Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Blaðsíða 32

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Blaðsíða 32
32 tir Ævars aldrei verið, og er því hín fortakslausa fullyrðing höf. um það algerlega dauðadæmd til eilífrar tíðar. Hinsvegar hef eg getið þess til í ritgerð minni, að Ævarsskarð hafi verið þar sem nú er Litla Vatnsskarð, og tekið meðal annars fram, að nafnið hefði hæglega getað afbakazt í framburði, nfl. Ævarsskarð—Vasskarð— Vatnsskarð. Þetta telur höf. »óhugsandi«, af því að aðaláherzlan hafi hvílt á fyrri samstöfunni Æv-, er hafi ekki getað misst þessa áherzlu eða flutzt yfir á -vars, en þetta er afarhæpin fullyrðing, og eg leyfl mér að segja röng, því að málfræðingar, sem eru fullkomlega jafn- snjallir höf. hafa sagt, að þessi breyting væri einmitt eðlileg, því að Æ-ið í Ævar væri hljóðnæmt og gæti því hæglega fallið burtu eða runnið saman við -vars (frb. -vass), og tek eg þau ummæli trú- anlegri, en fullyrðingu höf. En svo er annað, að eg þarf alls ekki á þessari framburðarbreytingu að halda til þess að staðfesta skýr- ingu mína. Og skal eg þá fyrst geta þess, að Vatnsskarð (síð- ar Litla Vatnsskarð) var, fyrrum að minnsta kosti, eins og eg segi i ritgerð minni, einn hluti úr jörðinni Móbergi í Langadal, bústað Vefreyðar Ævarssonar, og það hafa sagt mér kunnugir menn, að ekki sé langt á milli bæjanna, og að vegur (Strjúgsskarð) liggi frá Strjúgi, næsta bæ við Móberg, þar yfir Langadalsfjall út í Laxár- dal, en þar er bærinn Litla-Vatnsskarð skammt frá skarðsmynninu hinu meginn. Ævar hefur því tekið sér bólfestu í nágrenni við son sinn og auðvitað í landnámi sínu, þvi að hann nam ekki að eins efra hluta Langadals upp frá Móbergsbrekkum, heldur einnig þar þvert yfir austanvert við Langadalsfjall t. d. Gautsdal og efsta hluta Laxárdals »ofan til Ævarsskarðs«, eins og Melabók segir, og svo enn lengra þar norður eptir frá Ævarsskarði (líklega þar sem nú eru jarðirnar Refsstaðir, Vesturá, Sneis, Kirkjuskarð og Núpsöxl, aliar i Laxárdal, einmitt norður frá Litla Vatnsskarði). En til frek- ari áréttingar, og eg vil segja, fullrar sönnunar fyrir tilgátu minni um Ævarsskarð, skal eg loks geta þess, að næstliðið sumar, eptir að ritgerð mín var prentuð, fann eg í handriti í landsbókasafninu örnefnaskýringar úr Húnavatnssýslu, ritaðar 1871 af mjög vel greind- um og mjög fróðum manni, Jóhannesi Guðmundssyni á Gunnsteins- stöðum, síðar Hólabæ í Langadal (f 1879), er var þaulkunnugur á þessum slóðum og mestan hluta æfi sinnar í nágrenni við Móberg, Strjúg og Litla Vatnsskarð. Hann getur þess, að ýmsir hafi verið að brjóta heilann um, hvar Ævarsskarð hið forna hafi verið og segir, að flestir hafi hallazt að Litla Vatnsskarði (Stóra Vatnsskarð nefnir hann vitanlega ekki), og færir sem sönnun þess, að sá bær hafi verið fluttur, vegna þess að hinn gamli hafi farið af fyrir skriðufalli,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.