Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Page 34

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Page 34
32 sannsögulegar. En hjá því fer þó ekki, að maður liikar fremur við að hera á þær brigður af þessum ástæðum. Það kann að vera nokkur skýring á, að sagnir um 10. aldar atburði geymdust svo trúlega í minnum Svarfdælinga öldum saman, að sveit þeirra er afskekkt og liggur ekki í þjóðbraut hinna miklu tíðinda, þar sem nýir viðburðir skyggðu á minning hinna eldri jafnharðan. Þegar þannig hafa verið leiddar líkur að því, að höfundur Svarfo-ælu hafi haft sannar heimildir um hinzta hvílustað helztu persóna sinna, er það undarlegt, að hann skuli hafa rangar upplýsingar um gröf Karls rauða, sem þó má heita mesti höfðingi sögunnar og eftirlæti höfundar. Svarfdæla segir, að samkvæmt ósk Karls í lifanda lífi hafi lík hans verið flutt út fyrir Karlsá og lagt þar í skip, og heiti þar síðan að Karlsá. Enn þann dag í dag er það trú manna, að einhvers staðar í Karlsár- landi sé haug Karls að finna, og er þá helzt bent á hól þann, er Bygg- hóll er kallaður. En Daníel Bruun og Finnur Jónsson, sem gerðu mikla rannsókn á þessum slóðum árið 1909, gátu ekki fundið þess nein merki í Karlsárlandi yfirleitt, að þar hefði nokkurn tíma verið heygður maður, hvað þá með þeim höfðingsbrag, sem Svarfdæla vill vera láta. Aftur á móti fundu þeir merkasta grafreitinn, sem enn befir verið rann- sakaður á landi hér frá heiðni, hjá Höfn í Dalvík sunnan við Brimnesá, rétt hjá eða á þeim stað, sem Svarfdæla segir, að Karl hafi fallið á og lýsir svo samvizkusamlega, að öll sagan verður hin sennilegasta. (Finn- ur Jónsson og D. Bruun: Dalvík-Fundet, Aarb. for nord. Oldkh. og Hist. 1910). Það væri því þegar af þessu líklegt, að Karl væri grafinn í þess- um grafreit, sem einmitt virðist vera fjölskyldugrafreitur frá Upsum, bæ Karls rauða. Við það bætist svo, að Svarfdæla tekur það fram um Karl rauða, einan allra svarfdælskra höfðingja, að hann væri lagður í skip, og við rannsókn grafreitsins kom í ljós, að einn þeirra, sem þar hvíldu, hafði einmitt verið grafinn í litlu skipi. Þegar athugað er í sam- einingu vitnisburður sögunnar og niðurstaða rannsóknarinnar, virðist það of mikil tortryggni, að efast um, að þessi maður sé Karl rauði. Nú er það mála sannast, að það skiptir í sjálfum sér ekki miklu máli, hvort Karl rauði var grafinn hér eða þar, en er rannsaka á sann- indi munnmælanna, sem Svarfdæla er samin úr, varðar það miklu, því að sagan gefur hér upp allt annan stað, og hefir því rangt fyrir sér að öllum líkindum. Hvað veldur nú þessari missögn? Það hygg ég, að sé blátt áfram bæjarnafnið Karlsá. Alþýða manna hefir vafalaust snemm’a farið að setja það í samband við nafn Karls rauða og þá um leið að hugsa sér stærsta hólinn í landareigninni haug hans. Höfundur Svarf- dælu efast hvergi um, að Karl hafi búið á Upsum, en heldur samt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.