Skírnir - 01.12.1909, Qupperneq 21
Um starf og stjórn sjúkrasamlaga.
?09
Uppkast Oddfellowfélagsins
að lögum fyrir sjúkrasamlög i kaupstöðum.
I. Starf samlagsins.
1. gr.
Sjúkrasamlag.........................................
er stofnað ........... dag ...............mánaðar 19......
í þeim tilgangi, að tryggja hverjum hluttækum samlags-
manni uppbót á því fjártjóni, er sjúkdómar baka honum.
Samlagið á heima í ..................................
í enda greinarinnar á að tilgreina nákvæmlega svæðið, sem sjúkra-
samlagið nær yfir.
Rétt er að kaupstaðasamlög nái yfir lögsagnarumdæmi kaupstaðar-
ins. I kauptúnum verður að til taka ljós mörk milli kaupstaðarins og
nærsveitanna. I sveitum mun fara bezt á því, að eitt sjúkrasamlag sé
i hverjum hreppi.
2. gr.
Hverjum manni, jafnt karli sem konu, er frjálst að
gerast hluttækur samlagsmaður, ef hann sannar:
1) að hann eigi heima í................................
2) sé eigi yngri en 15 ára og eigi eldri en sextugur,
er hann beiðist inntöku;
3) hafi eigi árstekjur, er fari fram úr 1200 kr., að
viðbættum 100 kr. fyrir hvert barn innan 15 ára, sem
hann framfleytir;
4) eigi ekki skuldlausar eignir, er nemi meiru en
5000 kr.;
5) hafi ekki árlangt þegið af sveit;
6) sé ekki dæmdur fyrir glæp, eða hafi, ef svo er,
fengið uppreisu á æru sinni;
7) hafi engan viðloðandi eða ólæknandi sjúkdóm, er
skerði eða geti skert vinnuþol hans, og skal hann sanna
það með vottorði frá lækni samlagsins, enda sé hann full-
hraustur, er hann gengur í samlagið.
Öllum, sem eiga heima á samlagssvæðiuu, á að vera heimilt að
ganga í samlagið, ef ekkert er því til fyrirstöðu í lögum þess.
Efnahagstakmarkið (8. og 4. liður) kemur til af því,‘ að sjúkrasamlög