Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Page 42

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Page 42
Smávegis. Um nokkra staði og fornminjar, er höf. hefir athngað á skrásetningarferðum sinum. Eramhald greinanna í Árb. 1920. Fornt mannvirki í DagverDarnesseli. 25. VII. 1911. I Dagverðarnessels landareign, á vinstri hönd við veginn þá er farið er niður að Dagverðarnesi, upp af nesi því er nefnist Saltnes, beint fyrir norðan holt, sem kallast Þrívörður, er grjóthringur, eða sem sporbaugshelmingur að lögun, afarstór, 40 fet að 1. og 30 að br., og er grjótbunga, með grassverði og lyngi, í miðju. Virðist kunna að vera forn haugur, en samansiginn og blásinn upp. Engar sagnir eru um haug þennan, en gamlar getur um, að hann muni vera forndys. — Sumum hefir þó komið til hugar, að hann mundi vera samanhrunin fjárborg, en margt mælir á móti því að svo sje, svo sem það, að engar dyr sjást á mannvirki þessu, engar slíkar fjár- borgir þekkjast hjer, beitilandið er aðallega sunnar, o. s. frv. — Samanhrunin varða virðist vera nyrzt í hring þessum, allmikil grjót- þúst. Fornar ekrur og tóttir á Ormsstöðum. 26. VII. 1911. Skamt fyrir suðvestan bæinn á Ormsstöðum er allmikið svæði, er nefnist »Ekrurnar«; dregur það nafn af (2) fornum ekrum, sem eru sunnanundir næstu holtunum. önnur er með glöggum garði, hjer um bil umhverfis, utaní brekku, rjett á móti suðri og í skjóli fyrir norðanvindi, sem helst er þar að óttast. Þversum yfir ekruna, heldur vestar en um hana miðja, er útflatt og óljóst garðlag, boga- dregið, en ' garðlögin^ umhverfis mega heita bein. L. 360 fet, br. í eystri endann 100 fet, en í vestri endann 68 fet.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.