Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 88
-88 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
i j wa !i w it.i 11 j i ■ i ■ m.i. ijj j 11 iu j i m i mmmtmmm
*Ert þú Elvis?
Þótt Elvis Presley hafí fallið frá fyrir nær
aldarf]órðungi á hann sér enn einhverja
heitustu fylgjendur sem tónlistarmaður
getur átt. Egill Egilsson komst að því, þar
sem hann var viðstaddur undirbúning Elv-
is-hæfíleikakeppni hér á landi, að margur
vildi rokkkóngurinn hafa verið.
„ERTU MÆTTUR" segir Jósef „Ar-
on“ Ólafsson, þegar ég kynni mig fyr-
ir honum. Jósef, sem er svartklæddur
frá hvirfli til ilja merktur Elvis Presl-
ey á bakinu, tekur mér fagnandi. Inn-
andyra í húsnæði Sjálfsbjargar í Há-
túni 12 er mættur töluverður hópur
Elvis-aðdáenda, bæði íbúar sem og
þátttakendur í Elvis-hæfileikakeppn-
inni. Skráðir eru 9 keppendur í
keppnina. Elvis-lög hljóma og menn
raula þau á meðan myndir og vegg-
VÍSA
VAKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
4507-4100-0006-6325
4548-9000-0056-2480
4543-3700-0027-8278
4507-4500-0028-0625
4507-2800-0004-9377
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferö og
sendið VISA íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
□ □
úrsmiður, Lækjartorgi.
TISSOT
Swiss 1853
CHRONOGRAP
Skeiðklukka
200 m vatnsþétt
Órispanlegt gler
Eðalstál
Garðar Ólafsson
teppi ásamt plöttum eru hengd upp á
veggi húsnæðisins.
Fjórði Elvis-klúbburinn
Von er á Héðni Valdimarssyni, Elv-
is íslands, með karíókígræjumar. Ég
nýtti tækifærið og króaði Jósef eða
Jobba af, til að forvitnast frekar um
þennan fjórða Elvis-klúbb sem stofn-
aður hefur verið frá upphafi Elvis-ár-
daga á Tveim vinum, þegar hæfileika-
keppnir voru haldnar þar á árum
áður: „Klúbburinn var stofnaður 19.
september 2000, og er ég formaður en
tengdamamma er ábyrgðarmaður."
En hvemig æxlaðist það til að þú
stofnaðir þennan klúbb?
„Ég hef verið Elvis-aðdáandi 64
því ég var 8 ára gamall. Átti fullt af
plötum með Elvis, en er nýbyrjaður
að safna geisladiskum með honum.
Sjálfur var ég um tíma í klúbbi nr. 3,
en eins og þú veist hafa verið stofn-
aðir fjórir klúbbar og við sem stönd-
um að honum bindum þær vonir við
hann að þetta verði sá eini og síðasti
sem stofnaðui- verður um Elvis. Ég
hafði lengi ætlað af stað með Elvis-
gervið sjálfur, og ákvað því að brjóta
ísinn með því að koma fram í þætt-
inum Með hausverk um helgar og svo
seinna meir í þættinum hennar Stein-
unnar Ólínu, Milli himins og jarðar.
Þetta var ekki gert til þess að vekja
athygli á sjálfum mér, heldur til að
leyfa öðrum að njóta þess sem lögin
hans Elvis hafa upp á að bjóða . Eg
hafði upp á Sigga „Presley“ Guð-
laugssyni til að vita hvemig ætti að
stofna klúbbinn. Siggi reyndist okkur
vel og fræddi okkur um allt það helsta
í sambandi við hvemig stofiia ætti
slíkan klúbb. Eftir af hafa farið á
Hagstofuna og skráð klúbbinn og
fengið kennitölu þá var klúbburinn
orðinn lögformlegur. í klúbbnum era
þegar skráðir félagar 10 og er ekki
ætlunin að íjölga um sinn. Til að
hljóta inngöngu í klúbbinn þurfa
menn að uppfylla viss skilyrði."
Leitun að slíkum
tengdamömmum
Hvaða skilyrði eru það - þurfa
menn að eiga Elvis-galla?
„Nei, ekld endilega. Við viljum bara
að klúbburinn vaxi hægt og rólega.
Menn geta skráð sig í klúbbinn og
fengið fréttabréf klúbbsins sent til sín
með fréttum af starfsemi hans.
Þess má geta að Elvis-búningurinn
sem ég skrýðist var saumaður af 75
ára gamalli konu, en kona mín og
tengdamamma gáfu mér hann.
Tengdamamma er ábyrg fyrir
Héðinn Valdimarsson, Elvis
Islands, án sólgleraugna og
glitrandi Elvis-gallans.
Elvis á sér greinilega marga
dygga aðdáendur hér á landi.
klúbbnum og hefur unnið með okkur í
þessu af alefli. Það er leitun að slíkum
tengdamömmum í dag.“
En hæfíleikakepgnin, er til nóg af
sönnum Elvisum á íslandi?
„Tilgangur keppninnar er eins og
íyrr segir tækifæri til að menn geti
notið tónlistar Elvis og komið saman
og sungið lögin hans. Með þessari
hæfileikakeppni er ætlun okkar, sem
stöndum að klúbbnum, að allur ágóði,
sem kemur inn af keppninni, renni til
Félags krabbameinssjúkra bama.
Við héldum skemmtun þegar klúbb-
urinn var stofnaður og á þá skemmt-
un komu 45 manns. Sjálfur hef ég far-
ið í gervinu víða og troðið upp í
gallanum fyrir krakkana á Sólheim-
um. Einnig hef ég skemmt á árshátíð-
um. Það verður ekki selt inn og ekk-
ert áfengi haft um hönd, aðeins boðið
upp á kaffi og kökur. Okkur finnst
best að sleppa söngvatninu og láta
þetta streyma frá hjartanu."
Guðfaðir keppninnar
Og þá er Jobbi rokinn, enda Héð-
inn Valdimarsson mættur með kar-
íókígræjumar. Kliður fer um salinn
þegar Héðinn Valdimarsson mætir,
enda maðurinn sláandi líkur Elvis
sjálfum, með kolsvart hár og barta.
Þær fáu konur sem era viðstaddar í
salnum horfa dreymandi augum á
Héðin, á meðan hann tengir græjum-
ar. Allt er klárt og Héðinn, í kulda-
jakka, og Jobbi ,Aron“ Presley
bregða sér á sviðið og taka nokkrar
Elvis-perlur. Allt í einu er sem Elvis
„Þú ert ekkert annað en veiðihundur.“
Sigurvegari Elvis-keppninnar var hinn 13 ára gamli Guðmundur Óskar
Guðmundsson sem söng „Are You Lonesome Tonight". Hér er hann á
milli „kónganna" Jobba „Arons“og Héðins Valdimarssonar sem er EIvis
Islands.
„Ertu einmana í kvöld?“
sjálfur hafi litið inn til að hvetja sína
menn, en bíðið við, röddin er ekki Elv-
is, heldur rödd Héðins Valdimarsson-
ar, sem tekur eina Elvis-perlu. Saum-
nálar hefðu getað hranið í tonnatali
en enginn hefði veitt því athygli, slík-
ur er kraftur Héðins. Engin furða að
Héðinn hafi lent í 4. sæti í Ohio fyrir
ári, og burstað margan Japanann og
Kanann.
„Ert þú guðfaðir keppnninar," spyr
ég Héðin á meðan vænlegir keppend-
ur spreyta sig á Elvis, eftir magnaðan
söng Héðins. Héðinn, sem er hógvær
og lítið fyrir að hafa sig í frammi,
brosir breitt, en viðstaddir kinka kolli.
„Hann er búinn að standa með okk-
ur í þessu gegnum þykkt og þunnt og
ætti skilið að vera skírður Guðfaðir
keppninnar,11 segir Jobbi og nikkar
kolli til Héðins. Nokkrir áhorfendur
era mættir, hafa vafalaust haldið að
keppnin yrði haldin þetta sama kvöld.
Þeir segjast hafa heyrt Elvis-hljóm-
ana og runnið á hljóðið. Tengda-
mamma Jobba hefur farið fimum
höndum um salinn og uppi um alla
veggi hanga myndir af goðinu. Kynn-
ir keppninnar, þéttur á velli og keppn-
ismaður mikill bæði í orði og hreyf-
ingum, æfir sig á textanum fyrir
morgundaginn og það er ekki laust
við að skjálfti leiki um hann allan þeg-
ar hann kynnir með tilþrifum hvem
keppandann á fætur öðrum. Eins og
Elvis sagði þá er það núna eða aldrei,
og það er augljóst að í mönnum
blundar Elvis. Tveir ungir strákar
era að festa upp veggteppi af Elvis í
anddyrinu. Annar þeirra er með Elv-
is-hárgreiðslu en vinur hans er
íklæddur svörtum Metallica-bol.
Með Elvis í hjarta
„Erað þið Elvis-fylgjendur,“ spyr
ég á meðan þeir hengja upp vegg-
teppi með Elvis. Þeir líta á mig og
brosa. „Ég ætla að keppa," segir sá
með Elvis-hárgreiðsluna. Hann heitir
Kristinn Runólfur „Presley" Guð-
laugsson, eða bara Kiddi Presley.
Menn eru hreyknir af millinöfnum
sínum og annar hver maður í salnum
hefur annaðhvort Presley eða Aron
sem millinafn. Allt án samþykkis
Nafnanefndar, en hverjum skyldi
ekki vera sama, á meðan andi Elvis
svífur yfir vötnunum á keppninni. Það
er ekki spuming um að vera Elvis,
heldur að líða eins og Elvis í hjarta
sínu. Með þessa visku þakka ég fyrir
mig, á meðan tónar Kóngsins hljóma
fram á nótt úr hveijum Presley-bark-
anum á fætur öðram.
Elvis er mættur á svæðið.