Morgunblaðið - 31.12.2000, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ
42 B SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2000
kleift að segja upp
launaliðum fari verð-
bólgan yfír ákveðin
mörk. Pví er enn meiri
þrýstingur á stjórnvöld
að sporna gegn þenslu í
ríkisfjármálum, en
, skiptar skoðanir eru um
það hvort nýsamþykkt
fjárlög gangi nógu langt
í þeim efnum. Þá er
ekki síður mikilvægt að
kjarasamningar við op-
inbera starfsmenn taki
mið af almennum kjara-
samningum ef haldast á
friður á vinnumarkaðn-
um.
A árinu hefur allmikil
umræða orðið um Samkeppnisstofn-
un. Urskurður Samkeppnisráðs um
fyrirhugaða sameiningu Lands-
banka og Búnaðarbanka kom mörg-
um á óvart, en jafnframt hafði það
sameiningarmál hrundið af stað
annarri umræðu sem vert er að gefa
nánari gaum. Sú umræða snýst um
tilverurétt íslensku krónunnar og
hvort tengja eigi hana evrunni, því
erfitt yrði að koma hér á virkum
gjaldeyrismarkaði þegar aðeins
tvær stórar bankastofnanir væru
eftir í landinu. Sú umræða vekur
enn og aftur upp spumingar um
Evrópusambandsaðild, kosti hennar
og galla. I áðurnefndu afmælisriti
Kaupmannasamtakanna er sagt frá
frétt í Morgunblaðinu
18. ágúst 1961, um
fund forystumanna í
15 samtökum atvinnu-
veganna. Má þar
nefna Kaupmanna-
samtökin, Félag ís-
lenskra stórkaup-
manna, Vinnuveit-
endasamband Is-
lands, Samband
íslenskra samvinnu-
félaga, Landssam-
band íslenskra út-
vegsmanna, Félag
íslenskra iðnrekenda,
Stéttarsamband
bænda og Alþýðusam-
band íslands. Fund-
arefnið var hvort ísland ætti að
sækja um aðild að Efnahagsbanda-
lagi Evrópu, sem var eins og kunn-
ugt er undanfari Evrópubandalags-
ins. Varð niðurstaða fundarins sú að
flestir fulltrúanna lýstu yfir stuðn-
ingi við að ísland sækti um aðild.
Aðeins fulltrúi ASÍ lagðist gegn því,
en fulltrúi Stéttarsambands bænda
mun fremur hafa hallast að aukaað-
ild að bandalaginu. Nú, tæpum 40
árum síðar, er umræðan enn í gangi,
en nokkur hlutverkaskipti hafa orð-
ið og er ASÍ nú einn ötulasti tals-
maður aðildar að Evrópusamband-
inu.
Þó þau viðfangsefni, sem versl-
unar- og þjónustufyrirtæki eru að
fást við í dag, séu að sumu leyti þau
sömu og fyrir áratugum þá hefur sú
mikla tæknibylting, sem orðið hefur
á örskömmum tíma, sett sífellt
sterkari svip á starfsemi samtak-
anna. Fyrr á þessu ári beitti SVÞ
sér fyrir útgáfu siðareglna um við-
skipti á Netinu og hafa þegar nokk-
ur netfyrirtæki samþykkt þær.
Jafnframt áttu samtökin þátt í mót-
un aukins skilaréttar neytenda í
neytendakaupum og frumkvæði að
því að Samkeppnisráð samþykkti
nýlega leiðbeiningar um gerð og
birtingu verðkannana. Allt miðar
þetta að betri verslun og þjónustu
fyrir viðskiptavini. Samtökin hafa
lýst ánægju með áform EFTA um
gerð fríverslunarsamnings við Kan-
ada og fleiri ríki. Jafnframt bent á
mikilvægi slíkra samninga við
Bandaríkin. Frjáls verslun í víðtæk-
um skilningi er hornsteinn í stefnu
SVÞ. A árinu voru gerðar laga-
breytingar sem heimila skráningu
kaupskipa á sk. þurrleigu á íslandi,
en aðeins eitt kaupskip sigldi þá
undir íslenskum fána og var á sölu-
skrá. Ljóst er að margvísleg verk-
efni bíða úrlausnar á næsta ári á
vettvangi verslunar og þjónustu og
vonandi tekst að leiða þau til lykta
þannig að fyrirtækin og neytendur
njóti góðs af.
SVÞ - Samtök verslunar og þjón-
ustu óska þér og landsmönnum öll-
um allra heilla á komandi ári.
Óskar Pór Karlsson,
formaður Sam-
taka fiskvinnslu
án útgerðar
Þjóðhags-
legir lang-
tímahags-
munir
verða að
ráða
HAGSMUNABARÁTTA SFÁÚ
beinist öll að því að vel rekin fisk-
vinnslufyrirtæki á íslandi geti sem
slík átt sér lífvænlega framtíð. í al-
mennum skilningi hafa auðvitað öll
hagsmunasamtök þetta sama meg-
inmarkmið. Barátta SFÁÚ hefur þó
talsverða sérstöðu. Hún snýst um
það að fá viðurkenningu löggjafans
og stjórnvalda á því að eðlilegar og
sanngjarnar samkeppnisreglur skuli
gilda í fiskvinnslunni rétt eins og
gerist í öðrum greinum. Á það skort-
ir mikið þrátt fyrir að í gildi séu fag-
urlega orðuð samkeppnislög. En
hvað skortir helst? I fyrsta lagi verð-
ur með viðeigandi reglum að tryggja
skilyrði til eðlilegrar verðmyndunar
á fiski. Fiskvinnslufyrirtæki sem
kaupa hráefnið á fiskmörkuðum
starfa í opinni og óheftri samkeppni.
Öðru máli gegnir um útgerðarfyrir-
tæki. Þau fá eins og kunnugt er ár-
lega úhlutun veiðiheimilda og hafa
hingað til notað þessar heimildir sem
greiðslumiðil í viðskiptum með fisk,
sem verður til þess að verulega dreg-
ur úr framboði á fiski inn á fiskmark-
aðina.
I stað þess er fiskurinn seldur í
svonefndum „beinum viðskiptum",
þar sem sýnilegt fiskverð er aðeins
um helmingurinn af markaðsverð-
inu. Þá blasir það einnig við að fisk-
verð í innbyrðis „viðskiptum útgerð-
ar og vinnslu í eigu sama aðila“ er
yfu-leitt úr öllum tengslum við
ríkjandi fiskverð á mörkuðunum.
Állt veldm- þetta alvarlegri sam-
keppnisröskun, sem óhjákvæmilega
verður að takast á við bg eyða.
SFÁÚ gerir kröfur til þess að það
verði gert með því að sett verði lög-
gjöf sem tryggi ótruflaða verð-
myndun og samkeppni í fiskviðskipt-
um.
Þá verður það til þess að bæta
gráu ofan á svart að í hverri viku eru
send til útlanda í gámum hundruð
tonna af óunnum fiski án þess að
fiskvinnslum hér heima gefist kostur
Tryggvi
Jónsson
i
mrlstrún
MQfkúsdöttir v
- móttQko s
Frábær á símanum
og er ?innig
tergisfélagl Juliu Roberts
"n hann lærði lelldist I
I starfaði í 12 ér t Amerfku
ngekk til liðs við Saga
BjQrnl ArQQfSon
- motsuolhn
Allir biða spenntir el
hádegisverðinum, ai
uiAAiir maluránrls MÍ
ftls
WSl&SiÍiSk
Anóu Þto (UoUðóuk
hlowoflíi tíogoft QisVÍ
HQQOl kMtöftnöSC'n
umsjon töeslQteiqu
>L)t Ivtrtrf 4 ktfSkmytttlíi|fð(*í»ðfmi.ti .Iiu'
t*t9Y UfuMiþ&fcktur hatKíhplt.iiu.iður
mt m> th'kktítvii Qfijiitl j.uuKins
AtntgiímmVtf um hu»'tlui
Knvtiun Ki^rMiOQ
sUudiQ- oðstOQ
Ivlendmyur1 Nám t.vkni
í’ótu.t iMguiðsítión
- woihí»lnisatjóik/l«»iMU)óii
i Cotuntbii*
úvttí.vgu ot) *♦{ fýkúrts komimt titfim
twuðaidaUim éitir <t>rf í t.A
Atifl -ti.tv atifttöðtf að sja hdhh
Jón Bjo
- uerkol
Fyrrumht
auk þess
NewYork
áður enh
Fiim.
A'Q) Po 1 lðf\!ít»On
loikoúöc i
Haíuí tinótð iáð itvJkatvhödgðiÖíád.tft
í*?jkvt\Vt .LigKxoQtm'
hw hamM iuj tfimmiiv BefurhJotUý
v'iðittientHógarfyfR flöltiá ÁuQ$|h!9;*