Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1894, Page 10
10
í afhúsið eru nál. 2 al. langar og rúml. 1 al. víðar. Afhúsið
sjálít er litið, hjer um bil 2 faðm. langt og l1/* faðm. breitt. En
tóft þess var miklu glöggvari en aðaltóftin. Jeg ljet grafa af-
hústóftina alla upp. Þar voru stórir undirstöðusteinar allt um
kring og virtust eigi gengnir mjög úr lagi, enda er berg undir.
En af því bergið er ósljett, hafði gólfið verið sljettað með því,
að helluleggja það. Á norðvesturendanum var bil nokkurt milli
undirstöðusteina og getur verið, að það hafi verið meira áður,
því þeir steinar hötðu auðsjáanlega haggast meira eða minna;
mun halli, sem þar er á grundvellinum, hafa valdið þvi. Gæti
jeg næstum trúað, að þar hafi verið útidyr á afhúsinu; en um
það skal jeg samt ekkert fullyrða. Það var einkennilegt við
þessa afhústóft, að inni í henni, rjett fyrir innan millidyrnar,
stóð einstakur steinn svo stór, að tvo menn fullgilda þarf til að
velta honum. Hann hefir hlotið að vera settur þar inn af mönn-
um. Úr veggjunum gat hann ekki hafa fallið, því slíkt bákn
hefði engum byggingarmanni dottið í hug að nota nema í undir-
stöðu. En undirstöður hjeldu sjer þar allstaðar. Ekki þori jeg
að segja með vissu, að steinninn hafi staðið óhaggaður eins og
hann hafi verið settur. En þó hygg jeg að hann hafi ekki hagg-
ast til muna, því það vakti eftirtekt mína, að hinn eini sljetti
flötur, sem á honum er, vissi upp og hallaðist lítið. Kom mjer í
hug, að hann kynni að hafa verið stalli og goð staðið á honum.
Samt hefði þar varla getað staðið nema eitt goð eða tvö, nema
þau hefði verið því smávaxnari. Og það er nú í sjálfu sjer lík-
legra, að í heimilishofum hafi vanalega einungis eitt goð verið
tignað, það er bóndinn hafði sjer í lagi átrúnað á. En um það
getur enginn vafi verið, að þetta hefir verið heimilishof en ekki
höfuðhof. Það vita menn að var að Hofi í Gnúpverjahrepp. En
heimilishof hafa ekki verið sjaldgæf. Þannig heitir »Goðavöllur«
í túninu á Sandlæk í Gnúpverjahrepp, og djúp lág í þeim velli
heitir Goðalág. Það er nokkurnveginn auðsjeð, að lágin öll er
ekki annað, en djúpt niðurgrafin tóft, sem hefir dálitla afhús-
tóft við annan endann, og hafa dyr aðaltóftarinnar verið á hlið-
veggnum hjá afhúsinu. Bæði af þessari lögun og af nöfnunum
má ráða, að þetta muni vera hoftóft. Einnig heitir Goðalág í
túninu í Fossnesi í sama hrepp. Sú lág er í sljettum hól, og
líkist niðurgrafinni hústóft. Hóllinn stendur austur við gljúfrið,
þar sem fossinn er, sem bærinn er kenndur við. Mætti imynda
sjer, að »vættur fossins* hafi verið blótuð í því blóthúsi, er gef-
ið hafi tilefui til að nefna tóft þessa Goðalág. En hvað sem um