Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1904, Síða 32

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1904, Síða 32
ár óg þar mun grafletrið mest hafa eyðst, því hann hefir verið notaður sem tröppusteinn. Til að forða steininum undan eyðileggingu fór eg þess á leit i sumar við kirkjubóndann hr. Þórð Þórðarson á Leirá, að steinninn yrði trévarinn að ofan og mun það verða gert. Jón Jakobsson. Legsteinn sira Sigurðar Sigurðssonar á Staðarstað (d. 1690). [Steinn þessi er úr rauðbleikum granit; er 23/4 ál. á langveg og 2 ál. á þverveg. Steinn þessi var áður í kórgólfi kirkjunnar á Staðarstað, en síðan kirkjan var flutt, fyrir fáum árum, liggur hann á gamla kirkju- stæðinu undir berum himni. Hfst í vinstra horni steinsins er mynd af rosknum karlmanni og konu saman, og í neðsta horni vinstra megin er aptur mynd af sama karlmanninum og í hægra horninu að neðan mynd af sömu konunni. Eru líkindi til, að það sé myndir þeirra hjóna síra Sigurðar og Sigríðar Hákonardóttur, en hún hefir látið setja steininn. Efst í vinstra horni steinsins er mvnd af ungum manni á slagakápu, held- ur harðleitum, og má ætla að það sé mynd af Oddi lögmanni syni þeirra1). En þetta er letur á steininumj: C. S. Sepulcrum | uiri j genere ac virtute clarissimi pietate ac | morum svavitate spectatissimi: | Domini Sigurdi Sigurdii ecclesiæ huius | Stadastadensis qvondam | pastoris vicinarumqve præpositi | laudatissimi | qvi ex hac miseria- rum valle ad coelestem | patriam: pie ac placide migravit Anno | Salvatoris ClD I'JC LXXXX: die XVII Novemb: | ætatis suæ XLIV ministerii XI. | Marito desideratissimo: P(osuit) | Sigrida Haconis F(ilia) cum duobus liberis | superstes vidua moestissima. Præpositi qvondam Sigurdi heic ossa qviescunt ast animam sanctam dextra habet alma dei. 1) Þessar myndir þyrfti að fá teikriaðar eptir steininum.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.