Morgunblaðið - 12.12.2000, Page 90
90 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
ÞRÁÐLAUS SÍMI
MEÐ NÚMERABIRTI
• 12 númerí minni
• Hringt beint
úr númerabirtingaminni
• Hægt að tengja við símkerfi
Doro
Walk&Talki255
Stórleikarinn Gary Cooper sem lék Sergeant York
í samnefndri kvikmynd.
Tveir sögufrægir kappar, Robert Mitchum og John
Wayne, í E1 Dorado.
Hawks ásamt hinni leggjafögru
Angie Dickinson.
ÞRIÐ JI og síðasti vestraleikstjórinn,
til meðferðar hér á síðunni, er How-
ard Hawks (1896-1977). Einn af
fremstu kvikmyndasmiðum Banda-
ríkjanna, fyrr og síðar. Hawks var
alls ekki bundinn við vestraformið
þótt það væri hans uppáhalds-
viðfangsefni, og tæki mest af síðari
hluta ferilsins. Hawks var fjölhæfur
og skildi einnig eftir sig afburða gam-
anmyndir, söngva- og dansamyndir,
spennutrylli og drömu. Sjálfur var
leikstjórinn margbrotinn persónu-
leiki. Fjölhæfur íþróttamaður, flug-
maður og kunn kappaksturshetja.
Hóf nám í verkfræði en komst ungur í
kynni við kvikmyndagerð og þar með
var framtíðin ráðin. Fyrstu störfin
vann Hawks hjá leikmunadeild Para-
mount, við klippingar, aðstoðarleik-
stjóm o.fl. sem til féll. Þetta var á
öndverðum þriðja áratugnum, þegar
kvikmyndaiðnaðurinn var að mótast.
Ekki leið á löngu uns Hawks var
farinn að skrifa handrit stuttmynda,
sem hann leikstýrði með tímanum.
Innan skamms hafði hann getið sér
gott orð sem handritshöfundur og
skömmu eftir að hann flutti sig til
Fox, fór Hawks að vekja á sér athygli
sem liðtækur leikstjóri. Var jafnan
sjálfstæður og vann t.d. fyrir alla
kvikmyndarisana 8 í Hollywood og
stórframleiðandann Goldwyn (áður
en hann varð G-ið í MGM). Iðnaður-
inn reyndi frá upphafi að draga leik-
stjóra í dilka, líkt og kvikmynda-
stjömumar. Einn fékk einungis að
fást við gamanmyndir, annar við
hrollvekjur, o.s.fW. Hawks var hins-
vegar erfiður í drætti og sannaði sig
snemma á ferlinum sem „allramynda-
maður“. Á t.d. að baki Scarface (’32),
sem sögð er ein besta glæpamynd
allra tíma; The BigSleep (’46), er á
sama hátt talin eitt af gullkomum
spennumynda; Sergeant York (’41),
fer fremst í flokki stríðsmynda, líkt
og vestramir Red River (’48) og Rio
Bravo (’59), em sígild stórvirki. Þá á
hann bráðsnjallar gamanmyndir að
baki, á borð við 20th Centuryi’34) og
His Girl Friday, ein frægasta mynd
hans á síðari ámm var svo Gentlemen
PreferBlonds (’53), einn frægasti
söngleikur allra tíma.
Þrátt fyrir alla sína fjölhæfni og
hæfileika, naut Hawks ekki verð-
skuldaðrar virðingar fyrr en seint á
ferlinum, ólíkt mönnum eins og
Hitchcock, sem vora einskorðaðir við
eina kvikmyndagrein. Engu að síður,
HOWARD
HAWKS
líkt og Hitch, sameinaði Hawks hæfi-
leikann til að skapa gott skemmtiefni
og ná til fjöldans ogsterkan og auð-
þekkjanlegan persónulegan stQ.
Handbragðið er blessunarlega laust
við tilgerð og er blátt áfram, enda leit
Hawks á sjálfan sig fyrst og fremst
sem fagmann og sagnaþul. Gerði sér
snemma grein fyrir mikilvægi hand-
ritsins og lét einhvemtíman svo um-
mælt: „Eg er svo mikil skræfa að ef
ég nýt ekki góðs penna hef ég ekki
áhuga fyrir verkefninu." Fleiri mættu
hugsa þannig. Enda naut hann jafnan
fulltingis þeirra bestu, einsog Willi-
ams Fauikner, Charles Lederer,
Leigh Brackett og Jules Furthman.
Vann jafnan náið með handritshöf-
undi, gerði breytingar frá eigin
bijósti, allt fram á tökustig.
Hawks var fyrsta hlutann af ferl-
inum hjá Fox, en fór síðan á milli
kvikmyndaveranna sakir mikilvægis
verkefnanna. 1930 gerði hann tvær,
valinkunnar myndir; The Dawn
Patrol og The Criminal Code. Sú
fyrmefnda er talin í hópi bestu
mynda um lofthemað í fyrra stríði, sú
síðari er sögð afburða fangelsismynd
á borð við I Was a Fugitive From a
Chain Gang, 20. 000 Years in Sing
Sing, og fleiri slíkar. Fyrsta meist-
araverkið og besta gangstermynd
fyrri hluta fjórða áratugarins; Scar-
face, þótti tímamótamynd. Blandaði
frjálslega saman grimmd, ofbeldi og
kolsvartri gamansemi. (De Palma
stýrði endurgerðinni hálfri öld síðar.)
Þrangin spennu og lævi blöndnu and-
rúmslofti. Myndin markaði upphafið
á frjósömu samstarfi hans og eins
besta handrdtshöfundar fyrri hluta
aldarinnar, Ben Hect. Næstunnu
þeir saman að ’The Crowd Roars og
TigerShark (báðar ’32). Næst tók við
skammur og h'tið minnisstæður kafli
lijá MGM, en Hawk komst aftur á
beinu brautina hjá Columbia, þar sem
hann lauk við 20th Cen trny (’35), sem
talin er ein besta „screwball“-gaman-
mynd allra tímas. Þá lauk hann við
Barbary Coast, einn fyrsta stórvestr-
aaLULiulir
Stór pizza
íeð pepperoni
Stór pizza með
2 áleggsteg.
PtZZA!PtZZA!
PÓ HWNdR - VIO BÖMUM - WJ &CIOR!
Fákafeni n • Dalshrauni 13, Hafnarfirði • Nesti, Ártúnshöfða
ann, sama ár. Þegar hér er komið
sögu, var Hawks búinn að fá á sig orð
sem mikilhæfur fagmaður, með
glöggt auga og eyra fyrir tímasetn-
ingu, samtölum, tækni og stemmn-
ingu. Hawks mat einnig mikils fag-
mennsku í fari annarra og gerði
fjölmargar myndir um sannkallaða
atvinnumenn - í íþróttum, her-
mennsku, njósnum, og vináttuna sem
skapast í samvinnu einstaklinga. Eins
var hann á undan sinni samtíð í með-
ferð kvenpersóna. Þó Hawks gæti
verið með manna mestan karlremb-
ing, ijallaði hann á jafnáhugaverðan
og jákvæðan hátt um kvenhetjur, á
borð við blaðakonuna Rosahnd Russ-
ell í His Girl Friday, eða kaldhæðnu
dansmeyna sem Jane Russell leikur
af snilld í Gentlemen Prefer Blondes.
Það sem laðaði Hawk að 20th Cent-
uryá sínum tíma, var sérstætt sam-
band roskins manns (John Barry-
more), sem laðast að sér mun yngri
konu (Carole Lombard), gáfaðri og
stjómsamri. Þetta inntak ræktaði
hann ennfrekar á fjórða áratugnum,
og kaus sér til fulltingis hinn sjóaða
Humphrey Bogart og hina óreyndu
Lauren Bacall. Sambandið virkaði
frábærlega á öllum sviðum. Ur varð
Qöldi minnisstæðra mynda og eitt
frægasta og farsælasta hjónaband
kvikmyndasögunnar. Áratugum síðar
bryddaði Hawk enn eina ferðina upp
á þemanu í þrem myndum (skrif-
uðum af Leigh): Rio Bravo (’59), Hat-
ari (’62) og E1 Dorado (’67), þar sem
miðaldra karlhetja (John Watne),
reynir í þeim öllum, að eiga í fullu tré
við sér mun yngri konur (Angie Dick-
inson, Elsa Martinelli og Charlene
Holt), með broslegum afleiðingum.
Fáir Hollywood-leikstjórar komast
í hálfkvist við Hawks, hvað snertir
auga fyrir hæfileikum og þjálfun
þeirra í hörðum skóla og samkeppni
hinna fremstu í Hollywood. Meðal
leikara sem geta þakkað honum
frægðina má nefnaPaul Muni (Scar-
face), Carole Lombard (20th Cent-
urý), Katharine Hepbume og Cary
Grant (Bringing Up Baby). Þá bauð
hann Frances Farmer hennar besta
hlutverk á stuttum ferii, í Come and
Get It (’36).. Eins uppgötvaði Hawks
fyrirsætuna Lauren Bacall í New
York, og bauð til vesturstrand-
arinnar. Montgomery Clift fékk sitt
fyrsta tækifæri í Red River. Á sjötta
áratugnum átti Hawks stóran þátt í
ódauðlegum vinsældum Marilyn
Monroe, í Monkey Business (’52) og
enn frekar Gentlemen PreferBlond-
es. Sergeant York (’41), er tvímæla-
laust mesta tímamótamyndin á ferli
hans, sú langvinsælasta og gerði stór-
stjömu úr Gary Cooper - sem hlaut
sín fyrstu Óskarsverðlaun ogfærði
leikstjóranum sína einu Óskars-
verðlaunatilnefningu.
Á stríðsáranum jukust til muna
vinsældir slíkra mynda og Hawks átti
sinn þátt í að koma þeim í tísku með
myndum eins ogSergeant York og
AirForce (’43), Átti síðan The Big
Sleep, sem talin er besta einka-
spæjaramynd fimmta áratugarins og
varð síðan einn af aðalviðreisnar-
mönnum vestrans, með Red Riverog
Rio Bravo.
A lokasprettinum sneri Hawks sér
aftur að vestranum, frægastar era
myndimar um fljótin tvö, Rauðá og
Rio Bravo, og þá gerði hann æv-
intýramyndina Hatari (’62) í Afríku,
sem bar öll helstu einkenni vestrans.
Að endingu komu svo tveir ósviknir,
báðir með allsherjargoða villta vest-
ursins, John Wayne. Hinn bráð-
skemmtilegi E1 Dorado (’67), þar sem
Wayne, og ennfrekar frábæram Ro-
bert Mitchum (í óvenjulegu hlutverki
fyllibyttunnar), og Rio Lobo (’70),
sem varð hans síðasta verk, enda
maðurinn að verða hálfáttræður.
Howard Hawks var manna best kom-
inn að heiðurs-Óskarsverðlaununum,
sem akademían færði honum 1974,
þremur áram fyrfr dánardægrið.
SIGILD MYNDBOND
RED RTVER (1948)
★★★★
Dæmigerður, sígildur vestri með
John Wayne í einu sínu albesta hlut-
verki sem landnemi sem klýfur sig úr
vagnalest á leið í vesturátt um miðja,
19. öld. Tekur þess í stað stefnuna á
Texas. í félagsskap vinar síns (Walter
Brennan) og ungs landnema (Mont-
gomery Clift), sem lent hefur í kröpp-
um dansi við frambyggjana. Wayne
leggur af harðfylgi undir sig land og
verður stórbóndi í Texas sem einskis
svífst í ágimd sinni og yfirgangi. Und-
ir lokin verður hann þó að gera upp
hug sinn varðandi gamlan félaga
(Clift), sem gerir uppreisn gegn harð-
stjóminni. Wayne fer á kostum í
óvenjulegu hlutverki þrælmennis og
Brennan er eiturhress og léttir á
spennunni. Mikilfengleg mynd, fal-
lega tekin með hrífandi tónlist og
Qöida valinkunnra aukaleikara.
SERGEANT YORK (1941)
★★★★
Sögufræg mynd um friðarsinna
(Gary Cooper), bónda í Miðríkjunum,
sem kynnist hörmungum stríðsátaka í
fyrri heimsstyrjöld. Snýr til baka sem
hetja og reynslunni ríkari. Örh'tið
bamaleg í dag en hreinskilin og kem-
ur andstríðsboðskapnum skilmerki-
lega frá sér. Coop fékk Óskarsverð-
launin og Hawks sína fyrstu og
síðustu tilnefningu. Myndin er byggð
á sönnum, ótrúlegum atburðum og
lýsir dæmalaust vel hinni alamerísku
goðsögn um karlmennnið. Atriðið með
hundinum og hetjunni á klettasyllunni
gleymist ekki auðveldlega, þótt hún
hafi e.t.v. ekki elst neitt sérlega vel.
RIO BRAVO(1959)
★★★★
Wayne leikur ódeigan fógeta í
landamærabæ í Texas sem setur
ófyrirleitinn stórbónda (Claude Ak-
ins) undir lás og slá. Vitandi að kúa-
smalar hans og annar ótrosalýður
muni reyna að bjarga honum úr fang-
elsinu. Dean Martin er í hlutverki sí-
drakkins aðstoðarlögreglustjóra.
Sagt er að þeim görpunumWayne og
Hawks hafi ofboðið vællinn í Gary
Cooper-karakternum í High Noon og
viijað bæta um betur. Hvað sem því
líður stendur myndin giska vel á eigin
fótum. Endar í glæstum skotbardaga
þar sem illyrmin fá makleg málagjöld
og Wayne fær stúlkuna sína (Angie
Dickinson). Framúrskarandi frá öll-
um hliðum séð.
Sæbjörn Valdimarsson