Gangleri - 01.12.1870, Qupperneq 28
28
þá varla npprof til 13. apríl, svo fært væri bæja
á milli hættulaust. Byljir komu margir og stórir,
og má helzt telja þann er kom á góuþræl 11.
marz; fennti þá víða fje og menn urðu úti. Ilaf-
ís rak þá að Norðurlandi öllu, allt frá Barðaströnd
vestra til Reyðaríjarðar eystra. Yor var kalt og
fjell fjöldi af kvikfjc manna, helzt í Austuramt-
inu. Sumarið varð allgott, og fiskafli góður fyrir
norðan og austan.
1802 gjörði aptur vetur harðan með hríðum og snjó-
komu, helzt fyrir norðan og austan, allt frá vetur-
nóttum og þartil 2 vikur voru af sumri, var sá
vetur kallaður „Snjóaveturinn mikli*. Byrjuðu þá
margir að skera fjenað sinn strax á þorra; fjell þá
margt af kvikfje manna um vorið, og margir urðu
skepnulausir og flosnuðu upp, því vor var mjög
hart, og sumar eitthvert hið kaldasta og bágasta
er menn vita um. Hafís kom snemma, og lá við
Norðurland alla leið, allt til Höfuðdags. Um sum-
arið var grasvöxtur sárlítill, og yfir höfuð að tala
er ár þetta talið eitt hið harðasta.
1803 Var enn allur vetur frá byrjun heldur harður og
áhlaupasamur, en voraði allvel. Bjargarskortur
var þá mikill og dóu margir menn úr ýmsum kvill-
um, en snmir úr harðrjetti,
1806 var vetur harður frá nýári til vordaga; gekk pen-
ingur manna illa undan. Sumarið var kalt og
vætusamt fyrir norðan.
1807 var aptur vetur harður og frostamikill; voru þá
hafþök mikil í kring um allt land af hafís og lag-
naðarís, nema á Faxaflóa; á Norðurlandi sást