Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Page 37

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Page 37
35 á litið, nema því að eins, að þarna hafi staðið búð og askan sje frá henni sjálfri. En hvort heldur sem er, þá er þessi aska sönnun þess, að lögberg hefur ekki verið þarna, þegar askan var flutt þangað. Það er vart hugsanlegt, að neinn maður hefði látið bera öskuna frá búð sinni á jafn-helgan stað sem lögberg var og fleygja henni þar, enda mundu höfðingjarnir hafa unað því illa, að sitja í öskuryki á lögbergi, ef vindur bljes. En hafi búð staðið þarna, er mannvirkið leifar hennar en ekki lögbergs. Aðalástæðuna fyrir því, að lögberg hafi verið á gjárbarminum eystra, telja þeir, sem því halda fram, að líklegt sje, að fornmenn liafi einmitt valið þann stað, sem hljóðbærast er á Þingvöllum, fyrir lögberg, en af gjárbarminum er mjög hljóðbært. En við athugun gat jeg ekki fundið neitt í sögum vorum, sem bendir til þess, að það hafi verið sjerstak- lega hljóðbært frá lögbergi, heldur hið gagnstæða, ef nokkuð er, því þegar Mörður Valgarðsson stefndi Flosa og Eyjólfi Bölverkssyni til fimmtardóms frá lögbergi, þá heyrðu þeir ekki stefnuna, enda þótt þeir stæðu úti, hjá lögrjettunni, og vissu ekki um hana fyr en maður nokkur kemur til þeirra og segir þeim frá því, að búið sje að stefna þeim, og þó þótti Mörður »allra manna málsnjallastr« (Sbr. Njálu, útg. 1894, bls. 354). Tvö handrit frá 17. -— 18. öld af Sturlungu setja í staðinn fyrir: »Snorri let gera bvð þa vpp fra logbergi, er hann kallaði Grylv.« »Snorri let gera bvð þa vpp fra logréttu« o. s. frv., og um það segir M. P>, (Árb. ’21—22, bls. 92): »Pá var lögrjettan nefnilega vestan ár og einmitt rjett hjá lögbergi . . . hefur Grýla einmitt verið upp frá þeim stað, er lög- rjettan stóð á, er þessi handrit voru skrifuð,« og þess vegna heldur hann, að afritarinn hafi skipt um, sett lögrjettu, sem hann vissi, hvar stóð, fyrir lögberg, sem hann vissi ekki, hvar var. Petta virðist algjörlega rjett at- hugað af M. Þ., en þá hefur líka afritarinn þótzt vita með vissu, hvar Grýla hefur staðið, einmitt upp frá lögrjettu, þar sem hún þá var, en þar »upp frá« er ekki um neitt annað manuvirki að ræða en það, sem merkt er nú með Lögberg, eða þetta stóra mannvirki á eystra barmi Almannagjár; svo á 17.—18. öld hefur þetta mannvirki verið talið Grýla Snorra Sturlusonar. Búðir þær, sem bræður Snorra tjölduðu það sumar, er Snorri reisti Grýlu, hafa eflaust verið búðirnar í skarðinu, Snorrabúð og Hlaðbúð, og því eðlilegast, að Snorri reisti líka sína eigin búð vestan ár þetta sumar, og það á þeiiu stað, sem vel sást yfir Þingvöll og til ferða manna þar, svo hann gæti verið við öllu búinn, og þá var ekki um hentugrj stað að ræða en þarna á gjárbarminum rjett hjá Snorrabúð, en til þess, 3'
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.