp öflugar upplýs-
ingaveitur um rannsóknastarf á ís-
landi fyrir fræðimenn, almenning og
fyrirtæki.
Höfundur er verkefnisstjóri átaksins
„ Upp úr skúffunum
Stefanía G.
Kristinsdóttir
arnir velja búsetu í hreppnum vegna
umhverfisins. Vegna þess að enn er
hreppurinn valkostur um betri byggð.
Það er enginn vafi á því að auðveld-
lega er hægt að koma upp 7 til 10.000
manna byggð í hreppnum. Við erum
þó enn bara 1.600 og tekist hefur að fá
stjómmálaöfl hreppsins til þess að
setja ákveðna stefnu á það að íbúar
verði ekki fleiri en tæplega 3.000.
Fjölgun íbúa um helming mun ganga
mjög á það umhverfi og þá náttúru,
sem enn er lýsandi fyrir hreppinn, en
er líklega nauðsynleg til þess að um
sjálfbært sveitaifélag geti verið að
ræða með þeirri þjónustu, sem nauð-
synleg er. En stækkun byggðar getur
þó farið fram í mikilli sátt við um-
hverfið, ef viljinn er fyrir hendi. Við
sem hér búum höfum þann vilja og
viljum því fá að ráða umhverfi og
skipulagi okkar sjálf, enda er ljóst að
Jóhann J. Ólafsson er ekki einn um
það að vilja malbika yfir Bessastaða-
nes, en þær raddir koma allar frá öðr-
um sveitarfélögum. Ættum við að
taka þá áhættu að sameinast öðrum
sveitarfélögum, þegar enn leynast
þar raddir um að best sé að malbika
nesið og fylla það af háhýsabyggð til
að leysa skort nágrannasveitarfélag-
anna á nýbyggingarsvæði? Við þurf-
um þess ekki og virðumst oft vera þau
einu, sem viljum halda í þann valkost
að til sé möguleiki á betri byggð á höf-
uðborgarsvæðinu.
Samtökin Betri byggð
Samtökin Betri byggð mega gjam-
an reyna að hafa áhrif á skipulagsmál
í Reykjavík, þótt ég voni að sú hug-
myndafræði, sem birtist í fyrmefndu
viðtali, nái þar engri fótfestu. Þau
eiga þó ekki að reyna að leysa vanda
höfuðborgarinnar á kostnað annarra
sveitarfélaga. Slíkt er vanvirðing við
íbúa þeirra sveitarfélaga og það val
þeirra að velja sér búsetu annars
staðar en í Reykjavík.
Höfundur er {sveitarstjórn Bessa-
staðahrepps.
Ofnæmi eða óþoli gagnvart hreinsiefnum
I heimilishaldi og iðnaði.
Tiðum þvotti með sótthreinsandi efnum.
Óhreinindum, málningu, oliu, kltti, sementi
o.þ.h.
Húðþurrki vegna vinnuumhverfis. K
IYFJA
K. Pétursson ehf
www.kpetur8son.net
)
©læsílcgt úroal jólagjafa
ÞIINALÍNA
Allt fyrir mömmu og barnið.
Póstsendum, s. 551 2136.
Rfkishréf f markflokknm____________________________________
Útboð miðvikudaginn 13. d.esember
Á morgun, miðvikudagimx 13. desember, kl. 14:00, fer fram
útboð á ríkisbréfum hjá Lánasýslu ríkisins. í boði verður
eftirfarandi markflokkur:
' Áttfcá BÁmars
Fiokkm:.________ Gjgfddiigí_tónstlini Núttninjl stoia* utinaa tiite’i'
RIKB03 1010 lO.okt. 2003 2,8 ár 13.698 500,-
*Milljónir króna að nafnverði
Ríkisbréf í flokki RIKB 03 1010 eru gefin út rafrænt hjá Verðbréfa-
skráningu íslands hf. og er lágmarkseining ein króna þ.e. nafnverð
er það sama og fjöldi eininga.
Ríkisbréf eru skráð á Verðbréfaþingi íslands og eru viðurkenndir
viðskiptavakar þeirra Búnaðarbanki íslands hf., Kaupþing hf.,
Íslandsbanki-FBA hf. og Sparisjóðabanki íslands hf.
Sölufyrirkomulag:
Ríkisbréf verða seld með tilboðsfyrirkomulagi. Öllum er heimilt
að bjóða í ríkisbréf að því tilskyldu að lágmarksfjárhæð tilboðsins
sé ekki laegri en 10 milljónir. Öðrum aðilum en bönkum,
sparisjóðum, fjárfestingalánasjóðum, verðbréfafyrirtaekjum,
verðbréfasjóðum, lífeyrissjóðum og tryggingafélögum er heimilt
að gera tilboð í meðalverð samþykktra tilboða að lágmarki 500.000
krónur. Öll tilboð í ríkisbréf þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins
fyrir kl. 14:00 á morgun, miðvikudaginn 13. desember 2000.
Utboðsskilmálar, önnur tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar
eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 540 7500.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 540 7500 • Fax: S62 6068
www.Ianasysla.is • utbod@lanasysla.is