Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Side 36
Þingstaðurinn forni á Þingvelli.
Pau fimm ár, sem jeg var prestur á Pingvöllum, 1923—28, gekk
jeg oft um þingstaðinn forna og var að hugleiða, hvar mestar líkur
væru fyrir því, að »Lögberg« og »Lögrjetta« mundu hafa verið til forna,
því að jeg var frá byrjun sannfærður um, að »Lögberg« var aldrei á
þeim stað, sem nú er talið og merkt sem »Lögberg« á austurbarmi
Almannagjár, norðan Snorrabúðar.
Pað, sem fyrst benti mjer á, að sá staður væri vafasamur, var það,
að tveir jafnmiklir fræðimenn og þeir prófessor Björn M. Ólsen og
Matthías Pórðarson fornmenjavörður gátu ekki komið sjer saman uni,
hvar »Grýla«, búð Snorra Sturlusonar, sem byggð var samkv. Sturl-
ungu: »upp frá Lögbergi«, stóð, og augljóst mál, að báðir höfðu á
röngu að standa, ef farið væri niður til búðar þeirrar frá lögbergi, eins
og þeir þó báðir telja, að hafi verið, er annar, Björn M. Ólsen, telur að
Grýla hafi verið niður við á, fyrir neðan hallinn, en hinn, Matthías
Pórðarson, að hún liafi verið niðri í gjánni, í vestur frá þessu svo-nefnda
»Lögbergi«. Peir virðast hafa slegið því föstu fyrirfram, að þessi
staður á gjárbarminum eystra væri lögberg og orðið því í vandræðum
með Grýlu.
Petta mannvirki, sem nú er merkt »Lögberg«, segir M. P. að sje
»langstærsta mannvirkið á hinum forna þingstað« (Árb. Fornl. fjel. 1921 —
22, bls. 80), en það er engan veginn rjett, flestar elztu búðaleifarnar
virðast hafa verið eins stórar eða stærri, og mannvirkið milli Brennu-
gjár og Flosagjár er til muna stærra. En það virðist hafa verið eitt
með öðru, sem studdi að því, að M. Þ. vill telja þetta mannvirki á
austurbarmi Almannagjár sem lögberg, að það var svo mikið mann-
virki og erfitt að gjöra það, sem mjer virðist þó heldur benda í gagn-
stæða átt.
Við rannsókn Sigurðar Vigfússonar 1880 kom það í ljós, að í glufu
undir þessu mannvirkijfannst aska, og um það segir M. P (Árbók, ’21 —
22, bls. 85): »mjer fyrir mitt leyti þykir líklegast, að þessi aska hafi
verið borin þarna í glufuna til þess að koma henni frá einhverri búð-
inni, sennilegast frá Snorrabúð, sem næst var«, og er það án efa rjett