Gangleri - 01.12.1870, Síða 46
4«
TIL KAUPENDA „GANGLEKA*.
Um leií) og vjer sendum yfcur, háttvirtu kaupendurt sífe-
asta hepti hins fyrsta árgangs Ganglera, þykir oss hlýha, að
votta yður þakklæti vort fyrir viðtökur þær, er þjer hafið
veitt Ganglera þetta fyrsta ár hans; og sömuleiðis yöur,
hæðstvirtu útsölumenn, fyrir alla aðstob yöar og íyrirhöfn.
þa& var meb kví&a, að vjer byrjuðum að gefa út rit þetta,
fyrst í því tilliti, að fáir mundu gjörast kaupendur þess, eða
vilja sinna því, svo vjer yrðum fyrir skaða og hlytum fyrir
þá sök að hætta útgáfunni að árganginum loknum ; en þetta
hefir snúist nokkuð á annan veg. Gangleri hefir fengið ná-
lægt 700 ,.kaupendum, og er það, fáist borgunin, nægilegt
til að endurborga kostnað vorn. Vjer bárum og kvíða fyrir
því, ab oss mundi eigi heppnast að gjöra Ganglera svo úr
garði að efninu til, að kaupendum geðjaðist hann yfir höfuð,
1— aö gjöra svo öllum líki er ómögulegt — en vjer höfum
reynt að gjöra það eptir föngum. Vjer höfum að vísu eigi
orðið varir nokkurrar verulegrar óánægju með rit vort hjá
kanpendum þess; en vjer finnum það bezt sjálfir, að því hefir
verið ábótavant í mörgu; en af reynslunni lærir maður bezt.
Nokkrir hafa sett út á form ritsins: þókt það koma of sjaldan
út, og álitið hentugra, að það kæmi út einu sinni í mánuði,
svo sem 1 örk, og neitum vjer eigi, að þeir hafi mikið til
síns máls.
það er því áform vort, að halda ritinu áfram næsta ár,
en Iíklega í því formi, að 1 örk komi út af því einu sinni f
hverjum mánuði og ætlumst vjer til, að verð þess fari eptir
arkafjölda, eins og áður. Með því nokkrum af þeim tálm-
unum er nú úr vegi rutt, er verið hafa góðri útgjörð rits-
ins til fyrirstöðu þetta ár, og sá maður hefir gjörzt meðlimur
fjelags vors næsta ár, sem almennt mun talin einhver
hinn fjölhæfasti, lærðra manna hjer norðanlands, vonumst vjer
eptir, að Gangl. geti orðið betur úr garði gjörður hjer eptir
en hingað til; eins og vjer einnig berum það traust bæði tii
hinna háttvirtu útsölumanna hans og kaupenda, að þeir fram-
vegis sýni Gangl. eigi minni velvild, aðstoð og góðar viðtök-
ur en hingað til,
Að endingu biðjum vjer þá af vorum heiðruðu útsöln-
mönnum, er eigi hafa þegar sent oss andvirði Gangl. 1870,
að gjöra það nú sem allra fyrst. Útgefendurnir.
Útgefendnr: Nokkrir Eyfirðingar.
Ábyrgðarmaðnr: Friðbjörn Steinsson.
Prentsður á Akureyri 1870. Júuas Sveiusson.