Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Page 47
47
tíma í fyrndinni, hafl borið stein þennan heim ofan frá Bogahlíð í
kyrtilskauti sínu, eða skikkjulafi sínu; í annari sögninni stendur:
»í hempuvasa sínum«. — Bogahlíð er hins vegar í dalnum. — Um
það er svo kveðið:
Það var maður á þeirri tíð,
þróttarmikill dári:
Bar heim stein úr Bogahlíð
burðugur Árum-Kári.
I annari munnmælasögunni, þeirri er nefnir steininn kvernstein,
segir að títt hafi verið að hella vatni í skálarnar á steininum á
hverjum degi og svo sje sagt, »að Kári hafi mælt svo fyrir, að eigi
mundu fleiri mjaltakonur verða í Selárdal, en svo, að skálar þessar
nægðu þeim, til að þvo mjölt af höndum sjer í þeim«. Hin munn-
mælasögnin bendir til hins sama, og sömu ummæli voru mjer einnig
sögð um skálirnar.
Eins og sjá má af lýsingunni hjer á steini þessum er hann al-
gerlega ólíkur venjulegum kvernsteinum. Annað mál er það, að ekki
er með öllu ólíklegt að sumir af þessum bollasteinum hafi verið
notaðir í stað kvarna til þess að mylja í líkt og í mortjeri. En ekki
er kunnugt um að slíkt hafi verið nefnt kvarnir eða þess háttar
steinar kvernsteinar, aðrir en þessi1). Ekki styðst þetta nafn á stein-
inum við sagnirnar um notkun skálanna, að þær hafi verið mund-
laugar. — Sams konar sögn er og um bollastein á Arnarnúpi við
Dýrafjörð, er enn verður nefndur. Raunar er allsendis líklegt að
þessir bollasteinar hafi verið notaðir þannig. Þeir voru hentugir til
til þess, þótt þeir væru ekki hreyfanlegir. En þó er ekki þar með
sagt að þeir hafi verið gerðir tii þess, eða skálarnar í þá. Þar sem
þeir finnast á kirkjustöðum, eins og hjér, má ætla, eins og dr. Kr.
Kálund gerði2), að þeir sjeu gamlir vígsluvatnssteinar. Sá siður, að
hella vatni á hverjum degi í skálarnar á þessum steini í Selárdal, gæti
verið tilkominn svo í öndverðu, að jafnan skyldi þess gætt, að hafa
vígsluvatn í skálunum; og að hann hefur verið svo vandlega höggvinn
til bendir helst á, að hann hafi verið ætlaður til veglegrar notkunar,
virðulegri enþeirrar sem munnmælin segja að hann hafi verið hafður til.
Síðar kann að verða tækifæri til að rita nánar um þessa fornu
bollasteina.
1) En minna má á „alfkvarnar11 í Sviaríki, smákolla í steinum.
2) Sjá „Blotbolier11 i Realreg. aftanvið Beskr. af Isl. (II, 507).