Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Síða 12
Heitir þar Kjöl- (eða Kjal-) dragatungur, eða Kjöl- (Kjal-) reka- (raka-)
tungur, áður Kjarlaka-tungur, sem kynni að vera afbökun fyrir Kjal-
rákatungur, og hefir örnefnið verið talið dregið af skipsdrætti Hjalta,
eða rákunum (í snjó og klaka) eftir skipskjölinn.1) Hins vegar fellur
lækur ofan úr Búrfelli í Pjórsá og lieitir hann Timburlækur. Er |Dað
örnefni einnig sett í samband við skipasmíð Hjalta, enda hefir íslenzkt
birki líklega aldrei verið nefnt timbur. Annað örnefni er þar einnig,
sem talið er standa í sambandi við skipasmíðina, Skipgróf. Er sagt,
að þar hafi skipið verið smíðað.'2).
Einnig bendir það á, að Hjalti hafi búið á Sámsstöðum, að sjera
Jón Egilsson segir í Byskupa-annálum sínum3), að Hjalti hafi haft þar
bú. Sjera Jón kallar hann »Hjalta á Núpi«.4) Má vera. að hann hafi
búið sjálfur á Núpi síðar, en haft þó áfram bú á Sámsstöðum jafn-
framt5). Brynjólfur Jónsson ritar í grein sína um Þjórsárdalfi), að sagt
sje, að Hjalti hafi búið á Skeljastöðum og byggt kirkjuna þar. Bað
er naumast hægt að hugsa sjer það heldur, að nokkur annar hafi
byggt hana, en allsendis eðlilegt og sennilegt, að hann hafi gert það.
Það kom í ljós, er bæjarrústirnar voru grafnar upp 1939, að þar hefði
jafnan verið smábær, lítið og fátæklegt býli. Eru engar líkur til, að
bóndinn þar hafi færzt það í fang, að reisa þar kirkju á sinn kostnað,
jafnvel þótt hún hafi ekki verið stór, — líklega ekki meira en 8 m.
að lengd og 4 að breidd. Engar líkur eru til þess heldur, að bænd-
urnir á nokkurum hinna bæjanna, hins vegar eða innar í dalnum, eða
í Sandatungu, hafi farið að reisa kirkju á Skeljastöðum. Næsti bær
fyrir innan Skeljastaði hefir verið Steinastaðir, líklega smábýli, og um
5 km. í milli bæja, og enn innar, um 1 km., er Stöng, aðalbærinn
austan Fossár. Má geta því nærri, að ekki hefði bóndinn þar farið að
reisa kirkju á Skeljastöðum í stað þess að reisa hana heima, þar sem
hún hefði verið betur sett fyrir alla bæina í innri hluta dalsins. Á
Sámsstöðum hefur verið stór bær1), en allra bæja yztur í dalnum að
austanverðu. Er ekki ósennilegt, að Skeljastaðir, sem munu hafa heitið
Skeljafell (eða »at Skeljafelli«) upphaflega3), sbr. nafn fellsins, hafi
1) Sbr. Kr. Kálund, Isl. Besk., 1., bls. 202 og 205.
2) Magnús Helgason, Kvöldræður í Kennaraskólanum 1909-—29, bls, 30.
3) Safn til Sögu ísl., I., bls. 33.
4) S. st.. bls. 29 og 33.
5) Sjá e. fr. Skírni 1940, bls. 117 18, en iafnframt Kr. Kálund, Isl. Beskr., I., bls. 201.
6) Árb. Fornlfjel. 1884- 85. bls. 53.
7) Árb. Fornlfjel. 1884 - 85, bls. 54.; Thorst. Erlingsson, Ruins of the Saga
Time, London 1899, bls. 42 —46.
8) Nafnið Skeljastaðir kann að vera búið til í líkingu við nöfnin á næstu
bæjum, nöfnin Steinastaðir (upprunalega Steinólfsstaðir) og Sámsstaðir.