Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1909, Page 72

Skírnir - 01.12.1909, Page 72
360 Að verða úti. an fatnað og sé maður þreyttur, svefnlaus eða svangur getur það fyrir komið að kuldi sæki á hendur eða fæturr en þá er að fara af baki og berja sér, eða ganga spölkorn. Fyrir fótgangandi menn eða ef farið er á skíðum er þessi útbúnaður of þungur og heitur. Nægir þá að vera í einum jakka, einum utanyfirbuxum og ef til vill einum skóm — selskinnskóm með ristarböndum, yfir reiðsokkun- um -— en að öðru leyti vera klæddur á sama hátt. Sé veður gott þegar lagt er af stað, hættir mörgum við að klæða sig í flaustri, en enginn ætti að láta sig muna um að hafa í töskuhorni mývatnshettuna með sér og vetlinga og sokka til vara þegar löng leið er fyrir hendi, því þetta þrent má telja nauðsynlegustu plöggin ef stórhríð dynur yfir. Með þessum línum vildi eg öðru fremur vekja athyglí á mývatnshettunni sem eg tel vera sérstaklega hentugan höfuðfatnað í stórhríðum, og gjöri eg það þess heldur sem hettan er altoí lítt kunn og sjaldséð annarstaðar en i Þingeyjarsýslu (og ef til vill Múlasýslum). Hvað stórhríðarútbúnað kvenfólks snertir, þá er í stuttu máli uin hann að segja, að kvenfólki er hollast að búa sig öldungis á sama hátt og karlmenn. Vilji það endilega vera í pilsi, þá sakar auðvitað ekki að vera í stuttpilsi, en ekki má það ná lengra niður en að hnjám. Pilsin eru skjóllítil og vefjast einungis fyrir fótunum i storminum, öldungis eins og síðfrakkar karlmanua, sem eg tel mjög óhentugar yfirhafnir og engu skjólbetri en treyjur úr þykku efni. Til skamms tíma var það siður sveitastúlkna sem þurftu að gegna skepnum á veturna, að hábinda sig — sem kallað var — í stórhríðum. Habindiugin var fólgin í því að snæri eða reipi var brugðið undir pilsfaldinri og með því dregið upp pilsið milli fótanna svo það líktist víðum stuttbuxum, en bandið fest um mittið. Síðan voru pilsskálmarnar reyrðar með sokkaböndum að fótunum svo að ekki næddi uppeftir. Þetta var skjólgóður útbúnaður, en stirður til hreyfinga. —Mér er fyrir barnsminni hvern-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.