Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Page 86
1
84
Reikning þenna með fylgiskjölum höfum vér yfirfarið og ekk-
ert fundið athugavert.
Reykjavík, 12. febr. 1924.
Sigurður Þórðarson. Eggert Claessen.
III Ðrjef formanns til alþingis 1923.
Hið íslenzka Fornleifafjelag. Reykjavík, 4. mars 1923.
Til þess að verða við áskorun síðasta aðalfundar í Fornleifafje-
laginu leyfi jeg mjer hjer með að sækja um til hins háa alþingis
nokkurn styrk handa fjelaginu til örnefnarannsókna. Fjelagið á nú
ýmsa góða menn vísa til aðstoðar við að semja örnefnaskrár, ef það
gæti greitt þeim þóknun fyrir ómak þeirra, og enn fremur býst það
við að geta átt völ á ungum fræðimanni til þess að fara á sumrin
bygð úr bygð og safna örnefnum og ýmsum þar að lútandi fróðleik,
en það vantar fje til að kosta hann. — Gömul örnefni eru nú óð-
um að gleymast og leggjast niður af ýmsum ástæðum og má því
ekki draga söfnun þeirra og skýringar lengur.
Virðingarfylst.
Matthías Þórðarson, núv. form.
IV. Stjórn hins íslenzka Fornleifafjelags
viö ársbyrjun 1924
Embættismenn:
Formaður: Matthías Þórðarson, fornminjavörður.
Skrifari: Ólafur Lárusson, prófessor.
Fjehirðir: Sjera Magnús Helgason, skólastjóri.
Endurskoðunarmenn: Sigurður Þórðarson, fv. sýslumaður.
Eggert Claessen, bankastjóri.
Varaformaður: Jón Jacobson, landsbókavörður.
Varaskrifari: Dr. Jón Þorkelsson, þjóðskjalavörður.
Varafjehirðir: Pjetur Halldórsson, bóksali.