Morgunblaðið - 12.12.2000, Side 72
^2 ÞRIÐJUDAGUR12. DESEMBER 2000
UMRÆÐAN
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ
Gagnrýni á
Váðstefnu Veiði-
málastofnunar
í VIÐTALI í Morg-
unblaðinu 7. desember
er viðtal við sjálfskip-
aðan talsmann fiskeld-
ismanna, Guðmund
Val Stefánsson, firam-
^►kvæmdastjóra Sæsilf-
urs. Þar gagnrýnir
Guðmundur nýaf-
staðna ráðstefnu
Veiðimálastofnunar
um framtíð villtra
laxastofna og laxeldi á
íslandi. Það skal tekið
fram að Guðmundur
Valur kom ekki nálægt
undirbúningi ráðstefn-
unnar, né kom hann á
hana. Líkt og Lands-
sambandi veiðifélaga og Landssam-
bandi stangveiðifélaga var Lands-
sambandi fiskeldis- og hafbeitar-
Fiskeldi
Laxeldi getur verið
hættulegt náttúrulegum
stofnum, segir Sigurður
Guðjdnsson, vegna
vistfræðilegra áhrifa,
erfðafræðilegra áhrifa
og vegna sjúkdóma og
•sníkjudýra.
stöðva gefinn kostur á þátttöku í
ráðstefnunni. Til stóð að Jónatan
Þórðarson, framkvæmdastjóri Sil-
ungs ehf., flytti þar erindi sem hann
nefndi „framþróun í íslensku lax-
eldi“. Landssamband fiskeldis- og
hafbeitarstöðva kaus hins vegar að
draga til baka sína þátttöku, sem
okkur þótti miður. Þeim var í sjálfs-
vald sett hvern þeir völdu til að
flytja þar erindi. Nafn þess manns,
sem Guðmundur nefnir, Ole Torr-
isen, kom aldrei upp, en ekki hefði
verið nein fyrirstaða af hálfu Veiði-
málastofnunar, ef svo hefði verið.
Það eru því hrein
ósannindi hjá Guð-
mundi að við höfum
neitað Landssamband-
inu um að kalla hann
til, fremur en aðra sem
þeir vildu. Tilgangur
ráðstefnunnar var að
skapa faglega umræðu
um sambýli laxeldis og
villtra laxastofna. Það
tókst.
Guðmundur sótti
ekki ráðstefnuna. Bet-
ur væri að Guðmundur
hefði hlýtt á fyrirles-
ara, þá hefði hann vit-
að hvað þeir höfðu
fram að færa. Þess í
stað reynir hann á ærumeiðandi
hátt að rakka niður fyrirlesarana,
tvo virta erlenda vísindamenn, þá
dr. Ian Flemming, sem starfar hjá
NINA (Norsku náttúrurannsókna-
stofnuninni), og dr. Fred Allendorf,
prófessor í stofnerfðafræði við Há-
skólann í Montana í Bandaríkjun-
um. Þetta gerir Guðmundur með
því að spinna upp eitthvað sem
hann telur að þeir hafi sagt og með
illa grunduðum ásökunum um að
þeir hagræði sannleikanum og
fleira í þeim dúr. Slíkt er alvarlegt
og segir mest um þann sem það
gerir, þetta dæmir sig einfaldlega
sjálft.
Guðmundi væri nær að átta sig á
vísindalegum staðreyndum. Laxeldi
getur verið hættulegt náttúrulegum
stofnum, vegna vistfræðilegra
áhrifa, erfðafræðilegra áhrifa og
vegna sjúkdóma og sníkjudýra. Því
verður að fara að öllu með ýtrustu
varfæmi. Þar ættu menn að vera
samstiga í að leita allra leiða. Ein er
sú leið sem Guðmundur nefnir og
það er notkun á geldstofnum. Þar
erum við sammála og ætti að kapp-
kosta að þróa aðferðir til að búa til
slíka stofna og nota. Það væri fram-
faraspor í að laxeldi gæti þróast hér
í sátt við okkar dýrmætu villtu laxa-
stofna.
Höfundur er forstjóri
Veiðimdlastofnunar.
Sigurður
Guðjónsson
JÓ12000
Öðruvísi
j ólaskreytingar
Sjón er sögu ríkari
blómaverkstæði
*INNAfe
Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090
Eru vandamál á toppnum?
Ofnæmi, flasa, exem, psoriasis, feitur eða þurr hársvörður?
I ) . wwm—IIII1> HÍI dlifHHII—ÍÍHIMiHI—Ul li .11^ r i WjHMf llWPð KMi'i I I iillll
h6
ull
Hárvörur leysa vandann
OG ÞÚ BLÓMSTRAR.
UTSOLUSTAÐIR: HEILSUVORUVERSLANIR OG APOTEK UM ALLT LAND.
NOREGUR OG
HIN NÝJA EVRÓPA
EVRÓPUSAMBANDIÐ ein-
kennist nú af miklum krafti. Það er
eðli samvinnunnar að stofnanir,
stefnumál og reglugerðir eru í stöð-
ugri þróun. Leiðtogafundi ESB í
Nice er lokið en umræðumar um í
hvaða átt ESB-samstarfið eigi að
þróast munu halda áfram. Útkoma
þessarar viðtæku umræðu er á eng-
an hátt gefin. Hins vegar er lítill vafi
á því að þróunin er í átt að stöðugt
meiri og nánari sameiningu.
Þróun ESB-samvinnunnar mun
vafalaust hafa mikilvægar efnahags-
legar og pólitískar afleiðingar fyrir
Noreg. Rammaskilyrði okkar munu
í auknum mæli ráðast af pólitískum
samþykktum á vettvangi þar sem
við erum ekki þátttakendur. í Nor-
egi reynum við að bæta fyrir þetta
með því að þróa eins gott samstarf
við ESB og auðið er og með því að
vekja athygli á hagsmunum Noregs
gagnvart framkvæmdastjóm ESB
og aðildarlöndum ESB.
Evrópuúttektin sem norska
stjómin hefur lagt fram er boð um
þátttöku í breiðri og opinni umræðu
um afstöðu Noregs til Evrópu og
norska Evrópustefnu á komandi ár-
um. Það er ekki síst vegna hinna
mörgu og miklu áskorana sem hinar
sögulegu umbreytingar í Evrópu
skapa.
Frá vestur-evrópsku til
al-evrópsks samstarfs
Evrópa á nú sögulegan möguleika
á því að gera að vemleika framtíð-
arsýn eftirstríðsáranna um friðsam-
lega, óskipta og samvinnufúsa Evr-
ópu.
Nú fléttast Evrópuríkin inn í stöð-
ugt nánari samvinnu þvert á mörk
sem áður skildu þau að - og breytast
enn. Evrópsk öryggis- og vamar-
pólitísk samvinna er nú að mótast.
Rússland tekur æ meiri þátt í evr-
ópskum samvinnuformum svo og
þeim er ná yfir Atlantshafið. Löndin
á Balkanskaga tengjast þeim sömu-
leiðis æ nánar - eftir tíu ára blóðug
og ósættanleg átök.
Stöðugleiki og efnahagsleg þróun
í allri Evrópu - einnig í samfélagi
okkar - em þó háð því að það vel-
ferðarbil sem er á miUi fyrrnm Aust-
ur- og Vestur-Evrópuríkja nái ekki
að festa rætur eða aukast. Áskor-
unin er að vinna gegn því hug-
myndafræðilega jámtjaldi sem áður
sldpti Evrópu í tvennt og leiddi til
velferðarbils sem kann að að verða
ógn við efnahagslegan og pólitískan
stöðugleika í Evrópu.
í ESB-löndunum og Noregi er
eining um að við bemm sameigin-
lega ábyrgð á lýðræðislegri þróun
og aukinni velferð landa í Mið- og
Austur-Evrópu. Samstaða í Evrópu
dagsins í dag snýst um að stækka
stöðugleika- og velferðarsvæðið sem
lönd Vestur-Evrópu hafa notið góðs
af um áratuga skeið, svo það nái til
allra landa í Evrópu.
Stækkun ESB mun verða mikil-
vægasta framlagið til friðar, stöðug-
leika og þróunar í Evrópu. Mestu
máli skiptir þvi að stækkunarferli
ESB lánist. Það krefst mikils fram-
lags landanna sjálfra, ESB og ann-
arra Evrópuríkja. Stækkunin felur í
sér fjölda áskorana fyrir umsókn-
arlöndin. Því er mikilvægt að taka
þátt í henni með því að styðja um-
bætur og nauðsynlegar breytingar.
Og Noregur mun gera það.
Sameining þvert
á fyrri skil
Rússland er ekki lengur hernað-
arleg ógn í Evrópu en býr þó enn yf-
ir miklum herstyrk. Hins vegar
stöndum við frammi íyrir fjölda ann-
arra ögrana í Rússlandi en hemað-
arlegra sem kunna að hafa áhrif á
stöðu mála í nágrenni Noregs. Þess-
ar ögranir tengjast efnahagslegri og
félagslegri þróun, umhverfi, við-
haldsgetu, velferð og
heilbrigði. Það mun
hafa mikla þýðingu fyr-
ir félagslegan og póli-
tískan stöðugleika í
hinu stóra nágranna-
landi okkar í austri að
tekist verði á við þetta.
Mikilvægasta fram-
lag Noregs til að auka
stöðugleikann í norðri
og þar með Evrópu er
að mínu mati að vefa
Rússland þéttar inn í
skuldbindandi sam-
vinnu í Evrópu og yfir
Atlantshafið.
Nágrenni Noregs og
góð tengsl við Rúss-
land, þátttaka okkar í Barentshafs-
samvinnunni, Eystrasaltssamvinn-
unni og Norðurheimskautsráðinu
gerir Noregi kleift að leggja sitt af
mörkum í þróun norðurhluta ESB. í
Við bjóðum norsku
þjóðinni, segir Thor-
bjprn Jagland, að taka
þátt í víðtækri og opinni
umræðu um afstöðu
Noregs til Evrópu og
norska Evrópustefnu
á komandi árum.
þessari samvinnu leggjum við Norð-
menn mikla áherslu á öryggi í kjam-
orkumálum, aðgerðir í umhverfis-
málum, orku- og heilbrigðismálum,
með það að markmiði að bæta lífs-
kjör í norðvestur-Rússlandi og á
Eystrasaltssvæðinu.
Samvinna á milli svæða þvert á
landamæri hefur fengið aukna þýð-
ingu. ESB er drifkraftur slíkrar
samvinnu með því að setja á fót og
fjármagna staðbundin samvinnu-
verkefni á borð við Interreg-verk-
efnin. Markmiðið með þátttöku Nor-
egs er að bæta aðstæður íyrir
efnahagsþróun, verðmætasköpun og
atvinnu á norskum svæðum. Inter-
reg-samvinnan leggur sitt af mörk-
um til að styrkja norræna landa-
mærasamvinnu og samvinnu þjóð-
anna á Barentssvæðinu, Eystra-
saltssvæðinu og Norðursjávar-
svæðinu.
Stríð og óleysanlegur ágreiningur
þjóða á Balkanskaga á síðasta ára-
tug er öflug áminning um að Evrópa
nútímans er ekki laus við öfgaþjóð-
emishyggju og stríð. Hrun komm-
únismans rýmdi til fyrir þjóðemis-
straumum sem pólitískir leiðtogar
gátu nýtt sér til klofnings og þar
með eigin ávinnings.
Tíu árum og fjórum stríðum eftir
að átökin hófust í Júgóslavíu ríkir
enn spenna á Balkanskaga. Á sama
tíma hefur hin jákvæða þróun í
Króatíu og valdaskipti í Júgóslavíu í
haust aukið verulega á möguleikann
á því að koma á varanlegum friði og
stöðugleika á Balkanskaga. ESB
hefur tekið á sig aðalábyrgðina á því
langtímastarfi að skapa stöðugleika
í Suðaustur-Evrópu með því að ýta
undir aukna samninnu á milli landa
á svæðinu og tengja þau efnahags-
legri og pólitískri sameiningu í Evr-
ópu. Noregur tekur virkan þátt í
Stöðugleikasáttmála Suðaustur
Evrópu - í náinni samvinnu við
ESB.
Evrópsk öryggis- og
varnarmálastefna ESB
Stríðsátökin í fyrrum Júgóslavíu
hafa einnig ýtt undir endumýjaðar
tilraunir ESB til að styrkja þróun
sameiginlegrar utanríkis- og vam-
armálastefnu. Leiðtogafundur ESB
í Feira í júní sl. staðfesti vilja ESB
til að koma á fót sam-
eiginlegri utanríkis- og
öryggisstefnu, sem
getur unnið að lausn
átaka á hemaðarlegan
og borgaralegan hátt.
Noregur hefur und-
irstrikað jákvæða af-
stöðu landsins til þró-
unar evrópskrar
öryggis- og vamar-
málastefnu gagnvart
ESB og aðildarlöndum
ESB. Aukin geta Evr-
ópuríkja til að takast á
við átök er ávinningur
fyrir öryggi Evrópu og
stöðugleika. Hún er
ástæða hemaðarlegs
og borgaralegs framlags Noregs til
ESDP.
Með þvi að fara með stjórn í
KFOR í Kosovo frá apríl og fram í
nóvember á næsta ári munu bæði
Noregur og Danmörk fá möguleika
á því að sýna vilja og getu til að bera
ábyrgð á hernaðarverkefnum sem
hafa mikla öryggispólitíska þýðingu
í Evrópu.
Vilji Noregs til að taka þátt í verk-
efnum undir stjóm ESB er einnig
ástæða þess að Noregur vill auka
samskipti og viðræður við ESB um
öryggis- og vamarmálaspurningar -
ekki síst um hvemig bmgðist skuli
við átökum. Með aukinni samvinnu
getum við lagt okkar af mörkum til
að tryggja að umbætur og framlag
Noregs til slíkra verkefna komi að
notum og að við getum tekið ákvarð-
anir í skyndi um þátttöku í þeim.
Þar sem samvinna ESB-ríkja á
þessu sviði leiðir til þess að þau
koma sér upp sameiginlegri stefnu í
málum sem skipta máli varðandi ör-
yggi Evrópu, verður þetta vafalaust
mikil pólitísk áskoran fyrir Noreg.
Möguleikar Noregs á að hafa
áhrif á samvinnu ESB á þessu sviði
era augljóslega takmarkaðir. Ég tel
að viðræður og þátttaka í því að
leysa átök komi aðeins að takmörk-
uðu leyti í stað varanlegrar þátttöku
Noregs í stöðugri öryggis- og vam-
armálasamvinnu ESB-ríkjanna.
Samband við nána bandamenn mun
því fá aukna þýðingu til að gæta
norskra hagsmuna.
Alþjóðavæðing - ríkin verða
æ háðari hvert öðru
Evrópuríkin og evrópsk samvinna
verður fyrir auknum áhrifum sam-
þættingar efnahags ríkja um allan
heim, sem kemur til vegna aukinna
viðskipta-, fjármagns-, tækni- og
upplýsingastrauma yfir landamæri.
Grannur alþjóðavæðingar er ekki
síst hin hraða tækniþróun sem leiðir
til að mörk á milli landa og svæða
eru að hverfa.
Alþjóðavæðing efnahagsins og
tæknileg þróun hefur áhrif á mögu-
leikann til pólitískrar stjórnunar.
Nú er ekki hægt að tryggja áfram-
haldandi velferð og verðmætaaukn-
ingu með því að grípa eingöngu til
aðgerða innanlands. Þróa verður
möguleikana á pólitískum áhrifum.
Þær breytingar sem Noregur og
önnur Evrópuríki standa frammi
fyrir nú - vegna alþjóðavæðingar og
tækniþróunar - era svo miklar og
fjölþættar að einungis er hægt að
mæta þeim með samvinnu ríkja á
milli.
Ríki Evrópu hafa aldrei verið jafn
háð hvert öðra og nú. Möguleikamir
á því að tryggja markmiðið um var-
anlegan stöðugleika og lýðræðislega
stjórnarhætti í Evrópu þar sem vel-
ferð einstaklingsins er tryggð, hafa
heldur aldrei verið meiri.
Alþjóðleg samstaða
Auknir viðskipta- og fjármagns-
straumar sem fylgja í kjölfar al-
þjóðavæðingar hafa ekki aðeins
skapað nýjan efnahagsvöxt. Þeir
Thorbjern
Jagland