Skírnir - 01.12.1909, Blaðsíða 94
382
Island 1909.
að hætta margir, eða að minka við sig. Allur aflinn nú eins og
3 á móti 4 í fyrra. Fá íslenzk skip voru höfð við hringnótaveiðar,
en reknetaveiðar innlendra manna tókust yfirleitt illa.
V e r z 1 u n i u batnar lítið. Yextir í bönkum lækkuðu þó um
V2% í janúarmánuði, og síðar enn um %%. Peningavandræðin
ekki eins mikil og næstliðið ár, þótt, varla hafi mátt verra vera.
Útlit fyrir. að enn muni rætast nokkuð úr, er Landsbankinn er
aftur kominn í gott gengi með auknu fjármágni, sem síðasta þing
gerði ráðstafanir til að honum yrði útvegað, og ráðherra hefir samið
um lán á. — Útlendar vörur, því nær allar, hafa hækkað í verði
og er það sérstaklega tilfinnanlegt á matvörunni. — Yerð á ull
varð talsvert hærra en síðastliðið ár, hæst 90 aura pundið. —
Hrossamarkaður sömuleiðis miklu betri en undanfarið. — Smjör-
markaður góður er að myndast á Euglandi; verð um 90 aura
pundið, eða hærra jafnvel. — En kjötmarkaðurinn er slæmur, 50
—60 kr. tunnan, öllu verri en í fyrra. Er helzt útlit fyrir, að
aldrei fáist viðunanlegur markaður fyrir saltkjöt, sízt fastur. —
Fiskur hefir enn fallið í verði að miklum mun. Jafnvel lítt seljan-
legur nema úrvalsfiskur. 50—60 kr. mest fyrir valinn málsfisk.
Síldarverðið hefir verið mjög á reiki, frá 10 upp í 20 kr. tunnan;
það er talsvert betra en í fyrra.
H e i 1 s u f a r hefir yfirleitt verið gott þetta ár. Helzt hefir
verið kvillasamt í Húnavatnssýslu og Strandasýslu. Kíghósti og
barnaveiki stungið sér niður hór og hvar. — Botnlangabólga gerir
talsvert meira vart við sig nú en áður hefir verið, og hafa einkann-
lega verið mikil brögð að henni í Reykjavík upp á síðkastið, þótt
hún hafi ekki drepið marga.
Nokkur mannalát og slys:
4. jan. lézt Sigurður bóndi Nikulásson í Þykkvabæjarklaustri.
í janúar Guðmundur læknir Scheving í Hólmavík.
8. febr. Pjetur V. Bjering verzlunarmaður í Reykjavík.
20. apríl Sigurður Jónsson fangavörður í Reykjavík.