Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Síða 29

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Síða 29
yy einmitt land eða engi, sem farið hefur verið eldi um (þ. e. brennt) til að bæta það, og væri þá = sviðuland. Méi finnst það dálitið eðlilegri skýring en hitt, sem naumast getur náð nokkurri átt, sé nafnið gamalt. Eins má segja um Veiðilausu (Veiðileysu), sem er gamalt nafn (sbr. Landn) að það væri mjög einkennilegt, ef hin upphaflega merking þess væri aflaleysi í þeim flrði, er bærinn stend- ur í. Eg er að vísu ekki kunnugur staðháttum þar, en þar kvað vera góðar engjar, og tvær ár renna þar í fjörðinn. Mér þykir lang- eðlilegast, að nafnið sé miðað við engi, er liggi að á, eða beggja vegna ár, sem veiði er i, (t. d. silungsveiði), sbr. engjar á Vatns- leysunum þremur, er liggja að vötnum (ám). Um Skyrleysu eða Draflaleysu þarf ekki að ræða í þessu sambandi, því að það eru skrípanöfn á smákotum, sem tekin hafa verið upp löngu eptir að hin upphaflega og rétta merking í «lausa« (»leysa«) var gleymd. Eg þykist þvi hafa fært sterlcar likur fyrir þvi, sem nálgast sannanir, að skýring mín á Vatnsleysu o. fl. sé rétt, enda í samræmi við þá niðurstöðu, sem danskir og sænskir vísindamenn hafa komizt að um samskonar nöfn, svo að eg hvorki blikna né blána fyrir fullyrð- ingum höf. í öfuga átt. En svo er eptir að vita, hvort nafnið Sauðlausdalur (en svo er elzta myndin langa tíma) er ekki réttast skýrt með því, að þar sé góð fjárbeit eða sauðahagi, því að sögn nákunnugs manns eru einmitt beztu slægjur og hagar þar á dalnum, en hitt er fremur óeðlilegt, að það sé = fénaðarlaus dalur, og verð eg því að telja skýringu mína sennilegri, meðan eg fæ ekki aðra betri, enda þótt breytingin á Sauðlausudal í Sauðlausdal verði ekki fylli- lega skýrð málfræðislega, en sama er að segja um margar fleiri nafnabreytingar en þessa. Þá kem eg loks að þremur hinum síðustu atriðum í ritdómi höf., þar sem hann að fullu og öllu fordæmir niðurstöðu mína með hinum alkunnu fullyrðingum sínum, en þar þykist eg einnig hafa gildar varnir, sem erfltt mun að hrekja með réttu. Um Þorvarðsstaði í Fljótshlíð er höf, mjög digurmæltur, að þar hafi mér »skjátlazt heldur en ekki«, með því að segja, að nafnið hefði framburðarins vegna afbakazt í Torfastaði. Höf. gerir sér þar lítið fyrir og beitir óleyfilegum útúrsnúningi, þar sem hann segir, að Þorvarður geti aldrei orðið Torfi og hafl aldrei verið það Þetta er beint ranghermi, því að eg hef aldrei sagt það, en hitt hef eg sagt, sem er dálitið annað, að Þorvarðsstaðir hafi í framburði afbak- azt I Torfastaðir. Veit hann þá ekki, að Þorvarðsstaðir hljóta að hafa verið bornir fram Þorvastaðir eða Þorfastaðir? Og frekar þarf ekki vitnanna við, því að hvað var þá eðlilegra, en að menn, sem
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.