Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Page 50
50
Gamlar kirkjustoðir á Ásgeirsá.
15. VII. 1912.
Á Ásgeiraá stóru, í Víðidal, eru í fjárhúshlöðu uorðurá túninu
þrjár stoðir úr furu, einkennilegar og gamlar. Þær eru nú mjög
dökkar að lit af elli og sóti, því að þær voru áður í eldhúsi, en að
sögn voru þær fyrrum í Ásgeirsár-kirkju. Á einni þeirra er þessi
áletrun: ANNO + 1648 oger útskorinn skjöldur með A + D
og fb (A og D samandregnum) á fyrir framan. Sú stoðin er 265 cm.
að lengd og hinar eru álíka langar. Breiddin á þeirri hlið, sem
áletrunin er á, er 15 cm., þyktin er 10 cm. Allar stoðirnar hafa
fyrrum verið bitar (í kirkjunni) og er gróp í annari röndinni, þeirri
sem upp hefur snúið.
Forn sögn um Dauðs-manns-kvísl á Víðidalstunguheiði.
15. VII. 1912.
Um Dauðs-manns-kvisl á Víðidalstunguheiði, — en sú kvísl er
upptök Víðidalsár — er sú saga, er nú skal sögð, eftir almennri,
gamalli sögusögn i Víðidalnum.
Þegar Ásgeirr æðikollr bjó að Ásgeirsá hafði hann í seli frammi
á heiði, nálægt árkvísl einni. Eitt sinn fór Ásgeirr bóndi að vitja
bús síns þar á heiðinni. Var sólskin og heitt veður. Hitti hann þá
svo á, að hann fann smalamann sinn sofandi norðanundir hól ein-
um þar skamt frá selinu. Hann svipaðist þegar um eftir ánum og
er hann sá þær hvergi varð hann svo reiður smalamanni, að hann
vó að honum þegar og veitti honum bana. Gekk hann nú upp á
hólinn og suður af honum og fann hann þá hvar ærnar lágu allar
í einum hóp. Bar hann nú smalamann dauðan að kvíslinni og dysj-
aði hann þar og því heitir hún siðan Dauðs-manns-kvísl.
Fornleifar hjá Holtastöðum.
8. VII. 1915.
Hjer um bil mitt á milli Holtastaða og Hvamms í Langadal,
í Holtastaðalandi eru 2 fornar tóttir kippkorn fyrir austan veginn
og er fornleg girðing umhverfis þær önnur er nær frá austri til
vesturs og er um 18 metra löng, á að giska, en hin er við vestur-
enda hennar og er nær frá norðri til suðurs. Dyr virðast ekki hafa
verið á milli þeirra, en á vesturgafii hinnar fyrri, miðjum, eru