Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Page 54

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Page 54
52 Kenningin um lögberg á Spönginni hefur verið búin að festa vel rætur, þegar sjera Jón skrifaði þessar skrár sínar, 1783. Hann segir því hiklaust: »Stendur Guðmundar ríka [búð] næst Þorgeirs Ljósvetningaþgoða] búð, fyrir vestan ána; áður var hans búð fyrir norðan ána, nærri því gamla Lögbergi«. Og enn fremur: »Lögbergið er fyrir austan ána; eru þar vatnsgjár á báðar síður«. Er þetta sam- kvæmt búðaskránni frá 1709, þótt sagt sé með öðrum orðum að mestu leyti. Pá grein eða klausu, sem er hin þriðja í röðinni í búða- skrá Sigurðar lögmanns, um »Kross-skarð« og hleðsluna á gjárbarm- inum milli þess og Snorrabúðar, setur sjera Jón síðast, og eru orð hans þannig: »Hleðslan, sem þar er á milli á gjárbarminum, var áður fjórðungsdómaþingstaður.1) Menti kalla nú það pldss Kristna-Lögbcrg.« Prátt fyrir allt: Hin fornhelga, þjóðfræga hæð hafði enn ekki verið svift sínu rjetta nafni, sem hún hafði hlotið í fornöld, sennilega þegar á upphafsárum alþingis. Enn, 1783, kalla menn »það pláss« Lögberg, »Kristna-Lögberg« — svo mátti og vel nefna það, því að lengst hafði það og þingið verið »kristið,« en heitið /C/7s///a-Lögberg hefur að sjálf- sögðu ekki verið eldra en kenningin um, að »Jga////a-Lögberg« hafi verið fyrir austan ána. — Nú skilst, ef til vill, betur, hvers vegna Sigurður Björnsson segir í búðaskrá sinni: »skamt frá því gamla Lögbergi, sem millum gjánna varg og hvers vegna hann hefur ekki viljað segja »er,«2) eða að eins: skamt frá Lögbergi, sem millum gjánna var. Hann liefur sennilega þekkt annan stað, sem kallaður var Lögberg, en honum hefur þótt það ósamrímanlegt við Njálssögu, að lögberg hafi verið ]oar á dög- um Njáls. Og svo sleppir hann að minnast á það. En annar varð til þess, áður en það yrði um seinan. Sjera Jón Steingrímsson lifði nokkur ár eftir þetta; hann andaðist 11. dag Ágústmánaðar 1791. Víst hefur hann munað þetta til æviloka, hvar »það pláss« var á alþingisstaðnum, sem hjet Lögberg og var kallað Kristna-Lögberg, til aðgreiningar frá öðrum stað, er menn nefndu þá Lögberg eða Gamla-Lögberg. Sjö ár eftir fráfall hans var haldið al- þingi á hverju sumri á hinum forna alþingisstað og enn tvö ár eftir það í Reykjavík. Sennilega hafa þau níu ár enn lifað þeir menn, ef til vill margir, sem vissu það eins vel og prófasturinn í Skaftafellssýslu, að þetta pláss á gjábarminum hjet þannig, svo að með góðum rökum verði sagt, að unz alþingi var lagt niður árið 1800, þekktist hið rjetta nafn, Lögberg á hinum rjetta stað þess. f>að sýnist nú svo, sem þetta allt saman, staðhættir, fornleifar, 1) Tekið nær orðrjett úr búðaskrá Sigurðar lögmanns. 2) Hann hefur skrifað jjað orð fyrst, en strikað yfir það og skrifað vai fyrirofan.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.