Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Qupperneq 2
*
var það ljóst, að oft þurfti að athuga mörg af nöfnunum á ný, að
nauðsynlegt væri, að fá samverkamenn, er að ýmsu leyti tækju að
sjer málið eða eitthvað af því. En það er ekki aðeins bæjanöfn,
heldur og örnefni yfir höfuð sem þarf að safna og rannsaka Það er
margra manna verk um lángar stundir. Því má nærri geta, að jeg
las ritgjörð H. Þ. með athygli og bjóst við miklu nýju. Þar er og
ýmislegt nýtt i, er jeg vík síðar að sumu að minsta kosti. En jeg
varð þó að öðru leyti fyrir vonbrigðum. Því að nýjar skýríngar
urðu miklu færri, en jeg bjóst við. Mig rámaði í svo mart, sem mig
minti á mína eigin ritgjörð, og er jeg bar saman ritgjörðirnar, fann
jeg fljótt, að H. Þ. hafði sömu skoðauir og jeg um hávaðann af
nöfnunum. Mjer er óhætt að segja, að af þeim hjerumbil 670 nöfn-
um, sem hann fer með, eru það á 5. hundrað, þar sem Bkýríngin
hjá honum er sú sama, sem hjá mjer, eða nærfelt sama; stundum
er hann nokkru vissari eða ákveðnari, þar sem jeg t. d. segi »ef
til vill«, segir hann »eflaust« eða því um líkt. Það er því góð trygg-
íng fyrir þvi, að skýríngin sje rjett, þegar tveim ber saman, þótt
ekki þurfi ætíð svo að vera. Höf. hefði eftir þessu oft getað gert
sjer hægt eða hægra um hönd með því að vísa til ritgjörðar minn-
ar þar sem hann var sömu skoðunar, svo gera vísindamenn vana-
lega, ekki síst þegar um skamt tímabil milli tveggja rannsókna er
að gera. En höf. vitnar í mína ritgjörð ekki nema á 2—3 stöðum
og þó helst um það atriði, hvernig nafn sje skrifað í jarðabók Árna.
Jeg vil hjer til sönnunar máli mínu taka nokkur dæmi, er sýna
skoðanalíkíng og stundum orðalagslíkíng þá, sem er með höf. og
mjer.
F. J. »Vá- varð eðlilega vo- og svo afbakaðist vo- í voð- vot-«.
H. Þ. »Vámúla . . hefur eðlilega breyst í Vomúla, Voðmúla eflaust
leiðrjettingartilraun*.
F. J. Báreksstaðir: »nafnið Bárekr er gamalt (og Báreksstaðir voru
til í Noregi)«.
H. Þ. »Bárekr er fornt, norrænt nafn, og Báreksstaðir eru i Sogni
í Noregi*.
F. J. Grímastaðir »er eflaust latmæli fyrir Grímars-*.
H. Þ. »en Grimastaðir latmæli*.
F. J. Digranes »ef til vill rjettara*.
H. Þ. »enginn vafi er á því að Digranes er rjetta og upphaflega
nafnið*.
F. J. »Af Glý eða Glýr, sem eflaust hefur verið viðurnefni«.
H. Þ. »Mishepnuð leiðrjetting. Glýr hefur verið viðurnefni*.
F. J. »Flysju(8taðir) er víst rjettara (sbr. Flysjuhverfi)«.