Gefn - 01.01.1874, Side 16
16
suður á bóginu af norðurföllunum. Bæði þetta og en norð-
lægari hnattstaða er orsök þess að nokkuð kaldara er fyrir
norðan land en sunnan. Mjög kvarta œenn yflr umhleypíngum
og stórviðrum á íslandi, en beri menn það saman við önnur
lönd, þá mun annarstaðar vart verða betra en hjá oss, að
fráreiknaðri hnattstöðunni og skógleysinu. Menn hafa enga
hugmvnd á Islandi um ofstæki veðráttunnar í sumum öðrum
löndum, sem þó eru ekki nídd eins niður og vort land, né
nefnd með ónotum og hatri fyrir það sem náttúran ræður.')
Á enum hærstu jöklum þiðnar aldrei snjór, nema ef
eldur kemur upp í þeim. Takmark það, þar sem snjórinn
hættir að þiðna á sumrin, og óbræðilegur jökull byrjar, kalla
menn snjólínu, og liggur hún því hærra á fjöllunum, sem
þau eru nær miðjarðarlínunni, en út við heimsskautin ætti
hún að liggja niður við jörðu. Á Austurjöklum hefir
snjólínan verið reiknuð 2808 fet frá sjávarmáli2); þau íjöll,
sem svo eru há, eða lægri, eru því snjólaus á sumrin (o:
á hér um bil jafnri breidd), en hvað þar er fyrir ofan, er
jökull. þetta er samt nokkrum breytíngum undirorpið, því
snjólínan breytist eptir árstíðunum; ekki fellur hún heldur
') Til samauburðar má nefna herferð Rússa til Khiva 1839—40,
sem þeir fóru til að ná aptur þúsund mönnum sem Kirgísar
höfðu tekið frá þeim; þángað fðru 7000 menn með 2300 hesta
og 12,800 úlfalda; af úlföldunum kólu 12,600 í hel; kuldinn
var minnst 18 stig, mest 35 stig (Réaumur); kvikasilfrið í
hitamælunum fraus, úrin stóðu; 29 kafaldshríðir komu með
25 stiga frosti. petta er eigi eindæmi, heldur er þannig að
jafnaði á veturna í þessum löndum, og á sumrin aptur nærri
því 40 stiga hiti. 1827 kom svo mikil kafaldshríð með frosti
syðst í Úralfjöllunum, að þar féilu 280 þúsundir hesta, 30
þúsundir nautgripa, 10 þúsundir úlfalda og ein millíón sauða.
Ilniar landa þessara eru mjög ómenntaðir og hafa enga æðri
hugmynd en rússneska þrælkun. pettaerritað í Ai. Humboldt,
Asie centrale III, 72 og 557.
3) Á Mundíafjöllum er snjólínan 8124 fet, á Himalaja 16000 fet
frá sjávarmáli.