Gangleri - 01.12.1870, Side 1
fl. ÍR 4. HEPTI. 1^0.
„MEÐ LÖGUM SKAL LAND BYGGJA, EN
ÓLÖGUM EYÐA“.
pví veröur ekki neitað, að vjer höfum fengið nokkr-
ar góðar rjettarbætur síðan aljiingi vort íslendinga var
endurreist. Síðan alþingi hófst á ný (1845) og fór að
íjalla um löggjöf vora, verður því og ekki neitað, að
lión hafi orðið minna í dönskum anda en áður, málið
á íslenzka textanum betra, og margar ákvarðanir hcnn-
ar betur lagaðar eptir ásigkomulagi landsins og þörfum,
og hugsunarhætti þjóðarinnar.
Aptur á móti verður því ekki neitað, að nokkrar
af laga-ákvörðunum þeim, sem út hafa komið á þessu
tímabili, einkum síðan um 1860, hafi á þann hátt mis-
heppnast, að þær sjeu eigi vel íramkvæmanlegar, svo
sem til að mynda hin margþvælda spítalatilskipun frá
10. ág. 1868, og tilskipun um hundahald 25. júní
1869, -og jafnvel fieiri.
Pá eru það og enn nokkur lagaboð, er út hafa
komið tyrir skemmstu, t. d. tilskipanirnar ura skipamæl-
ingu og skrásetningu skipa, 25. júní 1869, með hinni
löngu og margbrotnu erindisskrá er þeim fylgir1; og til-
pad er eigi samlcxœmt stefnu vorri i grein pessari, ad
fenra rök ad pvi, h e ónaudsynleg lagahod pessi sjeu ; pvípad
lilýtnr 6Ílumt er pan snerta, ad vera ýullljóst, ad á merlan eigi