Skírnir - 01.12.1909, Blaðsíða 30
318
Um starf og stjórn sjúkrasamlaga.
Ef menn verða að staðaldri ófærir til vinnu vegna heilsubrests, þá
eru þeir nefndir öryrkjar. ÖryTkjar geta lifað árum saraan, enda marga
tugi ára. Sjúkrasamlög fást við sjúkdómstryggingu; þau veita ekki ör-
yrkjatryggingu. Öryrkjatrygging er líka til i öðrum löndum, en hér
er ekki rúm að ræða hana. Af þessu leiðir, að sjúkrasamlög hafa tima-
takmörk á tryggingu sinni yfirleitt. Takmarkið er sett i þessari 8. gr.
Hvernig reikna ber, má sjá af þessu dæmi: Samlagsmaður verður veik-
ur 1. júni 1911, hefir verið alheill undanfarin ár; veikindin ganga
þessa leið:
*/„—23/8 1911 = 12 vikur: Læknishjálp í heimabúsim og dagpeningar.
!4/8—“/u 1911 = 11 vik. 3 dágar: Læknishjálp í heimahúsum.
12/tl 1911 —!9/51912 = 28 vik. 4dag: Borguð sjúkrahúsvist.
Samtals 52 vikur.
Þegar 52 vikur eru komnar, á skemri tima en 3 árum, þá er úti
skuldbinding samlagsins.
Stjórn hvers sjúkrasamlags verður því að semja skrá yfir veikindi
samlagsmanna og hafa hana jafnan fyrir augum, ef einhver samlagsmaður
er lengi eða oft veikur, til þess ekki fari svo fyrir gáleysi, að hann fái
frekari hlunnindi, en lögin heimila.
9. gr.
Skyldur hluttækra samlagsmanna eru,
sem hér segir:
1) Greiða skal inntökueyri, 1 kr., er rennur i vara-
sjóð samlagsins.
2) Hver samlagsmaður skal greiða mánaðargjald, er
fer eftir hæð tryggingar fyrir dagpeningum, þannig:
Dagpeningar Mánaðarg
2,00 kr. . . . . . (1,75 kr.)
1,50 — . . . . . (1,35-)
1,00 — . . . . . (1,00-)
0,75 — . . . . . (0,85 -)
0,50 — . . . . . (0.75-)
Engir . . . . . (0,60 -)
3) Hver sá, sem er 45—50 ára að aldri, er hann
verður hluttækur samlagsmaður, skal greiða viðbótargjald,
10 aura á mánuði, en 20 aura, ef hann er 50—60 ára.
4) Ef annað foreldra er í samlaginu, en hitt ekki,
og gæti þó verið þar samkv. 2. gr., og börn heima innan