Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Síða 100
94
(Sjá meðfylgjandi uppdrátt). Út yfir tekur þó, hvernig Flosi er látinn
ferðast, er hann fer frá Njarðvík norður í Vopnafjörð. Er sú leið, er
komið er yfir Gönguskörð, — inn Hjaltastaðaþinghá — yfir Hróars-
tungu og Smjörvatnsheiði — Hof í Vopnafirði — Krossavík. En
kunnugur maður hefði vafalaust látið Flosa fara alveg gagnstætt þessu.
Er Flosi var kominn yfir Gönguskörð og að Unaós, hefði hann látið
leið hans liggja þvert yfir sléttlendið fyrir botni Héraðsflóans og yfir
að Ketilsstöðum í Jökulsárhlíð, þaðan svo yfir Hellisheiði, seni er að-
eins ca. 13. km. löng eða ríflega einn þriðji af vegalengdinni yfir
Smjörvatnsheiði, og yfir 200 metrum lægri —, og ofan að Eyvindar-
stöðum í Böðvarsdal, þaðan svo að Krossavík, og svo inn að Hofi
í Vopnafirði, (sjá meðfylgjandi uppdrátt), sem er þá alveg í leiðinni
frá Krossavík, hvort sem farin er Smjörvatnsheiði eða Tunguheiði
suður í Jökuldal. Pessi leið úr Njarðvík til bæjanna tveggja í Vopna-
firði (Krossavíkur og Hofs) er ekki aðeins miklu eðlilegri og að öllu
sjálfsagðari, heldur einnig að miklum mun styttri. Þetta þrennt, sem nú
hefur verið talið: / fyrsta lagi, að alveg er hætt í ferðasögu Flosa að
tilgreina dagleiðir og gistingastaði (nema hjá höfðingjunum, er hann
leitaði liðsbónar hjá) eftir að komið er austur í Breiðdal; í öðru lagi,
hvernig liann er látinn fara milli bæjanna þriggja í Fljótsdalnum; og
í þriðja lagi, hvaða leið hann er látinn fara milli Njarðvíkur og
Vopnafjarðar, — að því við bættu, að hann er látinn fara fyrir »neðan
Lagarfljót« alla leið frá Valþjófsstað í Njarðvík, að því, er virðist, af
því að Njarðvík er þeim megin við Fljótið, — talar eins skýru máli
og þörf er á um það, að sá, er ritað hefir þetta í Njálu, hefir aldrei
stigið fæti sínum austur fyrir Breiðdalsheiði1.) Hann hefir fengið
bæjanöfnin hjá manni af Austurlandi — nema hann hafi haft þau
1) Reynt hefur verið að líkja saman þessu ferðalagi Flosa og ferð lians til
alþingis eftir víg Höskulds Hvítanesgoða; því í þeirri ferð sé liætt einnig að greina
frá dagleiðuni og gistingarst'öðum eftir að sleppir Stóra-Dal undir Eyjafjöllum. Hér
er þó ólíku saman að jafna. Austurförina fer Flosi um hávetur, og því var hann
tilneyddur að gista æfinlega á bæjum. Hina ferðina fer hann um hávorið, og hefir
þá legið úti um nætur — sem enn tíðkast —, nema þegar hann gisti hjá vinum
sínum, enda er þess beinlínis getið í Njálu í 136. kap. (útg. Sig. Kr.), að Flosi og
aðrir brennumenn hafi sofið um nótt við Pjórsá á alþingisreið. Þá hefir og verið
reynt að afsaka krókaleiðir Flosa á Austurlandi með því, að Ounnar á Hlíðarenda
hafi farið krókótta leið til engja sinna í Eyjum (Móeiðarhvolseyjum). Hér er sá
regin-munur á — sem flestum er vafalaust Ijós, — að Flosi fer sína króka, þegar
allt má fara beint af augum af því að jörðin er frosin, en Gunnar fer sinn krók
til og frá engjunum um hásumar, af því að beinni leiðin lá yfir ófærar fúamýrar
og grafskurði. Allar krókaleiðir Flosa um Austurland, gangandi um hávetur, er ekki
unnt að skýra með öðru en ókunnugleika. A.J.J.