Gefn - 01.01.1874, Page 17

Gefn - 01.01.1874, Page 17
17 saman við línu þá á hnettinum þar sem hitamælirinn vísar á 0. Vðr setjum hér hæð nokkurra fjalla á íslandi eptir enum minna uppdrætti bókmenntafélagsins (talan aptanvið merkir hæðina frá sjávarmáli í íslenzkum fetum); Öræfajökull 6241 Snæfell 5808 Eyjafjallajökull 5432 Herðubreið 5290 Hekla 4961 Snæfellsjökull 4577 Heljarfjall 3991 Smjörfjall 3859 Afréttartindur 3842 Kaldbakur 3699 Dyrfjöll 3606 Gláma 2872 Drángajökull 2837 Vífilsfell 2709 Lómagnúpur 2455 J>ríhyrníngur 2387 Ingólfsfjall 1742 Klofníngur 1598 Keilir 1239 Akraíjall 1160 Heimaklettur 916 Ingólfshöfði 260 Mælifellshnúkur 3476 Papey 169 Búlandstindur 3388 Reykjavík (Hólavöllur) 56 Gagnheiðarhnúkur 3009 Akureyri 18- Vér nefnum falljökla, skriðjökla og jökulhlaup. Allir jöklar eru í raun og veru falljöklar, því þeir síga óaflátanlega niður á láglendið, en bæði er það, að menn taka ekki eins eptir þessari hreifingu á íslandi eins og t. a. m. í Sveiss, þar sem jöklarnir ná niður í frjóvsama dali, en hjá oss eru þeir í óbygðum, enda bráðna þeir og að miklu leyti jafn óðum og berast til sjávar af jökulvötnum. þetta er auðskilið af því að jökullinn hlýtur ávallt að vaxa af því vatni sem upp stígur af jörðunni sem gufa, og fellur aptur niður á hana sem regn eða snjór, og frýs svo á jöklinum, verður þar að svelli og eykur svo jökulbúnguna; jökullinn þýngist því alltaf meir og meir og skríður eptir fjaliahlíðunum sem hann liggur á. En það sem vér köllum falljökla og jökulhlaup, það kemur sumpart af jarðeldi, sem bræðir og losar jökulbúnguna, svo hún getur ekki borið sig, en hleypur fram; eða þá það kemur af vatni, sem smám saman hefir safnast í holur í jöklinum og grafið hann í sundur. Fall- 2

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.