Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Page 80
74
námi Þorkels vingnis, og að það skarð nær heldur ekki í gegnum
fjöllin til landnáms Ævars. Virðist þessi staðreynd vera mönnum
undarlega dulin.
Dr. Hannes Þorsteinsson og Margeir Jónsson halda báðir, að
Ævarsskarð sé samá og Litla-Vatnsskarð. Styðja þeir tilgátu sína aðal-
lega við eftirfarandi röksemdir:
a. Bæjarnafnið Vatnsskarð hafi breytzt í framburði og verið upp-
haflega Ævarsskarð (dr. H. t>.)
b. Jóhannes Guðmundsson á Gunnsteinsstöðuin (f 1879) kvað
svo-kallaðar Evarstóptir vera til nærri Litla-Vatnsskarði.
c. Hvorugur finnur neinn annan stað í Landnámi Ævars, þar
sem hann hafi getað búið.
d. Litla-Vatnsskarð liggi þannig, að það komi bezt heim við frá-
sögn Landnámu (M. J.).
Hina fyrstu röksemd hefur dr. Finnur hrakið. Um hina aðra er
þetta að segja m. a.: Jóhannes á Gunnsteinsstöðum var að vísu gagn-
merkur maður. En hann ætlaði sér aldrei þá dul, að færa fullar sönnur
á, að Ævarsskarð og Litla-Vatnsskarð væri eitt og hið sama. Hann
vissi, að ýmsar tilgátur voru um það atriði. En af því, að hann hafði
heyrt getið um Evarstóptir hjá Litla-Vatnsskarði, hallaðist hann helzt að
því, að þar hefði bær Ævars staðið. En nú er á það að líta, að þessar
tóptir voru alls ekki í skarðinu, svo ef Ævar hefði búið þar, hefði
Landnáma ekki komizt svo að orði, að »Ævar bjó í Evarsskarði«. í
öðru lagi veita rústirnar sjálfar engar upplýsingar um þetta mál. í þriðja
lagi er það ekkert inerkilegra, að fleiri en einar bæjarrústir finnist á
Litla-Vatnsskarði en víða annars staðar, þar sem bæir hafa verið færðir
úr stað ýmsra orsaka vegna. Á nafninu einu er engin rök hægt að
reisa. Fyrir því er þessi röksemd lítils eða einskis virði.
En hinum tveim síðustu röksemdum verður svarað með því, er
eftir fer.
Frásögn Landnámu um Landnám í Langadal er á þessa leið:
»Ævarr hét maðr, son Ketils helluflaga ok Þuríðar, dóttur Harald-
ar konungs gullskeggs ór Sogni. Ævarr átti...........þeira son var Véfröðr.
Synir Ævars laungetnir váru þeir Karli ok Þorbjörn Strjúgr ok Þórður
mikill. Ævarr fór til íslands ór víkingu, ok synir hans aðrir en Véfröðr;
unum. Hitt er annað mál, að Finni þótti ólíklegt, að nafnið Ævarsskarð (Evars-
skarð) hefði breyzt í Vatnsskarð, eins og Hannes áleit; er þó tæplega synjandi
fyrir, að það hafi getað átt sjer stað, er mönnum var orðin óljós hin upphaflega
niynd og merking nafnsins. M. Þ.