Skírnir - 01.12.1909, Side 27
Um starf og stjórn sjúkrasamlaga.
315
og þurrabúðarmenn, alla þú, er engan bústofn eiga. Þeir mega fæstir
við því, að missa allan vinnuarð sinn, sizt ef þeir eiga fyrir börnum að
sjá. Þess vegna er þeim líka veittur kostur á því, að tryggja sér mis-
munandi dagpeninga, eftir getu sinni og þörf, og fer mánaðargjaldið
eftir því. í sveitum er síður þörf á þessari tryggingu, þar stendur þó
ekki sulturinn við dyrnar árið um kring, búinn til inngöngu jafnskjótt
sem húsbóndi legst veikur. En rétt þykir þó, að gera öllum fullorðnum
karlmönnum að skyldu, að tryggja sér einhverja dagpeninga.
7. gl’.
a. Samlagið selur engum tryggingu fyrir meiri dag-
peningum, en nemi */8 af venjulegum eða áætluðum dag-
tekjum hans.
b. Þeir sem hafa fimm um fertugt, er þeir ganga í
samlagið, fá ekki keypta tryggingu fyrir meiri dagpening-
um, en nemi 50 a. á dag.
c. Ef samlagsmaður er fluttur í sjúkrahús, lækka
dagpeningar hans um 60 aura á dag; þó heldur hann
þeim óskertum, ef samlagið þarf ekki að borga sjúkrahús-
vistina. Samlagsmenn, er eiga fyrir börnum að sjá innan
15 ára, skulu og aldrei missa meira en svo, er þeir liggja
í sjúkrahúsi, að þeir haldi 30 aurum á dag.
d. Nú vill einhver færa upp dagpeninga sína, og
skal hann þá láta í té nýtt læknisvottorð. Uppfærslu
skal því að eins veita, ef beiðandi er heill heilsu, sbr. 2.
gr., og nýtur ekki hlunninda úr samlagssjóði þegar beiðnin
kemur, enda skal uppfærslan jafnan ganga í gildi í byrjun
næsta reikningsárs.
e. Dagpeningar eru ekki greiddir, ef sjúkdómur helzt
7 nætur eða skemur, en greiða skal ef lengur helzt og
þá jafnan reikna frá þeim degi, er gjaldkera var tilkynt-
ur sjúkdómurinu.
f. Dagpeningar eru ekki greiddir, ef sjúklingur getur
unnið vanavinnu sína að einhverju leyti, og ekki gamal-
mennum, ef elli bagar, en enginn sérstakur sjúkdóinur.
g. Dagpeningar eru ekki greiddir, ef sjúkdómurinn
stafar af drykkjuskap, saurlifnaði eða áflogum, sem sam-
lagsmaður er sjálfur valdur að.