Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1894, Side 32
Líkneski
r
Olafs konungs hins helga Haraldssonar.
Eptir
Pálma Pálsson.
----i----
Af útlendum dýrlingum hefir enginn komizt til slíks vegs
og gengis hér á landi sem Olafur Noregskonungur Haraldsson,
enda hefir án efa enginn þeirra haldið tign sinni óskertri jafn-
lengi sem hann, því að hann var dýrkaður hér og hans árnað-
arorða leitað jafnt af háum sem lágum frá þvf er helgi hans
kom fyrst upp á öndverðri 11. öld og þar til er kaþólsk trú var
hér brotin niður með ofríki á miðri 16. öld eða full 500 ár. En
margt mun hafa borið til þess að Olafur konungur varð íslend-
ingum þegar í öndverðu einna kærastur allra helgra manna eigi
sfður en Norðmönnum sjálfuin, því að bæði hafði hann alla þá
tíð, er hann sat að ríkjum, verið vinveittur Islendingum þeim,
er sóttu hann heim, gert suma þeirra að hirðmönnum sfnum eða
trúnaðarmönnum og veift öðrum stórgjafir, og af annari hálfu
var kristnin hér á landi ung og magnlítil, þá er helgi hans kom
upp, og hafa klerkar því tekið fegins hendi þeim boðskap að
hann hefði lagt lff sitt f sölurnar fyrir sannindum réttrar trúar
og dáið píslarvættisdauða, því að það hlaut að geta orðið hinn
mesti styrkur kristninni, eptir þvi sem hugum manna var varið
á þeim öldum, ef slíkur maður sem Olafur konungur yrði viður-
kendur sem guðs dýrlingur og árnaðarmaður allra sanntrúaðra
manna fyrir guði, því að:
hann um getr
af guði sjálfum
ár ok frið
öllum mönnum,