Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Side 73

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Side 73
71 ef ekáldið hefði gengið þeejandi framhjá því, alla ekki komið því að í vísunni, meira að segja tekið orðið mjöður fram yfir það, þótt mjöður væri ekki heiti á öli. — Jeg fæ ekki betur sjeð en að alt mæli með því að vísuhelmingur þessi (4.—tí. 1. í 34. v) hafi upp- haflega hljóðað svona: mungát jötnar, en mjöð alfar; kalla sumbl Suttungs vinir. Þannig er fengin fullkomin regla í svarvísur Alvíss allar og þeim jafnframt kipt í gott lag, sem höfðu verið aflagaðar. En það er ekki að því leyti einu, sem kvæði þetta hefur spilzt Eins og áður var getið hafa 2 ljóðlínur aflagast svo að fræðimönnum þykir enn ósýnt hversu þær hafi verið í öndverðu; það eru síðasta lina í 4 v. og næstsíðasta lina í 11. v. Hin fyrri er svo í Sæmundar-Eddu: at saeÍN er giavfer xneþ godom Línurnar 2 næstu á undan eru svo: varca ec heima — þa er þer heitiþ var. Hugo Gering og sennilega ýmsir aðrir, hafa skilið línuna svo: sá einn, er gjöf er, með goðum, þ. e. »(ek var ekki heima þá er þér var heitið brúðinni,) sá einn (o. eini), er (o. hverjum) gjöf (hennar) er, með goðum*, — »sá einn með goðum, er það er (o. sem á rjett til þess) að gefa (brúðina)*1 2 3 * * * *). Er at í byrjun línunnar þá ofaukið og talið komið siðar inn eða sett þarna fyrir misskilning. Sophus Bugge áleit að það hefði verið fært til, hafl upphaflega staðið og eigi að standa á eftir orðunum »er gjöf er« og skilur línuna svo: »sá eini, er gjöfina er að fá að, með goðum«a). Þetta getur ekki heitið eðli- legt mál, þótt reynt sje að fá út úr því vit á þennan hátt. Senni- lega á Þórr við sjálfan sig með orðunum »sá einn með goðum«, sem virðast vera rjett. Þó gæti hugsast að hann ætti hjer við þann — með goðunum —, sem hafði gert þau endemi, að heita dóttur hans, að honum fjarverandi og fornspurðum — dverg »fyr jörð neðan*. Er Loki liklegastur til þess. Samt verður ósýnt hversu lín- an kann þá að hafa verið8). Eigi að taka orðin eins og þau standa, 1) Sbr. Lex. poet. s. v. gjöfer, og 3. útg. Hildibrands og H. Gerings af Eddn, Paderborn 1912, bls. 155 2) Sbr. ntg. Bngge, bls. 402. 3) Þar eð skáldið virðist hafa litið svo á, að dvergarnir ættu heima „i heljn“ og Alvíss kveðst búa „fyr jðrð neðan“, verður jafnframt að álíta, að brúðnr hans verði að „fara til heljar“, deyja, ef efnt skal heitið. Hjer virðist þvi jafnvel hafa verið um eins konar fyrirhugað blót að ræða, eða fjörráð, ef Loki hefur unnið heitið, sem liklegt er, eða á einhvern hátt valdið því að það var unnið; sbr. frásögnina um

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.