Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1909, Page 88

Skírnir - 01.12.1909, Page 88
378 Erlend tíðindi. var hvatamaður að ófriðnum við Kína og Kóreu og studdi síðast að styrjöldinni við Rússa. Svíþjóð- Þar varð verkfallið mikla bæði lengra og harðvít- ugra en nokkurn mann hafði grunað og langgeigvænlegast allra verkfalla sem orðið hafa á Norðurlöndum. Þar gekk alt í sömu vandræðunum fram undir septemberlok. Cederborg, sáttasemjari, sem stjórnin hafði skipað í þetta stór- mál, gerði hverja tilraunina á fætur annari til að koma sættum á og var svo komíð síðast í september, að verkmenn gengn að sátta- frumvarpi hans óskorað, en verkkaupendur heimtuðu, að þeir mættu einir ráða verkaskilyrðum og vinnutíma og landsfélag verkmanna skyldi bera alla ábyrgð á öllum misklíðum, sem kæmu upp milli einstakra manna eða félaga og verkkaupenda, þó landsfélagið ætti engan þátt í þeim. Hér var auðsénn tilgangurinn, að kyrkja allan félagsskap meðal verkmanna og drepa landsfólag þeirra með öllu. Að þessu gátu verkmenn með engu móti gengið og tóku það fangaráð, að leyfa verkmönnum að ganga úr /msum fólögum sín um, svo þau eyddust ekki með öllu og þyrftu ekki að ganga að sjálfs- morði, og var þá ráðið að halda að eins áfram hjá þeim verkfallinu mönnum, sem fyrst höfðu rekið fólkið burt og urðu með því eftir um 40 þús. sem hóldu verkfallinu áfram. Fleirum treystu verkmenn sór ekki til að sjá fyrir mat, en með þessu ráði unnu þeir það á, að fólagsréttur þeirra var að síðu3tu viðurkendur og að alt skyldi standa við sama og áður styrjoldin hófst. Verksmiðjueigendur og eignamenn höfðu því alls engu náð af því, sem þeir höfðu ætlað sér með burtrekstri sínum. En tjón beggja aðila var gífurlegt og ríkisins þó mest. Sem dæmi má nefna að útfluttar vörur voru 18 milj. minni í ágústmán- uði einum nú en í fyrra, en svo margt veikmanna og iðnaðar streymdi burt af landinu, að öllum ofbauð, jafnvel auðmönnunum, og var búið að skjóta saman á annað hundrað þúsund til varnar því, þegar síðast fréttist. Það eitt barg verkmönnum, að verk- mannafélög nærri allrar álfunnar stóðu með þeim til enda. Af Þ/zkalandi kom þeim t. a. m. 1 milj. og 200 þús. kr„ af Dan- mörku 550 þús. og Noregi hálf miljón kr. Tyrkir og Grikkir voru einir þjóða, sem ekkert sendu. Það þóttu tíðindi að hæstidómur Svía dæmdi Weckse, pró- fessori við Lundarháskóla, tveggja mánaða fangelsi fyrir það, að

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.