Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1879, Qupperneq 16

Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1879, Qupperneq 16
16 að kirkjur sjeu sem skrautminnstar; en nokkrir þeirra fóru í því, eins og sumu öðru, helzt of langt frá hinni rómversk-kaþólsku kirkju, og nú er í flestum löndum, þar sem hin endurbætta trú er, hin mesta stund lögð á það, að hafa kirkjur sem prýðilegastar. það er og í öllu tilliti rjett, því maðurinn hefir ekki skynsemi eir.a, heldur líka tilfinningar, þar á meðal tilfinninguna fyrir hinu fagra og háleita. pegar vjer þá fyrst minnumst á það, hvernig kirkj- ur vorar geti komizt í betra stand, þá teljum vjer það hið fyrsta ráð, að þeim verði sem haganlegast skipað í sóknunum og fækkað sem mest, dn þess að söfnuð- unum við það aukist of miklir erfiðleikar: Eins og kunnugt er, eru kirkjur víða hjer á landi sem óhagan- legast settar fyrir söfnuðinn allan. Er það eðlileg af- leiðing af því, að einstakir menn, það er: eigendur kirknanna, rjeðu einir öllu um það, hvar kirkjur væru settar, án nokkurs tillits til þeirrar sóknaskipunar, sem nú er. Sú helzta mótbára gegn þessari breytingu er sú, að ekki sje mögulegt að koma henni á; það er og hægt að játa, að vilji hver sá, sem hlut á að þessu máli, líta eingöngu á sinn hag, en alls ekki á annara, og því heldur, ef einstakir menn vilja í þessu án veru- legra ástæðna sýna sjervizku og mótþróa, þá getur það að minnsta kosti orðið mjög erfitt, að koma breyt- ingum á skipun kirkna. En i máli, sem varðar svo miklu, ættu allir kristnir menn að sýna þann kærleika og tilhliðrunarsemi, sem þeim er unnt að sýna. Menn ættu að hinu leytinu að hafa það hugfast, að koma máli þessu ekki í það horf, að landsstjórnin neyðist til að leggja tilfinnanlega skatta á alþýðu, til þess að koma kirkjunum í gott stand. Hin önnur mótbáran er sú, að ef kixkjum sje fækkað, þá stæklci sóknirnar og kirkjugangan verði erfiðari. En þessi mótbára er alls eigi rjett, eins og vjer áður höfurn vikið á, því

x

Kirkjutíðindi fyrir Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjutíðindi fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.