Gangleri - 01.12.1870, Qupperneq 33
33
og nyrðra, en þó einkum á Austurlandi; var þá
sumstaðar varla sauðgróður um Jónsmessu, enda
gjörði þá mikið hríðaráfelli. Fjárfellir varð nokk-
ur á Vesturlandi, og hrossafellir í Borgarfirði
suður. Sumarið var allt kalt og vætusamt; voru
þá opt frost um nætur og snjór á fjöllum; sum-
staðar náðust ekki hey eptir Höfuðdag, fyrir snjó
og gaddi; var þá ástand manna mjög bágt og í-
skyggilegt.
1864 Byrjaði vetur snemma um allt land með snjó og
frosti fram að nýári; þá kom 3 vikna bati, en
sfðan var hart til sumarmála; var þá almennur
bjargarskortur fyrir menn og skepnur. Um haust-
ið eptir miðjan október gjörði allmikið hríðaráfelli.
1865 var vetur nyrðra og syðra harður frá nýári, og vor-
ið mjög rosasamt og kalt. Hafíshroði fyrir norð-
an land, allt fram að messum. IJá varð heyskortur
mikill fyrir skepnur, svo margir hefðu fellt, ef
sumstaðar hefði eigi verið gripið til þess, að kaupa
korn til fóðurs þeim, sem sumum kom að góðu
gagni ,en kom þó mörgum í miklar kaupstaðar-
skuldir; og að lokum urðu menn sjálfir bjarg-
þrota, þar allt var komið í skepnurnar. Sumar-
ið var heldur graslítið og nýting á heyjum slæm,
en þó bezt á Norðurlandi; þar var opt kuldi sem
annarstaðar varð væta meiri.
1866 Frá nýári var vetur og vor eitthvert hið harðasta
hvað tíðarfar snerti, sem komið hefir á þessari
öld. fá rak hafís að í febrúarmánuði og gjörði
hafþök svo mikil fyrir öllum Vestfjörðum, Norð-
urlandi og Austfjörðum, að af hæstu fjöllum sá
(Jaugleri IV. hepti. 4