Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Page 97
91
ástœðum sem fyr er sagt. Frá Hofi fór Flosi að Krossavik; það er hæg
þriggja tíma reið. Nú stendur í Njálss.: »Paðan fóru þeir norðr til
Vopnafjarðar ok upp í Fljótsdalshérað«. Petta sýnist vera ritvilla í
staðinn fyrir: »Paðan fóru þeir inn Vopnafjörð ok upp í Fljótsdals-
hérað, ok gistu at Hólmsteins Spak-Bersasonar«, þ. e. á Bersastöðum.
Paðan fór Flosi upp í Fljótsdal,1) og þaðan suðr á fjall um
Öxarhraun og ofan í Sviðinhornadal, og út um Álftafjörð fyrir vestan-
Öxarhraun hlýtr að vera eða hafa verið kallað milli Fljótsdals og
Sviðinhornadals, sem nú heitir Hamarsdalr, og gengr upp af
Hamarsfirði.
Þessi frásögn í Njálss. er öll rétt, að því er séð verðr, og vel
og skilmerkilega frá sagt; hefi eg sjálfr farið mest af þessari leið, og
að öðru leyti stuðzt við frásögn merkra manna, nákunnugra«. (Allar
leturbreytingar hér. Sumt í þessari síðustu málsgrein er nú ofsagt,
samkv. Sigurðar eigin orðum).
Hér hafa þá verið tilfærð orð þess eina fræðimanns, er reynt
hefur að kynna sér þetta mál af eigin sjón og raun.2)
Ritgerð Sigurðar sannar til fullnustu, að hann lítur svo á, að það
komi ekki til mála, að sá, er ritað hefir ferðasögu Flosa í Njálu, hafi
verið Austfirðingur eða kunnugur á Austurlandi, sbr. þær setningar
og orð, sem ég hefi feitletrað.
Sigurður Vigfússon hélt því hiklaust fram, að Njála væri rituð í
Rangárþingi, og nefndi til sem líklegastan höfund hennar, að »meira
eða minna leyti«, Eyjólf prest í Odda, son Sæmundar fróða. (Sbr.
meðal annars Árb. Fornl.fél. 1887, bls. 30—31).
Vegna þessa hefir hann líklega ekki athugað það, að Flosi er
víðast hvar látinn fara alveg öfugt milli bæja og héraða í þessum
landshluta, miðað við það, sem eðlilegt er, og kunnugur maður mundi
hafa látið hann fara. En þetta er vitanlega fullkomnasta viðbótarsönn-
un, sem unnt er að fá, fyrir ókunnugleika þess, er ritað hefir.
1) Leið Flosa frá Bessastöðum > upp í Fljótsdal < hefir ekki verið löng, því
að vitanlega fer hann »suðr á fjall« upp úr Suðurdal, um Þingmannaklif upp
frá Víðivallagerði, og ofan í Hamarsdal, sem er inn af Álftafirði nyrðra, og hét
áður Sviðinhornadalur. Er þessi leið talin vera tæp þingmannaleið, 30—35 km.
A.J.J.
2) Það er nánast spaugilegt, að sjá livað eftir annað vitnað í orð Quðbr
Vigfússonar í formála hans fyrir Sturlungu til stuðnings því, að höf. Njálu liafi verið
af Austurlandi eða kunnugur þar. Hann segir þar að eins um þetta: Sagan (þ. e.
Njála) er, hvað byggingu snertir, verk lögfræðings, sem hefir verið vel kunnugur
sögu íslands og ættfræði.............og hefir búið á Austurlandi*. Þetta eru heldur
léttvæg rök. Nokkru áður en Guðbr. skrifaði þennan forniála, hélt hann því fast
‘ram að, Njála væri rituð við Breiðafjörð. A. J. J.