Skírnir - 01.12.1909, Side 22
310
Um starf og stjórn sjúkrasamlaga.
verða að gera sér far um að komast að hagfeldum samningum með af-
slætti bæði við lækna, lyfsala og sjúkrahús; þau verða líka að reyna að
afla sér styrks úr landssjóði og hreppssjóðum, geta með réttu borið því
við, að þau dragi stórum úr sveitaþyngslum. En það er ekkert vit i
þvi, að heimta afslátt og styrk handa vel efnuðum mönnum — það
mundi ekki fást — og þeir fara ekki á vonarvöl, þótt veikindi heri að
höndum, þess vegna engin lifsnauðsyn fyrir þá að vera í sjúkrasamlögum.
Um hámark tekna og eigna má lengi deila. Hámörkin í nppkastinu eru
í samræmi við venjur annara þjóða. Tekjur hænda er erfitt að meta til
peninga; þar mætti miða við tiundina og láta hámarkið vera t. d. 10
hundruð, að viðhættu 1 hundraði fyrir hvert harn innan 15 ára.
3. gr.
1) Hlutlausir félagar geta allir orðið, karlar og kon-
ur, eldri en 15 ára, er fullnægja 1., 5. og 6. skilyrði 2.
greinar og lofa að greiða að minsta kosti 1 kr. í árstillag,
eða gjalda 20 kr. í samlagssjóð, eitt skifti fyrir öll.
Hlutlausir félagar eiga ekki tilkall til neinna hlunn-
inda úr samlagssjóði; en ef þeir greiða 2 kr. eða meira,
hafa þeir atkvæðisrétt á fundum og eru kjörgengir til
allra starfa í samlaginu.
Hlutlausir, en atkvæðisbærir félagar, geta orðið hlut-
tækir, ef efnahagur þeirra versnar og verður í samræmi
við 2. gr., enda færi þeir fram allar þær sannanir, sem
þar er krafist.
Ef hlutlaus félagi hefir sannað á venjulegan hátt, er
hann gekk í samlagið, að hann fullnægi öllum skilyrð-
um 2. gr., nema 3. og 4., enda ss hann eigi eldri en
fertugur, og hafi hann síðan árlega greitt 3 kr. í samlags-
sjóð, þá getur hann orðið hluttækur félagi, hvað sem líður
heilsu hans eða aldri, ef efnahagur hans versnar, en færa
skal hann þó sönnur á, að hann fullnægi öllum skilyrð-
um 2. gr. öðrum en 2. og 7.
2) Nú batnar efnahagur samlagsmanns, svo að árs-
tekjur hans eða eignir fara upp yfir það hámark, sem til
er tekið í 2. gr., og verður hann þá að gerast hlutlaus
félagi, eða fara. úr samlaginu, þegar er hann fær tilkynn-
ingu um það frá samlagsstjórninni. Ef hann skýtur mál-