Skírnir - 01.12.1909, Blaðsíða 28
316
Um starf og stjórn sjúkrasamlaga.
h. Dagpeningar falla niður, ef samlagsmaður vill
ekki fara í sjúkrahús, að ráði samlagslæknis eða stjórnar
samlagsins; þeir falla og niður, ef sjúklingur hafnar þeirri
meðferð á sjúkdómnum, sem læknir telur nauðsynlega.
i. Dagpeningar falla niður þann dag, er samlags-
maður verður vinnufær, enda þótt hann taki ekki til
verka, eða vanræki að segja frá bata sínum.
j. Ef farsótt gengur, sem vörn er sett við, getur
stjórn samlagsins ráðið því, að allir dagpeningar falli
niður.
k. Dagpeningar eru ekki greiddir, ef samlagsmaður
heldur óskertu vinnukaupi sínu; en ef. kaupið er lækkað,
skal hann fá af dagpeningum sínum það sem lækkuninni
nemur.
l. Samlagskonum skal greiða 10 kr. fyrir hvert barn,.
er þær ala, ef þær hafa verið 40 vikur í samlaginu fyrir
barnsburðinn.
Ef sængurkona sýkist, á hún tilkall til hvers konar
hlunninda úr samlagssjóði, þegar liðnar eru 8 nætur frá
barnsburði.
m. Dagpeninga skal greiða hverjum samlagsmanni,
ef þörf gerist, fullar 12 vikur á hverjum 12 mánaða fresti
(ekki miðað við reikningsár).
Ef dagpeningar samlagsmanns nema þvi, er hann getur haft upp
úr vinnu sinni, mundi margur leitast við að gera sér upp veiki; þess
vegna eru takmörk sett fyrir hæð dagpeninga (2/s) í hlutfalli við dagtekjur.
Það er alheimsreynsla, að rosknir menn verða oftar veikir en þeir,
sem yngri eru; þess vegna vilja sjúkrasamlög ekki selja rosknum mönn-
um háa dagpeningatryggingu.
Ef samlagsmaður liggur í heimahúsum, verður hann að sjá sér
fyrir fæði og hjúkrun; ef hann er fluttur í sjúkrahús, losnar hann við
þau útgjöld; þess vegna er réttlátt, að dagpeningar hans færist þá nið-
ur, eða hverfi, ef þeir eru lágir (t. d. 50 aurar), en sanngjörn nauðsynja-
krafa, að hann haldi þó einbverju af þeim, ef hann á fyrir öðrum að sjá.
Fárra daga atvinnumissir kemur engum á vonarvöl; þess vegna
engir dagpeningar, ef sjúkdómur helzt 7 nætur eða skemur; það sparar
samlagssjóði mikil útgjöld, af því að stutt veikindi eru afar tið. I lög-
um sveitasamlaga skal heimta að sjúkdómur sé tilkyntur deildarstjóra.
Dæmi: Samlagsmaður veikist 1. janúar, tilkynnir sjúkdóm sinn 4. janúar,