Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1904, Síða 38

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1904, Síða 38
3» allar hér um bil eins, og fyrir ofan þær yzt úti i efri hornunum eru smákrossar. Milli englamyndanna fyrir ofan letrið er viánnsandlitsmynd og rós með 6 blöðum fyrir ofan hana, en sinn hvoru megin eru sivafningar, eins og bagalhöfuð, og fyrir ofan hvorn þeirra eru 2 aðrir álíka, en þó minni. Milli englamyndanna fyrir neðan letrið eru' 2 mannsjœtur og sinn hvoru megin við þá eru sívafningar, ámuna og að ofan, i stór hvoru megin, en engir smáir; undir fótunum eru tvær boglínur samhliða {'^z). Bekkur er höggvinn utan um alt saman. Þessar myndir munu hafa verið gerðar helzt til skrauts, en vera kann að mannsmyndin, höfuðið fyrir of- an og fæturnir fyrir neðan grafskriftina, eigi eins og að tákna þann er steinninn er yfir. Til þess að greina orðin að eru settir 2 deplar, eins og á steini nr. i, og þó vantar raunar þessa depla i io., 13., 14. og síðustu línu, rnilli orðanna HLVTTAKANDE og ORDNER, milli I og G í enda 13. 1., milli ANN° og ártalsins, og vegna rúmleysis hefir leturhöggvarinn högg- við 3 síðustu orðin þannig: IGVDSH, í st f. I : GVDS : HENDE, svo að þar vantar deplana á tveim stöðum og síðasta orðið skammstafað. Aftur á móti er sumum af samsettu orðunum skift sundur með deplum: KROSS : REINDVR : OG : RIETT : TRVADVR , IFER : VNNV , VEG : FERDAR : DAGAR. Stafirnir eru eins og upphafsstafir í latínu- letri. í orðinu SAMTT (í 6. 1) og RIETT (í næst siðustu 1.) eru T-in dregin saman. Stafirnir hafa líka merkingu á þessum steini og á steini nr. 1, þannig er a- og a-hljóð táknað með A, /-, i- og í-hljóð með I, 0- og d-hljóð með O, u- og ri-hljóð með V; i- (eða a.)hljóðið í hreimlausum endingum orða er táknað með E, nema í SIGVRSINS í 9. 1. (sbr. HOLLDSINS á st. nr. 1). Je-hljóðið, sem er tilorðið úr gamla langa e- hljóðinu og. áður fyrri var táknað með é, er hér samkv. framburði ritað IE í orðunum HIER (1. 1.) og RIETT (í 4. og 15. 1.). Stafurinn Y er ekki notaður; i stað hans er eðlilega haft I samkv. framb.: REINDVR (í 3. 1.), IFER (í 7. 1.), DEIA (í 11. I.), í stað deyja. C er haft í orð- unum CHRISTO (í 8. 1) og MARCI (í næst síðustu 1.) samkvæmt latn- eskum rithætti á þessurn nöfmim, sem hér eru lika beygð eins og í latínu. Auk þess er C haft fyrir framan K í orðinu ECKE (í 11. 1.); það erforn ísl. ritháttur að rita -ck fyrir -kk-, og í sænsku er það gert enn i dag. D- og Ú-hljóð eru táknuð með D. — Talan 2 i 62 er líkust z. O i ANN° er miklu minna en hinir stafirnir og stendur efst í línunni eins og hér. HIER : VNDER : HVILER GREPTRADVR : ERLEG VR : KROSS : REINDVR : OG ; RIETT : TRVADVR

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.