Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1904, Side 41

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1904, Side 41
Um stofnun Fornleifafélagsins og framkvæmdir þess 1879—1904. Sumarið 1879 var töluvert umtal um það, hvort sú skoðun mundi vera rétt, er þeir héldu fram, Guðbrandur Vigfússon og Kr. Kaalund, að Lögberg mundi hafa verið við Almannagjá, en eigi á þeim stað, sem svo hefir verið nefndur á síðari tímum. Það þótti því áríðandi, að gjöra rann- sóknir um þetta, og það mun hafa verið einna helzta tilefnið til þess, að Fornleifafélagið var stofnað. Hinn 15. okt. 1879 áttu þessir menn fund með sér: Arni Thorsteinsson, landfógeti. Bergur Thorberg, amtmaður. Björn Olsen, skólakennari. Carpenter W. H. málfræðingur frá Utica N. Y. Eiríkur Briem, prófastur. Fiske, Willard, prófessor við Cornell-háskóla. Indriði Einarsson, cand. polit. Jón Arnason, bókavörður Jón Hjaltalín, landlæknir. Jón Þorkelsson, rektor. Magnús Stephensen, yfirdómari. Matthías Jochumsson, ritstjóri. Reeves, Arthur, frá Cornell-háskóla. Sigurður Vigfússon, gullsmiður. A fundinum tók Sigurður Vigfússon fyrstur til máls og stakk hann upp á, að menn gerðu félag með sér til að vernda fornmenjar hér á landi og einkum til að grafa upp á Lögbergi. Eftir að mál þetta hafði verið rætt, var nefnd kosin til að semja lög fyrir félagið. Og er nefndin 5

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.