Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.12.1909, Blaðsíða 2

Skírnir - 01.12.1909, Blaðsíða 2
290 Endurminningar. Okkur var hér um bil sama hver það var, því að allir á heimilinu töldu sér skylt að segja móðir minni atfarir okkar. Þá kom hún og sneypti okkur, sérstaklega ef við- höfðum vaðið í sokkum, sem við vorurn nýkomin í, eða ef kjóllinn minn eða buxurnar hans Sigurðar höfðu blotnað að neðan. Hún átaldi Sigurð alt af meira. Hún hélt, að hann réði öllum svaðilförum okkar, af því að hann var eldri. Sigurður bar það aldrei neitt af sér, og mér þótti svo undur vænt um hann fyrir það. Og þegar móðir mín var farin frá okkur, þá þakkaði eg honum fyrir, að hann hafði ekki sagt eftir mér. Á vetrum, þegar snjór var, rendum við okkur á sleða niður bæjarhólinn. Sigurður sat fyrir framan mig og stýrði sleðanum. Eg sat að baki honum, og hélt yfir um hann báðum höndum. Við þutum áfram, og snjórinn rauk í stórum gusum framan i andlit okkar. Þá skýldi eg mér á bak við Sigurð. Stundum valt sleðinn um koll, þegar hann var á fleygiferð, og við kútveltumst í snjónum, en sleðinn þaut sína leið. Þá grét eg oftast, þó að eg meiddi mig ekki, en eg man ekki eftir að Sigurður gréti nokkurn tíma. Hann hjálpaði mér til að standa á fætur, dustaði af mér snjóinn og þurkaði tárin úr augum mínum. Hann sagði mér, að eg ætti að hætta að gráta, og þá gerði eg það. Sigurður hljóp eftir sleðanum, og dró hann upp brekkuna, en eg tölti á eftir. Því næst byrjuðum við á nýjum leik. Við fórum í snjókast, tróðum brautir eða bjuggum til snjókerlingar. Þegar við vorum inni, vorum við látin halda íband- hespur, tæja ull eða vinda af snældum. Móðir raín kendi mér að prjóna, þegar eg var á sjö- unda árinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.